Þjóðviljinn - 05.05.1985, Qupperneq 13
Tilboð óskast í prentun kennslubóka fyrir Námsgagnastofnun. Ut-
boðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11:00 f.h. 15. maí nk..
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Sjúkrahúsið
Patreksfirði
óskar að ráða hjúkrunarfræðing og sjúkraliða til starfa
sem fyrst eða eftir samkomulagi. Einnig vantar hjúkr-
unarfræðing og Ijósmóður til sumarafleysinga. Gott
húsnæði fyrir hendi. Nánari upplýsingar veitir Sigríður
Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 94-1110 eða 94-
1386.
Bæjarritari
Staða bæjarritara hjá Ólafsvíkurkaupstað er laus til
umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi við-
skiptamenntun og/eða starfsreynslu á sviði viðskipta.
Laun samkvæmt B.S.R.B.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 1985.
Bæjarstjórinn í Ólafsvík.
Útboð
Tilboð óskast í jarðvegsskipti og endurnýjun holræsa
og vatnslagna í eftirtöldum götum sumarið 1985.
a) Lækjargötu, 170 metrar.
b) Brekkugötu, 230 metrar.
c) Höfðabraut, 120 metrar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hvammstanga-
hrepps gegn 1000 kr. skilatryggingu og þangað ber að
skila tilboðum fyrir kl. 11 þann 15. maí n.k., en þá
verða tilboðin opnuð.
Tæknifræðingur Hvammstangahrepps.
Fóstrur - kennarar
Forstöðumann vantar að leikskóla Hvammstanga.
Umsóknarfrestur til 20. maí n.k.
Einnig vantar kennara til starfa við Grunnskóla
Hvammstanga næsta vetur.
Nánari upplýsingaráskrifstofu Hvammstangahrepps,
sími 95-1353.
Sveitarstjóri Hvammstangahrepps.
Sementsverksmiðja
ríkisins
Sementsafgreiðsla
Frá og með mánudeginum 6. maí 1985, verður sekkj-
að sement eingöngu selt á brettum (minnst 2 tonn) hjá
afgreiðslu verksmiðjunnar að Sævarhöfða 11, 110
Reykjavík.
Frá sama tíma verður hægt að kaupa sekkjað sement
á höfuðborgarsvæðinu hjá eftirtöldum aðilum:
BYKO Skemmuvegi 2, 200 Kópavogi sími 41000/
41849
BYKO Dalshrauni 15, 220 Hafnarfirði sími 54411
Dvergur h/f Flatahrauni, 220 Hafnarfirði sími 50170
Fínpússning s/f Dugguvogi 6,104 Reykjavík sími 32500
JL byggingarvörur h/f
Hringbraut 120, 107 RVK sími 28600
JL byggingarvörur h/f v/Stórhöfða, 110 RVK sími 671102
Sambandið-byggingarvörur
Suðurlandsbr. 32,105 RVK sími 82033
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS
SÖLUDEILD SÆVARHÖFÐA 11
110 REYKJAVlK - SlMI 83400
Svefnlyf
Uridin er máske svefnlyf sem
líkaminn framleiðir sjálfur. Til-
raunarottur hafa verið látnar
vaka von úr viti og kemur þá í ljós
að þær framleiða uridin í nokkr-
um mæli. Hins vegar sofna rottur
að bragði þegar þær hafa verið
látnar eta efnið. Efnið hefur ekki
verið reynt á mönnum.
Lífslíkurnar
meirl
13% karla í Bandaríkjunum
sem búa með konum, sem eru
yngri en þeir sjálfir lifa lengur en
meðaltalið. Á hinn bóginn deyja
20% þeirra sem búa með konum
sem eru eldri en karlar þeirra fyrr
en meðal bandaríkjamaðurinn.
Svo er að sjá af tölfræðinni, að
konur veiti lífskrafti sínum yfir til
karlanna, því ógiftar konur lifa
mun lengur en giftar.
Húsnseóisstofnuii ríkisins
Tæknideild Laugavegi 77 R S/rni 28500
Útboó
Eyrarbakkahreppur
Stjórn verkamannabústaða, Eyrarbakkahreppi, óskar
eftir tilboðum í byggingu tveggja einbýlishúsa 65 m2,
324 m3.
Húsin verða byggð við Túngötu, Eyrarbakka, og skal
skila fullfrágengnum 31. okt. 1986.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrifstofu
Eyrarbakkahrepps og hjá tæknideild Húsnæðisstofn-
unar ríkisins frá þriðjudeginum 7. maí nk., gegn kr.
10.000.- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði, eigi síðar en mið-
vikudaginn 29. maí nk. kl. 11 og verða þau opnuð af
viðstöddum bjóðendum.
F.h. Stjórnar verkamannabústaða,
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
NYJUNG
oc ALFA-LAVAL
VARMASKIPTAR
Á undanförnum áratugum hafa
ALFA LAVAL varmaskiptar sann-
að ágæti sitt á hitaveitusvæðum
um land allt.
Nú hefur ALFA LAVAL hafið framleiðslu á
nýrri tegund af varmaskiptum af gerðinni CB-12
og CB-25. Hitarar þessir henta í mörgum til-
fellum betur en hinir viðurkenndu PL-01 varma-
skiptar, auk þess að vera hagkvæmari í verði.
Sem fyrr bjóðum við upp á hina viður-
kenndu PL-01 og PL-22 plötuvarma-
skipta frá ALFA LAVAL með stuttum
fyrirvara.
Helstu kosti ALFA-LAVAL varmaskipta:
• Þeir eru virkir og einfaldir
• Plöturnar úr ryðfríu stáli sem tærast
ekki við öll venjuleg skilyrði
• Þrýstiþol mikið
• Þeir taka lítið pláss
• Nýtingin mjög góð
Við veitum allar tæknilegar upplýs-
ingar, svo og hvers konar upplýsingar
aðrar um ALFA-LAVAL varmaskipt-
ana.
LANDSSMIÐJAN HF.
SÖLVHÓLSGÖTU 13-101 REYKJAVÍK
SÍMI (91) 20680 - TELEX 2207 GWORKS