Þjóðviljinn - 10.03.1985, Qupperneq 20
Kostakaup
Notaður gervihnöttur til sölu
Síðar á þessu ári verður í fyrsta
sinn í sögunni hægt að kaupa not-
aðan gervihnött - fyrir 30 miljón-
ir sterlingspunda!
Þessi kostakaup standa til boða
vegna þess að í febrúar síð-
astliðnum urðu mistök því vald-
andi að tveir gervihnettir sem
geimskutlan Challenger flutti út í
geiminn töpuðust. Þetta voru
hnettirnir Palapa B og Westar 6,
sem áttu báðir að sinna fjarskipt-
um.
Ekki er vitað hvað olli því að
þeir hurfu á braut þegar þeim var
skotið frá geimskutlunni. Um
nokkra hríð var óttast að þeir
væru tapaðir að fullu, þar sem
ekki tókst að staðsetja þá í
geimnum í nánd við jörðu. Um
síðir tókst það þó, og þeir voru
ekki það fjarri móður jörð að
björgun væri óhugsandi fengist
önnur geimskutla til fararinnar.
Tryggingarfélög hafa þegar
borgað yfir 140 miljón pund til
eigenda gervihnattanna tveggja,
sem voru Westem Union er átti
Westar og indónesíska ríkis-
stjórnin, sem átti Palapa B.
Eigendumir hafa jafnframt skrif-
að undir skjal þar sem þeir afsala
sér öllu tilkalli til gervihnattanna.
-ÖS
Hér hefur gerst mikil tónlistarsaga
Dresdenóperan
endurbyggð
Fjörutíu árum eftir loftárásirnar miklu
Nú I febrúar, fjörutíu árum
eftir loftárásirnar miklu á Dres-
den, sem lögðu borgina í rúst,
gerðist sá menningaratburður að
lokið var við að endurbyggja
Samperóperuna, eitt frægasta óp-
eruhús álfunnar. Þegar húsið var
opnað á ný var flutt þar ópera
Webers, Der Freischiitz, sem var
einmitt samin í Dresden, en þar
starfaði Weber á sínum tíma.
Samperóperan var hirðópera
konungsins af Saxlandi og er
kennd við byggingarmeistarann
Gottfried Samper. Húsið var
tekið í notkun árið 1841. Það
varð snemma frægt, ekki síst
vegna þess að vinur Sampers,
Richard Wagner, fékk þar inni
með fyrstu óperur sínar - þar
vom Rienzi, Hollendingurinn
fljúgandi og Tannháuser frum-
fluttar á ámnum 1842-1845. Þeg-
ar byltingin 1848 kom til Saxlands
lentu þeir báðir á götuvígjunum
Samper og Wagner og urðu að
flýja land. Engu að síður fékk
Samper það verkefni síðar að
endurbyggja ópemna, sem hafði
bmnnið árið 1869.
Samperóperan starfaði svo aft-
ur frá 1878 til 1944, en 31. ágúst
það ár var sýningum hætt í öllum
óperuhúsum Hitlers-Þýskalands.
Operuhúsið var svo skotið í rúst í
loftárásunum miklu í febrúar
1945. Stjórnvöld í Þýska alþýðu-
veldinu hafa lengi áformað að
endurreisa húsið. Um tíma var
deilt um það, hvort líkja ætti eftir
því húsi sem var, og varð sú
stefna ofan á.
Endurbyggingin er talin hafa
tekist mjög vel. -áb
Glæsilegu
belgtsku
svefnherbergis-
húsgögnin
úr kirsu-
berjaviði
nýkomin aftur.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Sími 1
i nn
Húsgagnadeild
— Sími 28601
BEINT FLUG I SOLSKINIÐ
Benidorm er á Costa Blanca ströndinni — ströndinni
hvítu — sem telst vera besta baðströnd Spánar.
Strendurnar eru hreinar, sandurinn hvítur, sjórinn
tær og hér er sólrikasti staður landsins.
Benidorm er fiskimannabær með hvítkölkuð hús
uppi við fjallshlíðarnar — og nútíma ferðamannabær
með breiðgötum, nýtísku verslunum, veitinga- og
gistihúsum.
Eins og alþjóðlegum ferðamannastað sæmir hefur
staðurinn úrval næturklúbba og veitingahúsa, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Hér geta lífsglaðir landar — á öllum aldri — notið lífsins og látið drauminn um vel
heppnað frí rætast. Það segir hreint ekki svo lítið, að Beni-
dorm er vinsælasti ferðamannastaður Spánverja sjálfra.
A vorin leggur ilminn af sítrusávöxtum og blómstrandi
trjám yfir allt, sumarið er eitt hið sólríkasta í Evrópu.
haustið langt og hlýtt.
Benidorm liggur 60 km norður af Alicante og í 140 km
fjarlægð frá Valencia, á þrjár hliðar umlukt fjallahring. Því
er auðvelt að leita á náðir gamla tímans og kynnast hjarta
landsins.
Margir láta sér nægja að liggja flatir í sandinum og baða sig í bláu Miðjarðarhafinu. Aðrir
smella sér í golf (tveir golfvellir í nágrenni Benidorm), minigolf, tennis, keiluspil, leigja sér
hjól eða fá sér göngu upp í hæðirnar fyrir ofan borgina og njóta kyrrðarinnar
Ef þú ert feiminn við sólarlandaferð, farðu þá til Benidorm!
Brottfarardagar: 3/4, 17/4, 8/5, 29/5, 19/6, 10/7, 31/7, 21/8, 11/9, og 2/10.
Gisting í íbúðum eða hótelum-, með eða án fæðis. Ath: Beint dagflug
BENIDORM-STRÖNDIN HVÍTA
FERÐAMIÐSTÖDIN
AÐALSTRÆTI 9
SÍMI28133