Þjóðviljinn - 03.03.1985, Qupperneq 4
Á BEININU
Elsa Kristjánsdóttir
Gjöldum nábýlis við
herinn og höfuðborgina
Elsa Kristjánsdóttir er oddviti í
Sandgerði og varaþingmaður
Alþýðubandalagsins fyrir
Reykjaneskjördæmi. Hún á
jafnframt sæti í stjórn Iðnþró-
unarfélags Suðurnesja. At-
vinnumál á Suðurnesjum
hafa verið í brennidepli að
undanförnu, og því er Elsa
Kristjánsdóttirá beininu hjá
okkurídag.
Elsa, hvað er að gerast í at-
vinnumálum Suðurnesja? Eru
þau að taka nýja stefnu?
Nei, það held ég ekki.
Breytingar eru ekki sjáanlegar
nema til hins verra í sjávarútveg-
inum. Þar hefur orðið samdrátt-
ur, sem valdið hefur atvinnuleysi,
sérstaklega meðal kvenna. Hér
eru engar atvinnugreinar sem
geta tekið við þeim sem hafa at-
vinnu af sjávarútvegi og allra síst
konunum. Samdrátturinn í sjáv-
arútveginum hefur einnig orsak-
að stórfellda erfiðleika hjá þeim
sveitarfélögum, sem byggja á
sjávarútveginum.
Hvað veldur þessum sam-
drætti?
Þar eru fleirri orsakir, en nefna
mætti að lánafyrirgreiðsla til tog-
araútgerðar hefur verið minni
hér en í öðrum byggðarlögum.
Gott dæmi um þetta er togarinn
Guðmundur Jónsson, sem
byggður var fyrir Rafn hf. hér í
Sandgerði. Þeir Ientu í erfið-
leikum með að halda honum og
þurftu að fá fyrirgreiðslu, sem
þeir fengu ekki, svo að skipið var
selt til Vestmannaeyja. Þeir í
Eyjum fengu hins vegar helmingi
meiri fyrirgreiðslu til þess að geta
keypt skipið en farið hafði verið
framá héðan. Það er staðreynd
að Suðurnesin hafa verið afskipt
hjá lánasjóðum miðað við aðra
landshluta.
Baggi
sveitarfélaganna
Hvernig kemur samdrátturinn
og rekstrarerfiðleikarnir í sjávar-
útveginum við sveitarfélögin?
Einfaldlega þannig að þau hafa
ekki getað náð inn tekjum sínum
af útsvari, aðstöðugjöldum og
öðrum þjónustugjöldum hjá
þessum fyrirtækjum. Til þess að
halda atvinnunni hefur þessum
fyrirtækjum verið hlíft í inn-
heimtu á rafmagns- og hafnar-
gjöldum og fyrir síðustu áramót
fóru 5 fyrirtæki hér í Sandgerði
fram á skuldbreytingu við
sveitarfélagið. Þessar vanskila-
skuldir námu nærri 30% af heild-
artekjum sveitarfélagsins það
árið.
A sjávarútvegurinn á Suður-
nesjum í slag við bankakerfið?
Málið er að það hafa ekki aðrir
en Útvegsbankinn og Lands-
bankinn verið skyldaðir til þess
að sinna sjávarútveginum, sem er
afarfjármagnsfrekur. Þegar þessi
viðskipti eru orðin óeðlilega stórt
hlutfall af útlánum og þau fara
framyfir innlánin, þá lenda þessir
bankar í bullandi yfirdrætti og
refsivöxtum hjá Seðlabankanum
og tapa þannig á þessum við-
skiptum. Á meðan geta einka-
bankarnir valið sér viðskiptavini.
Því er það að þegar menn eru að
tala um gróða bankanna, þá er
honum afar misjafnt skipt eftir
því hver á í hlut, hvar bankarnir
eru staðsettir og hvaða uppbygg-
ingu þeir standa á bakvið.
Fiskverkakonur
réttlausar
Hvernig kemur vandi sjávarút-
vegsins við fiskverkakonurnar?
Nú, þær eru atvinnulausar. Ég
veit ekki til þess að það tíðkist
annars staðar í þjóðfélaginu að
hægt sé að segja fólki upp með
vikufyrirvara og kalla svo í það
þegar henta þykir. Hjá mörgum
fiskverkakonum hefur atvinna
verið það stopul síðasta árið að
þær hafa nú þegar fullnýtt rétt
sinn til atvinnuleysisbóta, en bæt-
urnar miðast við þá vinnu sem
unnin hefur verið síðustu 12 mán-
uðina. Þar fyrir utan er þessi
vinna ekkert sældarbrauð, eins
og glögglega kom fram í skýrsl-
unni sem nýlega var gefin út um
atvinnusjúkdóma í greininni.
Hún lýgur sko engu um það.
Vinnuálagið í bónusvinnunni,
kuldanum og slabbinu hefur
leikið marga konuna grátt.
Nú standa yfir miklar fram-
kvæmdir á vegum bandaríska
hersins og við flugstöðvarbygg-
inguna á Keflavíkurflugvelli. Eru
þessar framkvæmdir ekki þáttur í
atvinnulífi Suðurnesja?
Jú, við höfum reyndar haft
þennan söng dynjandi yfir okkur
alla tíð að það sé svo mikið fjár-
streymi hingað vegna þessara
framkvæmda hjá hernum, að við
þurfum ekkert meira. Sann-
leikurinn er hins vegar sá að þess-
ar framkvæmdir eru fyrst og
fremst hemill á eðlilega þróun at-
vinnulífs hér. Það er rétt að hafa
það í huga þegar menn eru að tala
um hinn mikla gróða Suðurnesja-
manna af hernaðarframkvæmd-
um, að hann skilur býsna lítið
eftir sig hér. Eins og allir vita, þá
hafa Aðalverktakar flutt sinn
hagnað til Reykjavíkur og mikið
af undirverktökum sem hér vinna
koma annarsstaðar frá og flytja
með sér vinnukraft. Þetta á einn-
ig við um ístak og Hagvirki, sem
hafa verið með flugstöðvarbygg-
inguna. Hins vegar eru Aðal-
verktakar með fastan kjarna
starfsfólks héðan, sem að undan-
förnu hefur unnið við flugskýla-
byggingarnar og hernaðarfram-
kvæmdirnar í Helguvík.
Eiturlyf
Annars má segja um hernað-
arframkvæmdirnar, að þær virka
að nokkru leyti eins og eiturlyf.
Þegar sveiflur verða missir fólk
vinnuna og þá er bæði meðvitað
og ómeðvitað kallað á meiri
hernaðarframkvæmdir. Gagn-
vart fyrirtækjunum virkar þetta
þannig að þau vita ekki hvort
hægt er að fara út í einhverja upp-
byggingu, því kannski kemur allt
í einu mikið framkvæmdatímabil,
og þá er bara boðið í fólk og menn
hópast eitthvað annað. Það er
heldur ekki óeðlilegt miðað við
þau kjör og þá vinnuaðstöðu sem
nú býðst á sjónum að menn leiti
heldur í þetta. En það á ekki
síður við um iðnfyrirtæki en út-
gerðina, að þau kvarti undan
samkeppni við herinn um vinnu-
aflið. Það á þó eingöngu við um
karlmenn, því konur vinna ekki
við þessar framkvæmdir.
í þessu sambandi er líka rétt að
geta þess að þrjú sveitarfélög hér
á Suðurnesjum, Grindavík,
Sandgerði og Garðurinn, byggj-
ast svo til eingöngu á sjávarút-
vegi. Því hættir mönnum oft til að
gleyma þegar rætt er um Suður-
nesin og menn sjá ekki annað
fyrir sér en Keflavík, flugvöllinn
og framkvæmdirnar hjá hernum.
Framtíðin
Hvaða augum lítur þú á fram-
tíðarmöguleika atvinnuþróunar á
Suðurnesjum?
í fyrra var stofnað.hér Iðnþró-
unarfélag, og hér hefur verið
starfandi iðnaðarráðgjafi í 3 ár.
Þá er einnig í bígerð að stofna hér
sérstakan iðnþróunarsjóð. Hér
er að hefjast sókn til þess að auka
fjölbreytnina í atvinnulífinu og
aðstoða fólk við að koma upp
fyrirtækjum. Hér er ekki átt við
iðnað í þrengsta skilningi orðsins,
heldur höfum við hugsað okkur
að taka líka þarna inn það sem
snýr að fiskiðnaði, og þá sérstak-
lega nýjungum á því sviði.
Menn binda vonir við að hægt
verði að nýta þær náttúruauð-
lindir sem hér eru í formi jarð-
hita. Mikið er rætt um það að
koma hér upp fiskeldisstöðvum,
stórum og mörgum, og binda
menn nokkrar vonir við það, þótt
slík starfsemi skaffi í sjálfu sér
ekki ýkja mikla atvinnu.
Bæði hjá Sjöstjörnunni í
Njarðvík og hjá Oskari Árnasyni
í Sandgerði eru menn nú að gera
tilraunir með fjölbreyttari fram-
leiðslu á sjávarafurðum og leita
nýrra leiða í fiskverkun.
Skilningsleysi
En það verður að segjast eins
og er, að þessi starfsemi virðist
ekki njóta mikils skilnings eða
áhuga hjá lánastofnunum eða
þeim sjóðum sem þar eiga að
koma til. Menn eru alltaf að tala
um að þurfi að koma meiri fjöl-
breytni í atvinnulífið, en svo þeg-
ar til á að taka og einhverjir vilja
gera þetta, þá er eins og vanti
bæði undirbúning og skilning.
Þessar rannsóknar- og þróunar-
stofnanir sem við eigum virðast
ekki vera tilbúnar, né heldur að
þeir sem ráða fjármagninu þekki
sinn vitjunartíma. Það er því eins
og hugur fylgi ekki máli og hlut-
irnir eru ekki útfærðir til enda.
Þetta verður meira almennt
snakk. Við íslendingar erum
frægir fyrir hvað við veitum lítið
til rannsóknar- og þróunarstarf-
semi. Ef við ætlum okkur að
byggja hér upp nýjar atvinnu-
greinar og koma á tæknivæddum
iðnaði, þá þarf að sjálfsögðu að
byggja það upp frá grunni, meðal
annars með því að miða
menntakerfið við hinar nýju
kröfur og búa vel að hvers konar
rannsóknar- og þróunarstarf-
semi.
Sjóefnavinnslan
Bunduð þið vonir við Sjóefna-
vinnsluna?
Já, Sjóefnavinnslan er dæmi
um þróunarverkefni, sem menn
virðast ætla að henda frá sér rétt í
þann mund þegar búið er að sigr-
ast á helstu tæknilegu erfið-
leikunum og forsendur eru að
skapast fyrir því að leggja mat á
árangurinn. Og ráðherra lýsir því
yfir að færa eigi einkaaðilum ork-
una frá fyrirtækinu á silfurfati án
þess að ráðfæra sig við með-
eigendur sem eru sveitarfélögin á
Suðurnesjum. Þetta er auðvitað
hrein lögleysa og gæti hvergi við-
gengist nema hér á Suðurnesjum.
Allavega hefðu svona aðferðir
ekki liðist í kjördæmi iðnaðar-
ráðherrans. Sjóefnavinnslan er
einmitt dæmi um það hvernig við
íslendingar tímum ekki að leggja
vinnu og fjármuni í þróunarverk-
efni og hlaupum frá hálfunnum
hlut.
Hvers vegna gæti þetta hvergi
gerst nema á Suðurnesjum?
Vegna þess að í augum flestra
landsmanna teljast Suðurnesin
með Reykjavíkursvæðinu og á
okkur dynur sífellt þessi sama
lumma að við eigum að láta okk-
ur nægja „Völlinn" og það sem
þar er að hafa. Þetta er sú mynd
sem menn gera sér af Suðurnesj-
um.
Telur þú að þið gjaldið nábýlis-
ins við Völlinn og höfuðborgina?
Já.
ólg.
4 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. mars 1985