Þjóðviljinn - 03.03.1985, Síða 14
Sófinn bceldur
mLAUSAR STÖÐUR HJÁ
m REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Deildareftirlitsmaður í innlagnadeild Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. lönfræðingsmenntun áskilin.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri R.R. í síma
686222.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 8. mars
1985.
• Félagsráðgjafi við eina af hverfaskrifstofum Fé-
lagsmálastofnunar.
Upplýsingar veitir yfirmaður fjölskyldudeildar F.R. í
síma 25500.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 15. mars
1985.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9,6.hæð á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00, sbr.
ofangreindar dagsetningar um umsóknarfrest.
Vinnuferð til Kúbu
sumarið 1985
Mánuður í nýjum heimi.
Lagt af stað héðan 28. júní og komið aftur 29. júlí.
Áætlaður kostnaður 35.000,-
Umsóknarfrestur er til 10. mars.
Umsóknir sendist Vináttufélagi íslands og Kúbu,
pósth. 318, 121 Reykjavík.
Nánari upplýsingar í síma 20798.
V.Í.K.
njðntækistofnun
íslands
Óskar eftir að ráða:
SKRIFSTOFUSTJÓRA til að annast áætlanagerð,
eftirlit með verkbókhaldi og almenna skrifstofustjórn-
un.
SKRIFSTOFUMANN til almennra skrifstofustarfa
þ.m.t. vélritun á íslensku, ensku og dönsku.
Umsóknir þurfa að berast til Iðntæknistofnunar ís-
lands, Keldnaholti, 110 Reykjavík fyrir 15. mars n.k.
Hlutverk Iðntæknistofnunar er að vinna að tækniþróun og aukinni fram-
leiðni f íslenskum iðnaði með því að veita einstökum greinum hans og
iðnfyrirtækjum sérhæfða þjónustu á sviði tækni- og stjórnunarmála, og
stuðla að hagkvæmri nýtingu íslenskra auðlinda til iðnaðar. Starfs-
mannafjöldi er um 50.
Ég
fer
ekki
fet
Ég ligg hérna uppi í sófanum og
ég vil helst ekki fara út. Ég er að
vísu kominn á fætur og búinn að
éta brauðsneið með rúllupylsu en
neskaffið var búið. Aldrei man
neinn eftir mér og þó vita allir að
mér finnst neskaffi gott á morgn-
ana.
Svo ætlaði ég að fara í úlpuna
og setja upphúfu en ég hætti við.
Og hérna ligg ég eins og hver
önnur skáldsagnapersóna og læt
mig dreyma.
Eg vil ekki fara út fyrir hússins
dyr, af því þá verð ég blautur í
rigningunni og allir þessir bílar
eru vísir til að sletta á mig og blása
framan í mig eiturgufum. Ég vil
ekki vera eins og hver annar
skógur í Þýskalandi sem missir
allt laufið og er bráðum dauður.
Og þó hann stytti upp. Þá yrði
ég að halda áfram og fara í vinn-
una. Og þar fær maður aldrei
nokkurn stundlegan frið. Alltaf
eitthvert fólk að hringja og spyrja
hvað við ætlum að gera fyrir það.
Ég er sjómaður og kannski verð-
ur togarinn minn seldur, segir
einn. Hvað ætlarðu að gera í því?
Ég veit ekki hvað ég á að segja,
en segi samt, að þetta sé alvarlegt
mál. Vissulega. Já, en veistu ekki
maður, segir hann, að þetta er
allt vegna þess að hagfræðingarn-
ir ráðlögðu útgerðinni að taka
dollaralán? Svo hefur dollarinn
hækkað eins og andskotinn upp
úr öllu valdi. Og skuldirnar marg-
faldast eftir því.
Þetta eru líklega skammsýnir
menn, sagði ég.
Skammsýnir? Svona menn á að
skjóta. Af hverju gátu þeir ekki
tekið lánin í pundum?
Það hefðu þeir náttúrlega átt
að gera, sagði ég.
Sagði ég ekki, sagði sjómaður-
inn.
Mér þótti leiðinlegt að gera
ekkert gert fyrir manninn. Og ég
er svo hræddur um að hann hringi
aftur. Eða þá verkfallsmenn úr
Grindavík og fiskvinnslukonur úr
Vestmannaeyjum. Allt hefur
þetta fólk rétt fyrir sér en ég get
ekkert sagt við það af viti. Þannig
er það, því miður.
Og ef ég sneiddi nú framhjá
vinnunni og skokkaði í sund-
laugarnar og settist þar í heitan
pott, haldiði að ég fengi að vera í
friði? Öðru nær. Þar væru sjálf-
sagt komnir einhverjir ábúðarm-
iklir karlar og það er alveg víst að
þeir væru að skammast út í
heimtufrekjuna í fólkinu. Þeir
verða æfir út í kennara. Þetta
fólk, segja þeir, það gerir svo sem
ekki neitt á sumrin og alltaf fer
krökkunum aftur. Ég held, segja
þeir, það megi þakka fyrir að það
er bara ekki rekið.
Og af því ég þekki fullt af kenn-
urum þá verð ég áreiðanlega
reiður. En hvað á ég að gera? Á
ég að fara að rífast við þessa há-
karla? Á ég að kaffæra þá þegar
við förum að synda? Nei það er
víst ekki hægt, þetta eru stórir
menn og sterkir og hafa hátt.
Ég fer ekki fet.
Ég ætla að liggja hérna í sófan-
um og gera ekki neitt, því að sá
sem ekkert gerir hann verður
ekki sakaður um neitt. Þarna
liggur hann og blakar ekki auga
og sálarróin breiðist yfir hann
eins og dúnsæng. Hann lætur sig
dreyma um einhvern undarlegan
galdur sem hann einn kann, hann
einn kann að beisla hugarorkuna
og leysa úr læðingi allskyns krafta
sem snúa öllu við, skekja allt upp
af rót og kippa öllu í lag einhvers-
staðar handan sólarlagsins þar
sem engin verðbólga er og enginn
skuldar neitt og það er leikur að
læra og enginn sími hringir, nei
aldrei.
Hilmar
ALPÝÐUBANDALAGK)
Þingmannafundir Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjör-
dæmi
Lyftum lífskjörum á ný
Keflavík - Kópavogur - Grindavík - Mosfellssveit.
Þingmenn og varaþingmenn Alþýðubandalagsins halda oþna fundi í Kefla-
vík, Kópavogi, Mosfellssveit og Grindavíkdagana 5.-7. mars og heimsaekja
vinnustaði á áðurgreindum stöðum og víðar í Reykjaneskjördæmi. Á fund-
unum verða haldin stutt framsöguávörp og flutt lokaorð, en að öðru leyti
verður fundartímanum varið í skoðanaskipti milli fundarmanna og þing-
manna. Hér gefst óvenjulegt tækifæri til þess að kynnast afstöðu þingflokks
Alþýðubandalagsins til stjórnmála líðandi stundar og koma á framfæri
ábendingum um mál og málatilbúnað á Alþingi.
Þriðjudagur 5. mars: Stapi í Ytri-Njarðvík
Þingmenn Alþýðubandalagsins halda oþinn fund í Stapa, Ytri-Njarðvík, kl.
20.30 þriðjudaginn 5. mars.
Fundarstjóri: Hilmar Ingólfsson formaður kjördæmisráðs.
Þingmennirnir og varaþingmennirnir Elsa Kristjánsdóttir, Geir Gunnars-
son, Guðmundur J. Guömundsson, Margrét Frímannsdóttir, Skúli Alex-
andersson og Svavar Gestsson sitja fyrir svörum.
Miðvikudagur 6. mars.: Þinghóil í Kópavogi
Þingmenn Alþýðubandalagsins halda opinn fund í Þinghóli, Hamraborg 11,
í Kóþavogi kl. 20.30 miðvikudaginn 6. mars.
Fundarstjóri: Hilmar Ingólfsson formaður kjördæmisráðs.
Þingmennirnir og varaþingmennirnir Geir Gunnarsson, Guðrún Hallgríms-
dóttir, Helgi Seljan, Ragnar Arnalds, Steingrímur J. Sigfússon og Svavar
Gestsson sitja fyrir svörum.
Fimmtudagur 7. mars: Sjómannastofunni í
Grindavík
Þingmenn Alþýðubandalagsins halda opinn fund í Sjómannastofunni í
Grindavík kl. 20.30 fimmtudaginn 7. mars.
Fundarstjóri: Hilmar Ingólfsson formaður kjördæmisráðs.
Þingmennirnir og varaþingmennirnir Geir Gunnarsson, Garðar Sigurðs-
son, Guðmundyr J. Guðmundsson, Margrét Frímannsdóttir, Skúli Alex-
andersson og Svavar Gestsson sitja fyrir svörum.
Fimmtudagurinn 7. mars: Hlégarður, Mos-
fellssveit.
Þingmenn Alþýðubandalagsins halda opinn fund í Hlégarði Mosfellssveit
kl. 20.30 fimmtudaginn 7. mars.
Fundarstjóri: Kristbjörn Árnason húsgagnasmiður.
Þingmennirnir og varaþingmennirnir Elsa Kristjánsdóttir, Helgi Seljan,
Ragnar Arnalds og Steingrímur J. Sigfússon sitja fyrir svörum.
Alþýðubandalagsfélag Ólafsvíkur
boðar til fundar um atvinnu- og efnahagsmál n.k. sunnudag 3.
mars.
Fundarstaður: Mettubúð.
Fundartími: 20.30
Framsögumaður verður Ingi Hans Jónsson. Stjórnin
AB konur-kvennafylkingin
8. mars
Áríðandi fundur um 8. mars kl. 11 í dag 2. mars að Hverfisgötu 105.
-Miðstöð
Kvennastefna
9. og 10. mars
Konur í Alþýðubandalaginu gangast fyrir kvennastefnu í Ölfus-
borgum 9. og 10. mars.
Dagskrá:
1. Atvinnu- og kjaramál
2. Staða heimavinnandi fólks
3. Baráttuleiðir kvenna
4. Störf kvenna í AB - Kvennafylkingin - Fundaröð í vor.
(Sjá nánar um dagskrána í Þjóðviljanum 19. febrúar).
Kvennastefnan er opin öllum konum í Alþýðubandalaginu og öðr-
um stuðningskonum flokksins.
Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast skrifstofu flokksins
Hverfisgötu 105 (sími 17500) fyrir 1 mars.
Þær sem hafa í huga að taka börn með eru beðnar að taka það
fram við þátttökutilkynningar.
Nánari upplýsingar um kostnað o.fl. á skrifstofunni.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Bingó! - Bingó!
Tilbreyting frá hversdagsleikanum. Æskulýðsfylkingin heldur
bingó á þriðjudaginn kemur, 5. mars kl. 20.30 stundvíslega að
Hverfisgötu 105. Margt glæsilegra bingóvinninga. Bingógosið og
bingókaffið verður að sjálfsögðu á boðstólum. Allir bingóaðdáend-
ur og aðrir velkunnarar velkomnir.
Bingó-nefnd Æskulýðsfylkingarinnar.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
íslenskt kvöld
verðurhaldiðí Þinghóli Hamra-
borg 11 laugardagskvöldið 9.
mars nk. og hefst það kl. 20.00
með íslenskum mat (þorramat).
Hákarl og tilheyrandi fæst fyrir þá
sem vilja. Maturinn kostar 250 kr.
en annar aðgangseyrir er ekki.
Dagskrá:
1) Gils Guðmundsson les upp.
2) MKkvartettinnsyngur.
3) Páll Bergþórsson les kvæði
eftir Guðmund Böðvarsson
4) GunnarGuttormssonog
Sigrún Jóhannsdóttir flytja
nokkrarsöngvísur.
5) Sveinbjörn Beinteinsson
spjallar um ásatrú og kveð-
urrímur.
Matargestir þurfa að panta í sím-
um 45306 (Friðgeir) 40163 (Sig-
urður) eða 43294 (Sigurður
Hjartarson) fyrirfimmtudags-
kvöldið 7. mars.
Hittumst hress og eflum þjóðern-
ið! Allir velkomnir!
Stjórn ABK
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN I Sunnudagur 3. mars 1985