Þjóðviljinn - 03.03.1985, Side 3
Tímatal
Ragnhildar
Hæstvirlur tíundi þingmaöur
Reykvíkinga er ekki frægur aö
skapstillingu. Þingmaðurinn
varð að menntamálaráðherra
eftir síðustu kosningar og á nú
íslandsmet í niðurskurði í
ménnta- og menningarmál-
um. Síðasta afrekið er að
hrekja mikinn hluta fram-
haldsskólakennara úr starfi
og leggja skólakerfið þarmeð í
rúst. Meðan Róm brennur
hefur ráðherrann það helst
sér til dundurs að hringja
niðrá útvarp í hverjum frétta-
tíma og fjargviðrast útí orða-
lag kringum kennar-
auppsagnirnar. Þeir hafa sagt
upp frá og með 1. mars, en
ráðherrann heldur ennþá að
1. mars sé 1. júní og reynir að
koma þessu sérkennilega
tímatali í gildi með leiðréttingu
í lok allra útvarpsfrétta.
Okkur á Þjóðviljanum
skortir því ekki tækifærin til að
kveða oft góða vísu eftir
skáldjöfur úr menntageiran-
um:
Ragnhildur er söm við sig
til loka
og siglir yfir veldi sitt
og ríki
í eðlislægum yfirstéttar-
hroka
sem öðru hverju blandast
móðursýki.*
Fyrir aðeins 390 kr.
Frábærar tertur
Af hverju
metsala
Bókaforlög eru nú sem óðast
að gera upp jólavertíðina
1984 enda eiga bóksalar að
skila af sér til útgefenda í fe-
brúar. Af þeim fréttum sem við
höfum heyrt má draga þær
ályktanir að bókaforlögin
standi betur eftir þessa vertíð
en þau hafa lengi gert. Mörg
voru komin á heljarþröm í
haust sáu vart út úr skuldun-
um. Eitt forlagið sem Þjóðvilj-
inn hafði spurnir af hefur í
krafti hinnar miklu jólabóka-
sölu getað losað sig úr skuld-
aklípu og hreinsað verulega
til. Ef svo fer sem horfir verður
talsverð aukning á útgáfunni
næsta haust, en hvað þá ger-
ist veit enginn. Menn í bóka-
heiminum hafa mikið velt
vöngum yfir því hvað olli þeirri
miklu söluaukningu sem varö
um jólin en ekki fengið neina
haldgóða skýringu. Sumir
hafa bent á að vídeóæðið sé
um garð gengið en aðrir segja
að það geti ekki veriö skýring-
in því aukningin um jólin varð
einna mest í svonefndum
„betri bókum" sem hefðu síst
átt að gjalda vídeóbylgjunnar.
Dularfullt."
Helmingi
ódýrara
Vasabrotsbækur hafa ekki átt
upp á pallborðið hjá landan-
um til þessa, amk. ekki ís-
lenskar. Eins og kunnugt er
gerði Mál og menning tilraun
með útgáfu slíkra bóka um
síðustu jól og gafst hún afar
vel. Einn hængur er á þessari
útgáfu en hann er sá að ís-
lenskur prentiðnaður ræður
ekki við prentun vasabrots-
bóka úr þunnum pappír eins
og tíðkast erlendis en meö því
að nota hann er hægt að
koma verðinu enn meira nið-
ur. í því samhengi líta menn
hýru auga þau tilboð sem
hafa verið að berast erlendis
frá um bókaþrentun. Höfum
við heyrt dæmi þess að tilboð-
in hafi hljóðaö upp á innan við
helming þess sem íslenskar
prentsmiðjur taka fyrir prent-
un á bókum. Munu margirforl-
eggjarar vera farnir að hug-
leiða utanlandsreisur til að
kanna málið.«
Wv\
ov-'ð 5»
Sítf" 3
Bakaríið KRINGLAN
Starmýri 2
STORSYNING
Laugrarclagr frá kl. 10-4 og sunnudag frá kl. 1-5
Sýndar verða 1985 árgerðirnar af:
Mazda 323 Mazda 626
Mazda ESeries Mazda TSeries mam IAíb Mazda 929i
Sérstaklega kynnum við nýjan MAZDA 929 EGI með nýrri 120 hestafla vél
með tölvustýrðri beinni innspýtingu. Ennfremur sýnum við úrval af notuðum
MAZDA bílum, sem allir seljast með 6 mánaða ábyrgð.
Gerið ykkur dagamun og KOMIÐ OG SKOÐIÐ ÞAÐ NÝJASTA FRÁ MAZDA,
og auðvitað verður heitt á könnunni.
BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23 sími 812 99