Þjóðviljinn - 05.05.1985, Page 5

Þjóðviljinn - 05.05.1985, Page 5
Malasía vill margfalda íbúatöluna íbúar Malasíu eru nú um 15 miljónir, en stjórnvöld vilja að fólkinu fjölgi sem mest. Þau láta sig dreyma um að Malasía verði minniháttar stórveldi með um 70 miljónum íbúa um aldamót. Þetta vekur nokkra furðu þeg- ar tekið er mið af því, að í öllum nágrannaríkjunum - Indónesíu og Thailandi, að ekki sé talað um Indland og Kína, - er mjög kvart- að yfir offjölgun og stjórnvöld hafa í þessum löndum - með mis- jöfnum árangri að vísu, - reynt að takmarka barnaeignir með ýms- um ráðum. Áform stjórnvalda í Malasíu um að ýta undir fólksfjölgun eru mjög tengd því, að þau vilja stækka innanlandsmarkaðinn. Auk þess er Malasía um margt betur sett með náttúruauðæfi enn grannlöndin. Landið er einn helsti útflytjandi gúmís, pálma- olíu, tins, eðalviðar og pipars í heiminum. Malasía er einnig far- in að flytja út olíu og jarðgas. Þjóðartekjur á mann eru þar um það bil 2000 dollarar eða helm- ingi meiri en á Filipseyjum og í Thailandi, svo dæmi séu nefnd. Malasíumenn eru að velta fyrir sér á hvaða sviði nútíma iðnaðar þeir eigi að sérhæfa sig og eru m.a. að velta fyrir sér bflafram- leiðslu í samvinnu við Japani. Fólksfjölgunin er mikil í landinu sem stendur. En ráðherr- Rokkhjartað: Monaco í sumar Samtök áhugaleikfélaga halda leiklistarhátíð í Monaco um mán- aðamótin ágúst/sept. Fulltrúi ís- lands á þessari hátíð verður Leikfélag Hafnarfjarðar með söngleikinn „Rokkhjartað slær“. Á hátíðinni leikur hver hópur á sínu móðurmáli og er því mikil- vægt að áhersla sé lögð á sjónræn- an þátt sýningarinnar og ekki spillir að tónlistin skipi veiga- mikinn sess. Sigrún Valbergs- dóttir formaður BÍL segir að Rokkhjartað uppfylli svo sannar- lega þessar óskir, „það slær á máli sem allir skilja, um leið og það lýsir því hvernig alþjóðlegt „fár“ ryðst inn í menningarheim lítillar þjóðar og tekur þar völdin um stund". Rokkhjartað hefur verið sýnt tíu sinnum í Bæjarbíói Hafnar- fjarðar við góðar undirtektir áhorfenda. 11. sýning verður í kvöld, föstudag, og 12. sýning á morgun. Sýningar hefjast kl. 20.30. Miðapantanir allan sólar- hringinn í síma 50184. ar vita líka, að með aukinni vel- megun dregur úr barnaeignum vegna þeirrar þægindasóknar sem henni fylgir. Kannski verð- um við aldrei 70 miljónir, segir einn af embættismönnum stjóm- arinnar og dæsir við.... Fjölskylda í Malasíu: barnafjöldinn á að standa undir efnahagsundri. Kringlóttar kinnar Feitar kringlóttar kinnar smá- barna eru vegna fitulags sem full- orðnir hafa ekki í sínum kroppi. Þetta fitulag hefur m.a. þann til- gang að halda kinnunum þannig að þegar smábörnin sjúga falli kinnarnar ekki inn og loki fyrir mjólkina, þegar barnið drekkur. MÍR minnist stríðsloka Á morgun sunnudag, kl. 15, efnir MÍR til samkomu og tón- leika í Gamla bíói þar sem þess verður minnst að rétt 40 ár eru liðin frá því herir þýsku nasist- anna gáfust upp í síðari heimsstyrjöldinni. Þar verða fyrst flutt tvö ávörp: Évgení Kosarév sendiherra So- vétríkjanna á íslandi og Margrét Guðnadóttir prófessor. Síðan verða tónleikar sovésku þjóð- lagasöngkonunnar Ljúdmflu Zykinu og hljómsveitarinnar Rossía undir stjórn Viktors Gri- din. Listafólkið hefur dvalið hér á landi undanfarna daga og haldið tónleika í Reykjavík og á Norður- og Austurlandi en þetta verða síðustu tónleikar þess. * Mjólk: Nýmjólk, létfmjólk eða undanrenna Á meðgöngutfmanum er konum ráðlagt að bœta við sig um það bil 400 mg viðbótarskammti af kalki á dag. Pessari auknu þörf verður móðirin að mœta með aukinni kalkneyslu. Það er því mikilvœgt að móðirin drekki hœfilega mikið af mjólkurdrykkjum fyrir sjálfa sig og barnið sem hún fœðir. Afleiðingar kalkskorts geta valdið beinþynningu eftir að miðjum aldri er náð: stökkum beinum, sem gróa illa eða skakkt saman og getur það bitnað illilegga á útliti fólks. Lágmarkskalkskammtur fyrir ófrískar konur og brjóstmœður samsvarar þremur mjólkurglösum á dag. Neysla mjólkureráreiðanlega einhversú besta leið sem til er til þess að tryggja líkamanum nœgilegt kalkmagn og vinna þannig gegn beinþynningu og afleiðingum hennar. 9 Mjólk í hvert mál Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur af kalki f mg Samsvarandi kalk- skammtur í mjólkur- glösum (2,5 dl glös)* Lágmarks- skammturf mjólkurglösum (2,5 dl glös)** Börn l-10ára 800 3 2 Unglingar 11 -18 ára 1200 4 3 Ungt fólk og fullorðið 800*" 3 2 Öfrfskarkonurog 1200"" 4 3 . tnv:v MJÓLKURDAGSNEFND * Hór ©r gert ráð fyrir að allur dagskammturinn af kalki komi úr mjólk. “Að sjálfsögðu ©r mágulegt að fá altt kalk s©m likaminn þarf úr öðrum matvœlum ©n mjólkurmat ©n slíkt krefst nákvœmrar þekkingar á nœringarfrœði. Hér ©r miðað vlð neysluvenjur ©ins og þœr tíðkast í dag hér á landi. ***Margir sórfrœðingar telja nú að kalkþörf kvenna ©ftir tíðahvörf só mun meiri ©ða 1200-1500 mg á dag. ****Nýjustu staðlar fyrir RDS f Bandaríkjunum gera ráð fyrir 1200 til 1600 mg á dag fyrir þennan hóp. Mjólk inniheldur meira kalk en nœr allar aðrar fœðutegundir og auk þess B-vftamln, A-vítamln, kalíum, magníum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar líkaminn fil ^l^pijj^^^varíar og viðhalds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst líkamsvókvum. holdvefjum og frumuhimnum, og er það . nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrótt, . % hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af . /jHKHCI ýmsum efnaskiptahvötum. Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vítamín, sem hann fœr m.a. með sólböðum og úr ýmsum fœðutegundum, t.d. lýsi. Neysla annarra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Úr mjólkurmat fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk. ’JÓNUSTAN - MJÓLK EB GÓÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.