Þjóðviljinn - 22.02.1985, Page 17
UMSJÓN: ÞRÖSTUR HARALDSSON
Föstudagur 22. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 17
Kjarvalsstaðir
Fjorar
sýningar
Hvorki fleiri né færri en fjórar
listsýningar verða opnaðar að
Kjarvalsstöðum um helgina.
Gefur þar að líta erlendar Ijós-
myndir, höggmyndir úr ís-
lensku grjóti, málverkog
skúlptúra úr leir og bronsi.
í Austursal verða sýndar
myndir eftir bandaríska ljós-
myndarann Margaret Bourke-
White sem uppi var á árunum
1904-71. Hún vakti fyrst athygli
sem ljósmyndari með myndum úr
bandaríska þungaiðnaðinum sem
þóttu óvenjulegar. Bourke-
White starfaði við tímaritið Life
frá stofnun þess og átti ma. fyrstu
forsíðumynd þess.
Bourke-White lét eftir sig
u.þ.b. 20 þúsund ljósmyndir en af
þeim verða 190 sýndar að Kjar-
valsstöðum á sýningu sem haldin
er á vegum Ljósmyndasafnsins,
Menningarstofnunar Bandaríkj-
anna og Kjarvalsstaða.
Elstu myndirnar á sýningunni
eru frá árunum 1930-32 en þá
dvaldist Bourke-White í Sovét-
ríkti í þá daga. Árið 1938 er hún í
Tékkóslóvakíu og myndar stolta
og frjálsa Tékka sem nokkrum
mánuðum síðar lutu ofurvaldi
nasismans.
í stríðinu myndaði hún óspart
og lagði sig í ýmsar hættur til að
ná myndum af óhugnaði stríðs-
ins. Hún tók þátt í sprengjuflugi
Bandamanna yfir Þýskalandi og í
apríl 1945 var hún í för með her-
sveitum Pattons sem lögðu undir
sig útrýmingarbúðir nasista í
Buchenwald. Þaðan fór hún til
Leipzig og lagði á sig mikið erfiði
við að sanna fyrir heiminum að
Buchenwald hafi ekki verið nein
undantekning.
Eftir stríð fór hún til Indlands
og tók ma. myndir af Mahatma
Gandhi sem hlutu heimsfrægð.
Árið 1950 fór Bourke-White til
Suður-Afríku og lýsti kjörum
blökkumanna í áhrifamiklum
myndum. Síðustu myndirnar á
sýningunni eru frá Kóreustríð-
inu. Auk þessa eru á sýningunni
fjöldi mynda sem hún tók í
Bandaríkjunum.
Ekaterina Drjúgasvili, móðir Jóseps Stalín. Myndina tók Margaret Bourke-
White árið 1932.
ríkjunum og myndaði mannlífið,
ekki síst iðnverkafólk en einnig
alþýðufólk og fyrirmenn á borð
við Stalín og móður hans. 1936
var hún við myndatökur í suður-
ríkjum Bandaríkjanna og þykir
lýsa vel þeirri örbirgð sem þar
Sýningin ber heitið „Mannlegt
sjónarmið" og verður eins og hin-
ar þrjár opin til 10. mars.
Hefð f grjóti
Á ganginum fyrir framan
Austursal sýnir ungur Borgfirð-
Kristjana Samper horfir hér í gegnum einn skúlptúrinn. (Mynd: E.ÓI.)
Leir, brons
og olía
Vestursalnum skipta tvær
stöllur á milli sín. Kristjana
Samper og Rut Rebekka Sigur-
jónsdóttir eru jafnöldrur en
þekkjast þó ekkert. List þeirra er
Ííka æði ólík.
Kristjana gerir skúlptúra, flest-
ir eru úr leir og brenndir með mis-
munandi tækni en einn er úr
bronsi. Verkin eru flest frá síð-
ustu tveimur árum og unnin í
vinnustofu Kristjönu í Kópavogi.
Hún hefur aldrei sýnt verk sín
áður hér á landi en tók þátt í sam-
sýningum í Bandaríkjunum með-
an hún var þar við nám.
Kristjana stundaði fyrst nám í
Myndlistarskólanum árið 1962-3
en á árunum 1975-79 var hún í
Myndlista- og handíðaskólanum.
Síðan var hún einn vetur við há-
skólann í Arizona í Bandaríkjun-
um.
Rut Rebekka stendur á fertugu
eins og Kristjana og sýnir 42
myndir í hinum helmingi Vest-
stemmningar og konuímyndir.
Þær síðastnefndu eru sóttar í
hattabúð sem lengi hefur verið
starfrækt á horni Hverfisgötu og
Klapparstígs. „Gínuhöfuðin með
kvenhattana eru mér í barns-
minni og ég mála þau eins og þau
voru á æskuárum mínum. Þessar
og Kristjana og lauk síðan við
MHÍ árið 1982. Hún hefur tekið
þátt í tveim samsýningum, hér
heima og í Kaliforníu, og haldið
tvær einkasýningar, aðra í Mos-
fellssveit en hina í Viborg í Dan-
mörku.
- ÞH
Páll Guðmundsson við eina höggmynd sína. (Mynd: E.ÓI.)
ingur, Pál'l Guðmundsson frá
Húsafelli, höggmyndir úr ís-
lensku grjóti. Grjótið er tvenns
konar, en allt komið úr gili fyrir
ofan bæinn að Húsafelli. Það er
hefð fyrir því í ætt Páls að vinna úr
þessu grjóti því forfeður hans,
feðgarnir Jakob Snorrason og
Þorsteinn sonur hans, voru frægir
legsteinasmiðir á öldinni sem
leið. Myndir sínar vinnur Páll
með meitli og slaghamri og
jafnvel vfrbursta. Fyrirmyndir
mótar hann í svonefndan deiglu-
mó sem finnst í öðru gili við
Húsafell.
Á sýningunni eru 23 verk. Páll
lærði myndlist við Myndlistar-
skólann í Reykjavík og var aðal-
kennari hans Björgvin Sigurgeir
Haraldsson. Hann hefur haldið
nokkrar einkasýningar í Reykja-
vík og Borgarfirði og tekið þátt í
einni samsýningu.
ursalar. Flestar myndanna eru ol-
íumálverk en einnig sýnir hún
nokkur silkiþrykk. Olíumálverk-
in skiptast í tvennt: náttúru-
kvenímyndir eru því síðan í stríði
eða svo“, sagði Rut.
Rut Rebekka hóf námsferil
sinn í Myndlistarskólanum
eins
Rut Rebekka Sigurjónsdóttir með olíumálverk sín í bakgrunni. (Mynd: E.ÓI.)