Þjóðviljinn - 10.03.1985, Blaðsíða 9
Reimleikar ◦
prestssetrinu
Reimleikar eru ekki með ölhi af
lagðir í Svíþjóð. Eða svo segir að
minnsta kosti séra Bengt Rand-
olfsson, sem er sóknarprestur í
bænum Hjertsberga. Eða réttara
sagt var hann prestur þar: nú hef-
ur hann yfirgefið brauð sitt vegna
draugagangs á prestssetrinu.
Prestur kveðst hafa þolað við í
þrjá mánuði. Hann varð þó að
halda draugunum niðri með því
móti að ganga í fullum skrúða um
húsið og lesa trúarjátninguna í
hverju herbergi. Ef hann hætti
því fór dyrabjallan að hringja án
þess að nokkur stæði úti fyrir dyr-
um, ósýnilegar verur sneru hurð-
arhúnum og létu hringla í lyklum
og þar að auki heyrði klerkur
þung skref ofan af mannauðri efri
hæð hússins. Hundar prestsins
ruku einatt upp með hárin út í
loftið og hestar eru sagðir hafa
forðast prestsetrið sem mest þeir
máttu.
Tæknimenn sem skoðuðu hús-
ið, en það er byggt árið 1930, gátu
Séra Bengt og draugahúsið hans.
enga skýringu fundið á ósköpum draugaleit með myndavélar og an var reyndar ónýt þegar til átti
þessum. Sænska sjónvarpið fór í hljóðnema en fann ekkert. Film- aQ taka. -áb
Kynsvall
?9
njosnir
Ein útskýringin á njósnaferli
Arne Treholts hins norska er sú,
eins og fram kemur í fréttum vik-
unnar, að hann hafi lent í svalli
með kvenfólki í Moskvu og þá
hafi verið teknar af honum mynd-
ir. Og eins og gerist í reyfurum og
veruleika, þá hafi myndirnar síð-
an veríð notaðar til að gera hann
þægari við leynUögregluna KGB.
I þessu tilefni skal rifjuð upp
sönn saga af finnskum iðjuhöidi
sem átti viðskiptaerindi til Mos-
kvu. Karl þessi lenti á kvennafari
í ferðinni. Skömmu eftir að hann
kom heim til Helsinki ber einhver
KGB-maður upp á hjá honum og
sýnir myndir af Finnanum á
kvennafarinu.
Sá finnski brást mjög glaður
við.
Ég ætla að fá fjórar af þessum,
sagði hann. Og sex af þessum
hér. Ég má til með að sýna vinum
mínum að ég er enginn aumingi,
þótt ég sé hátt á sextugsaldri....
Ádegi hverjum eru framin yfir40
ofbeldisverk í neðanjarðarbrautum
NewYork
Bandaríkin
þegar spurt er hvort þú viljir nótu
- það er öruggara
Óhugn-
anlegur
fjöldi
ofbeldis-
verka
Á ári hverju eru framin 23 þús-
und morð í Bandaríkjunum. Ein-
ungis í neðanjarðarbrautum í
New York voru framin 14.500 of-
beldisverk, sem þýðir að fleiri en
40 ofbeldisverk hafi verið framin
þar á degi hverjum.
í Bandaríkjunum eru framin
14 sinnum fleiri morð en í Frakk-
landi miðað við fólksfjölda, 46
sinnum fleiri í New York. Það er
einnig haft til marks um ofbeldið,
að árið 1971 sem var hið blóðug-
usta í sögu norður-írsku borgar-
astyrjaldarinnar, voru framin
fleiri morð í Bandaríkjunum en á
írlandi miðað við fólksfjölda.
Það er freistandi að segja nei, þegar þér stendur til boða ríflegur afsláttur.
En nótulaus viðskipti geta komið þér í koll. Sá sem býður slíkt er um leið
að firra sig ábyrgð á unnu verki.
Samkvæmt lögum og reglugerðum um
söluskatt og bókhald er öllum þeim sem
selja vöru og þjónustu skylt að gefa út
reikninga vegna viðskiptanna. Reikningar
eiga að vera tölusettir fyrirfram og kaupandi
á að fá eitt eintak. Sé um söluskattsskylda
vöru eða þjónustu að ræða á það að koma
greinilega fram á reikningi.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYUÐ
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 9
Auglýsingaþjónustan