Þjóðviljinn - 03.03.1985, Page 20

Þjóðviljinn - 03.03.1985, Page 20
Churchill og vindillinn Fyrir skömmu var sovésk sendinefnd í viðskiptaheim- sókn í Lundúnum og hélt meðal annars lítið sam- kvæmi. Þangað var boðið þingmanninum Winston Churchill, dóttursyni gamla Churchill sem frægur var fyrir vindilinn sinn. Churchill yngri hóf sem vænta mátti djúpar samræöur við Rússana og annað veifið stakk hann upp í sig saltstöngum sem voru í skál við hlið hans. í hita sam- ræðnanna greip hann annars hugar ofan í öskubakka og stakk óvart upp í sig hrúgu af vindlastubbum. Nú var úr vöndu að ráða. Enginn virtist hafa tekið eftir þessu. Hinn snarráði Churc- hill sá fram á, að spýtti hann stubbunum út úr sér myndi gestgjöfunum stórum mislíka og taka sem grófa móðgun við sig og bisnessinn fjúka. Svo hann ákvað bara aö bíta á jaxlinn og tyggja stubbana og kyngja. Sem hann gerði með miklum herkjum og drjúgum viskídrukk. Þegar því var loksins lokið án þess að nokkur tæki eftir, að Churchill hélt, tók hann eftir því að þing- maður úr Verkamannaflokkn- um sat til hliðar og horfði á hann með miklum hrolli. Sá teygði sig loks yfir borðið og sagði með viðbjóði í rómnum: „Þennan viðbjóð hefurðu ábyggilega lært af afa þín- um“. ■ Komiði sæl Margir íþróttamenn vilja feta í fótspor Sigurðar Sigurðs- sonar og Ragnars Arnar Pét- urssonar sem nú ætla að opna veitingastað í Keflavík. Þeir sem sóttu um starfið hjá útvarpinu eru m.a.: Hörður Hilmarsson íþróttablaðið - (Frjálst framtak), Samúel Örn Erlingsson (NT - er yfir íþr.deild), Skúli Sveinsson (afleysingamaður í íþr. Mbl.), Ingólfur Hannesson (Sjón- varp), Þorsteinn Sívertsen (Útvarp - afleysingamaður). Einsog í Kína Þegar fjórmenningaklíkan í Kína féll í ónáð voru þau þurrkuð út af mörgum opin- berum myndum. Þessi aðferð þekkist víðar úr alræðisríkjum og flestir muna svipaða til- hneigingu úr skáldsögu Orw- ells 1984. Leslie H. Gelbs sérfræðing- ur New York Times í hernað- armálefnum má njóta hlið- staeðrar meðferðar í því landi sem kennir sig oftast við „lýð- ræði og frelsi". Hann var áður háttsettur embættismaður í utanríkisráðuneyti Carters og því var stór Ijósmynd af hon- um á tilheyrandi stað í ráðu- neytinu. DV gerir grein fyrir því í gær, að myndin af honum hafi verið fjarlægð og skrifað í rammann að það hafi verið gert „af ástæðu". Viðurkennt hefur verið á æðstu stöðum að ástæðan sé sú að hann hafi skrifað grein um kjarn- orkuvopnaáform Bandaríkja- stjórnar á íslandi og víðar um heiminn. Ástæðan: greinar- skrifin eru sögð hafa verið „skaðleg öryggi ríkisins", en það er alþjóðleg framsetning á upplýsingamiðlun sem kemur sér ekki vel fyrir vald- hafa. En það er fróðlegt fyrir íslenska vígbúnaðarsinna að skoða þessi viðbrögð Reagan stjórnarinnar. ■ í dag, laugardag kl. 11:30 setjum viö nokkra kassa fulla af gimtlegum bókum undir hamarinn. Uppboðshaldari verður Hjalti Rögnvaldsson, leikari Bókamarkaðurinn er í fullum gangi á öllum hæðum. íslenskar og erlendar bækur á gjafverði. Opið til kl. 16:00 Bókaveisla fjölskyldunnar Bókabúð LMÁLS & MENNINGAFL LAUGAVEG118-108 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240 - 24242 VERÐTRYCGÐUR i vaxtareikningu ávaxtar fé þitt á arðbæran hátt Betri kjör bjóðast varla Samvinnubankinn Hiólastólarall í Laugardalshöll 36 þekktir stjórnmálamenn, íþróttamenn og hjólastólanotendur keppa á stórkostlegu hjólastólaralH, sem Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, stendur fyrir í tilefni 25 ára afmælis síns, í Laugardalshöll sunnudaginn 3. mars. Keppnin verður sett kl. 14:00 en Lúðrasveitin Svanur mun leika frá kl. 13:30. Á miHi umferða verður sýndur breakdans, Rúrik Vignir Albertsson og fél., Þjóðlágakvartettinn Frost syngur. Sjálfsbjörg landsaamfcanrt fadaðm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.