Þjóðviljinn - 03.03.1985, Blaðsíða 6
Nýfrjálshyggjan einkar
kvenfjandsamleg
Spjallað við Rannveigu Traustadóttur
um hugmyndafrœði kvennahreyfinga
í greiningu minni á kvennahreyfingum styðst ég við bók Önnu G.
Jónasdóttur um þetta efni á sœnsku, þar sem gengið er út frá
fjórum sjónarhornum og hugmyndafrœðin túlkuð eftir þeim, sagði
Rannveig Traustadóttir í spjalli við Þjóðviljann um kvennahreyfing-
ar. Rannveig hefur flutt erindi á vegum Kvennafylkingarinnar um
efni. Og á Kvennastefnu Alþýðubandalagsins í Ölfusborgum um
nœstu helgi mun Rannveig fjalla frekar um kvennahreyfingar.
- Hugmyndafræði hinna ýmsu
kvennahreyfinga hvílir ú þessum
sjónarhornum. Og samkvæmt
þessu má skipta kvennahreyfing-
um almennt eftir þessum fjórum
lykilhugtökum, sjónarhornum:
kynhlutverk, kvennamenning,
feðraveldi og sósíalismi.
Út frá sjónarhorni kynhlut-
verksins eru óiík hlutverk kynj-
anna skoðuð við kvennarann-
sóknir. 1 fyrstu var talið að
jafnræði ríkti milli þessara ólíku
hlutverka karla og kvenna. En
við nánari skoðun kom í ljós að
mikið misrétti var á milli kynj-
anna; valdahlutföllin eru ólík,
karlamunstrið er „sterkara", en
kvennamunstrið stendur höllum
fæti í samanburði.
- I þessu sambandi er vert að
hafa í huga, að munur er á líf-
fræðilegu og félagslegu hlutverki
kynjanna. Kynhlutverkið er að
stærstum hluta félagslegt, tillært.
Simone de Beauvoir orðaði þetta
sem svo: „Við fæðumst ekki sem
konur heldur erum við aldar upp
til að verða konur".
Það er mun erfiðara að kljást
við þessa félagslegu hlutverka-
skipan en hina líffræðilegu. Til
marks um það er nefnt dæmið um
að það reyndist mun auðveldara
að fá konur til að hætta að gefa
barni sínu brjóst en kenna karli
að gefa barni sínu pela. Þær
kvennahreyfingar sem byggja
hugmyndafræði sína útfrá þessu
sjónarhorni sögðu stundum að
kvenhlutverkið væri gallað og
það væri bæði hægt og væri rétt að
breyta þessu hlutverki með því að
ala stúlkur og drengi nákvæmlega
eins upp.
Hin gleymda saga
Hugtakið kvennamenning kom
fyrst fram í Bandaríkjunum í
kringum 1970. Þetta var til að
byrja með hugtak sem feministar
notuðu mikið í sínum kvenna-
rannsóknum. Undir formerkjum
kvennamenningarinnar er dregin
fram hin gleymda saga kvenna,
menning þeirra og hlutverk sem
fallið hafði í gleymsku og dá.
Dregin var fram hin jákvæða
ímynd kvenna í stað þeirrar
daufu myndar sem gefin hafði
verið í sagnfræði og bókmenntum
fram á okkar daga.
- Þær sem aðhyllast þetta sjón-
arhorn eru þeirrar skoðunar að til
séu tveir ólt'kir reynsluheimar
karla og kvenna. Reynsluheimur
kvenna, undirokun þeirra á vinn-
umarkaði og vinnuþrælkun á
heimilunum er dregin fram í
dagsljósið.
- Jú, kvennamenningin er dá-
lítið einkennandi fyrir málflutn-
ing Samtaka um kvennalista.®
Mitt persónulega álit er að margt
jákvætt hafi verið gert vegna hug-
myndafræði kvennamenningar.
Hins vegar er ég hrædd um að
þetta sé dálítið hættulegt vegna
þeirrar dýrkunar, rómantísering-
ar á hlutverki konunnar. Það er
of mikil sáttfýsi við kvenhlut -
verkið, þarsem konan ei kúguð.
Og útfrá sjonarhorni kvenna-
menringarinnar er litið svo á að
karlar eigi að vera dregnir til
ábyrgðar t.d. fyrir styrjaldir
o.s.frv. Hættan að mínu mati er
t. d. sú, að þegar kreppir verði
hugmyndafræðin konum fjötur
um fót, það er jú hægt að reka
konurnar frá vinnustöðunum
inná heimilin þarsem þær geta
sinnt því hlutverki sem lofsamað
hefur verið í nafni kvennamenn-
ingar.
Hjónabandið
þrœlahald
Þær sem ganga út frá sjónar-
horni feðraveldisins í kvenna-
rannsóknum telja feðraveldið
vera alls ráðandi félagslega, póli-
tískt og aliavega. Konur eru kúg-
aðar á öllum sviðum. Þó svo karl-
ar geti einnig verið kúgaðir marg-
víslega, þá eru þeir ekki kúgaðir
sem kynverur. Og karlarnir eru
dregnir til ábyrgðar sem einstak-
lingar og hópur vegna kúgunar
þeirra á konum. Þeir beita kon-
una allra handa kúgun, einnig
líkamlegri valdbeitingu. Margar
þeirra sem ganga útfrá sjónar-
horni feðraveldisins eru í rök-
réttu framhaldi þessa, þeirrar
skoðunar að hjónabandið sé ekki
annað en þrælahald á konum.
Mesta fjölbreytnin
- Þá erum við komin að fjórða
sjónarhorninu í þessari hrað-
soðnu yfirferð. Segja má að fjöl-
breytnin sé mest innan sósíal-
ismans sem er síðasta hugtakið í
þessari upptalningu. Þær konur
og kvennahreyfingar sem notast
við hann sem sjónarhorn sinnar
hugmyndafræði aðhyllast sögu-
lega efnishyggju. Þær líta á stöðu
konunnar í framleiðslunni og
endurframleiðslunni og meta
stöðu hennar útfrá því.
- Þeir hinir klassisku hug-
myndasmiðir marxismans
slepptu sérstæðri stöðu konunnar
umfram það sem þeir réðu í stöðu
hennar útfrá hinni kapitalisku
þjóðfélagsgerð. Þeir töldu í upp-
hafi að kúgun konunnar yrði úr
sögunni með afnámi auðvalds-
þjóðfélagsins.Sumir viðurkennd-
u, svo sem August Babel, að
taka yrði sérstakt tillit til konunn-
ar, en byltingin yrði eftir sem
áður til að frelsa konuna úr án-
auð.
- í umrótinu á sjöunda ára-
tugnum fóru konur á vinstri kant-
inum að efast um réttmæti og ein-
faldanir hinna klassisku höfunda
marxismans. Þeim fannst þessi
marxismi vera „karlhverfur" og
of lítið fjallað um sérstöðu
kvenna. Þess vegna vildu þær
þróa eitthvað nýtt í hugmynda-
fræðinni með tilliti til sérstöðu
kvenna.
- í þessu umróti fór ekki hjá því
að margar konur sneru baki við
marxismanum og gerðust áhang-
endur hugmyndafræði feðraveld-
is og kvennamenningar. Annar
hópur af vinstri kantinum var
kenndur við rétttrúnað og héldu
þær áfram að líta á kvennamálið
ut frá því sjónarhorni sem hinir
klassisku hugmyndasmiðir höfðu
Rannveig Traustadóttir.
skammtað, þ.e. að einungis
þjóðfélagsgerðin og staðan í
framleiðslukerfinu réði stöðu
kvennanna. Ég þekki meirað-
segja dæmi um þetta viðhorf í Al-
þýðubandalaginu.
Samþœttingin
frjóa
- Segja má að þriðji hópurinn
sé til um þá kenningu að
nauðsynlegt sé að þróa áfram
hugmyndafræði á grundvelli hins
hefðbundna marxisma og tengja
saman við ýmsa þætti kenningu
um feðraveldi. Og um þetta má
hafa eftir frægri konu: Við spyrj-
um feminiskra spurninga til að fá
marxísk svör. Það er einmitt á
þessum vettvangi sem margt af
því frjóasta er að gerast, þ.e. í
þeirri hugmyndafræði sem er
samþætt af sósíalisma og kenn-
ingum um feðraveldi og úr fleiri
áttum. En það er mikil gróska í
þessum fræðum og margar bækur
að koma út um þetta.
- Já, einsog áður sagði eiga
Kvennalisti/Kvennaframboð
einna helst rætur á þeim akri sem
kenndur er við kvennamenningu,
en t.d. Samtök kvenna á vinnu-
markaði standa nær hinu sósíal-
íska sjónarhorni.
Hjá okkur í Kvennafylkingu
Alþýðubandalagsins fer fram
nokkur hugmyndafræðileg um-
ræða þó auðvitað séum við næst
hinu sósíalíska sjónarhorni í þess-
um fræðum. En ég lít svo á að
okkar hugmyndafræði njóti einn-
ig afurða kvennamenningarinnar
og tel að þessar kvennahreyfing-
ar hér á landi séu okkur nauðsyn-
legar og lít á þær sem mikilvæga
samherja.
Kvenfjandsamleg
nýfrjólshyggja
- Sú hugmyndafræði valda-
stéttanna á Vesturlöndum sem
nú um stundir hefur verið áber-
andi er einkar kvenfjandsamleg.
Nýfrjálshyggjan er annars vegar
atlaga að samneyslunni og vel-
ferðinni sem ekki síst hefur komið
konum til góða.
- Hins vegar hampar nýfrjáls-
hyggjan samkeppninni á mark-
aðnum sem dæmir konur nánast
úr leik. Til að standa sig í sam-
keppni þarf manneskjan hin
dæmigerðu einkenni karlremb-
unnar: dirfsku, frekju og yfirgang
og tillitsleysi gagnvart öðru fólki.
Konur eru hins vegar mannes-
kjur samvinnunnar og alúðarinn-
ar og einkenni þeirra eru fremur
alúð, umhyggja og slík „mýkt"
sem er ekki líkleg til að verða
ofan á á þeim harða samkeppn-
ismarkaði sem frjálshyggju-
postularnir boða. Spyrja mætti
hvort nýfrjálshyggjan sé ekki við-
brögð feðraveldisins við upp-
gangi kvennahreyfinga.
Vakning víða
- Framtíðin? Ég bind miklar
vonir við starfsemi kvennahreyf-
inga hér á landi. Víða sjást þess
merki að konur séu í auknum
mæli að vakna til vitundar um
stöðu sína og nauðsyn þess að rísa
upp. Það var ævintýralegt að
fylgjast t.d. með þeirri vakningu
sem varð meðal kvenna í BSRB-
verkfallinu í haust. Þetta gengur
hægt, en augu fólks eru að opnast
fyrir misréttinu, sagði Rannveig
Traustadóttir að lokum.
-óg.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN i Sunnudagur 3. mars 1985