Þjóðviljinn - 22.02.1985, Page 7
' f
Leiklistarhópur MS
Brjálæðisleg vinna
Múmían...
Litið inn á œfingu á Draugasónötu Strindbergs
í lok næstu viku frum-
sýnir Talía, leiklistarfélag
Menntaskólans við Sund,
leikritið „Draugasónatan“
eftir Ágúst Strindberg.
Glætan hafði ekki lengri for-
mála á því, heidur barði á
dyr kennslustofu nr. 24 í MS
og bað viðstadda leiklist-
arfélaga að segja sér allt af
létta.
„Við vorum búin að lesa mörg
leikrit yfir en við lesturinn á
Draugasónötunni stóðum við á
öndinni. Eftir það komu engin
önnur leikrit til greina. Leikritið
er hundgamalt, samið 1907 en
þrátt fyrir aldurinn á það alltaf
erindi til fólks. Atburðirnir í
leikritinu gerast ekki í lógískri
röð, þetta er draumleikur. Petta
er fyrsta absúrdleikritið og mark-
aði upphaf nýbylgjunnar í leik-
list. Draugasónatan fjallar um
lífið, hvað það er flókið og spillt“.
Söguþráður
„Gamall maður tekur með sér
ungan Stúdent inn í Hús. Stú-
dentinn gæti verið Gamli maður-
inn þegar hann var ungur, Gamli
maðurinn er að hugsa um liðna
tíð. Hann opnar augun á Stúdent-
inum og í lok leiksins er Stúdent-
inn gamall og þreyttur. Húsið er
tákn lífsins og stúdentinn er tákn
sakleysisins. Gamli maðurinn
lokkar hann með sér inn í Húsið
með Ungfrúnni sem Stúdentinn
hrífst af. íbúar Hússins gætu ver-
ið dánir en þeir gætu líka verið
lifandi. í Húsinu hafa allir verið
með öllum og í raun og veru eru
persónurnar bara mismunandi
hliðar á gangi lífsins eða á
mannlífinu. Eftir að hafa kynnst
íbúunum stendur Stúdentinn
eftir lífsreyndur og búinn að sjá í
gegnum allt. Hann tekur í raun
ekki þátt í leiknum heldur er bara
áhorfandi, stendur utan við. Allt
er lygi og blekking; fallegt á yfir-
borðinu en spillt undir niðri eins
og Ungfrúin sem Stúdentinn
hrífst af.
Jú, jú, leikritið er vissulega
svartsýnt en það dregur mann
ekki niður þrátt fyrir það. Það
hrærir upp í manni tilfinninga-
lega, maður fær gæsahúð, og
vöknar um augu. Við lofum að
enginn fer héðan ósnortinn út“.
Glæsileg sýning
„Þetta á allt upptök sín í nám-
skeiði sem haldið er á haustin á
leiklistarsviði. Síðastliðið haust
var bæði byrjenda- og framhalds-
námskeið. Eftir námskeiðin sam-
einuðumst við í einn hóp og byrj-
uðum að vinna að uppsetningu á
leikritinu. Við fórum út úr bæn-
um þegar búið var að ákveða
leikritið og tókum eina helgi í það
að teikna búninga, sviðsmynd og
allt annað sem sýningunni við
kemur. Við erum um 25 sem
vinnum í sýningunni úr öllum
bekkjum. Hluti kórsins kemur
líka fram í sýningunni. Tónlistin
er frumsaminn, hana samdi Egill
Árnason en hann leikur líka í
leikritinu. En því er þannig varið
með flesta að þeir eru í mörgu,
leika í leikritinu, sauma búninga,
smíða leiktjöld og standa í redd-
ingum. Það hefur verið mikið
stúss í kringunt þessa sýningu en
allir sem við höfum leitað til um
lán á leikmunum og þvíumlíku
hafa verið mjög hjálpsamir.
Við fengum styrk úr skólasjóði
til að setja Draugasónötuna upp.
Og hefðum ekki sett upp annars,
því þetta er dýr sýning miðað við
hinar sem við höfum sett upp,
það hefur ekkert verið sparað til
þess að hún verði glæsileg.
Það hafa verið grimmar æfing-
ar síðan um jól. Upp á síðkastið
höfum við varla farið úr skólan-
um og alveg haldið til hér. Við
fengum afnot af einni skólastofu
meðan þorravakan stóð yfir en
urðum að rýma hana í lok vök-
unnar og þurftum að koma dót-
Framhald á bls. 8
Föstudagur 22. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7