Þjóðviljinn - 05.05.1985, Page 14
Auglýsing frá
ríkisskattstjóra
Athygli framteljenda, sem stunduðu sjómannsstörf á
árinu 1984, er vakin á því að með II. kafla laga nr.
9/1985 um breytingu á lögum nr. 75/1981 um tekju-
skatt og eignarskatt hafa eftirfarandi breytingar verið
gerðar er varða frádrátt frá tekjum sjómanna:
1. Samkvæmt 4. gr. laganna:
Þeir sem stunduðu sjómannsstörf á árinu 1984 og
lögskráðir voru á skipum sem skráð eru erlendis en
gerð eru út af íslenskum skipafélögum fá nú sjó-
mannafrádrátt að fjárhæð 180 kr. fyrir hvern
lögskráðan dag sem þeir teljast stunda sjó-
mannsstörf. Frádráttarfjárhæð skal færa í reit 48 á
skattframtali.
2. Samkvæmt 5. gr. laganna:
2.1. Þeir sem höfðu á árinu 1984 beinar tekjur af
fiskveiðum á íslenskum fiskiskipum fá nú 12%
frádrátt frá þessum tekjum í stað 10% áður.
Frádráttarfjárhæð færist í reit 49 á skattfram-
tali.
2.2. Þeir sem höfðu laun á árinu 1984 vegna sjó-
mannsstarfa um borð í farmskipum, farþega-
skipum, rannsóknarskipum, varðskipum,
björgunarskipum og sanddæluskipum eiga nú
rétt á 12% frádrætti frá þessum tekjum. Frá-
dráttarfjárhæð skal færa í reit 49 á skattfram-
tali.
Skattstjórar munu breyta og leiðrétta framtöl, að
eigin frumkvæði, þeirra sjómanna sem falla undir
tölulið 2 eftir því sem upplýsingar í framtölunum
gefa tilefni til.
Skorað er á þá sjómenn er telja sig eiga rétt á frádrætti
skv. tl. 1 og jafnframt skv. tl. 2.2. að senda nú þegar til
skattstjóra upplýsingar um lögskráningu sína á erlend
skip, sem gerð voru út af íslenskum skipafélögum á
árinu 1984, ásamt upplýsingum um tekjur af því starfi.
Aðrir sjómenn, sem fall undir tl. 2.2. og telja að upplýs-
ingar á framtali séu ekki fullnægjandi til að skattstjóri
geti réttilega reiknað 12% frádrátt, skulu enn fremur
senda til skattstjóra nauðsynlegar upplýsingar.
Athygli ofangreindra sjómanna er enn fremur vakin á
því að þeir athugi við útkomu álagningarskrár 1985
hvort breyting á framtölum þeirra hafi réttilega verið
gerð við álagningu tekjuskatts.
Reykjavík, 2. maí 1985
Ríkisskattstjóri.
Járniðnaðarmaður
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir að
ráða járniðnaðarmann með suðuréttindi til starfa í
Borgarnesi.
Laun skv. kjarasamningum STAK.
Nánari upplýsingar veitir verkstjóri í síma 93-7675.
Umsóknum skal komið á skrifstofu Hitaveitunnar,
Kirkjubraut 40, Akranesi, fyrir 15. maí n.k.
SÓFINN BiÆLDUR
Meiri maðurinn þessi Jónas frá
Hriflu. Hann var hundrað ára um
daginn og kom þá heldur betur í
Ijós að hann lá ekki kyrr gamli
maðurinn, heldur var á vappi hér
og þar og vakti upp mikla heift í
sumum stöðum en eitthvað sem
kallað væri persónudýrkun í öðr-
um stöðum. Kallað væri segi ég,
ef Stalín karlinn hefði ekki lent í
því sama. Samanburðarfræðin
eru bönnuð eins og menn vita,
sem lesið hafa Morgunblaðið.
Annars áttu þeir Jónas og Stal-
ín ýmislegt sameiginlegt, svona
eins og óvart. Þeir voru til dæmis
báðir að vasast í myndlistum og
höfðu skömm á því sem þeir köll-
uðu klessumálverk. Á gamals
aldri sagði Jónas líka þessa
ódauðlegu setningu um mar-
skálkinn austræna:
Það mátti Stalín þó eiga að
hann lét búa til góðar myndir!
Nei, Jónas lá ekki kyrr. Það var
verið að afhjúpa minnismerki um
hann hér í bænum, sem ég hélt að
hefði staðið fyrir ofan Laugar-
vatn langa lengi. Það var skrifað
um hann í blöðin mjög hátíðlega
og elskulega. En það var líka
haldið áfram að níða karlinn. f
grein í Morgunblaðinu var sagt
að Jónas hafi að sönnu verið
greindur en „innrætinu var nokk-
uð ábótavant". Þar er því líka
haldið fram að Jónas hafi ekki
bara „innleitt hatrið og heiftina
inn í íslensk stjórnmál", hann
hafi meira að segja komið inn
„þeim hugsunarhætti hjá fólki að
það væri ljótt að græða peninga".
Mér, Hilmari, sem er gamall
stofukommi, þótti þetta síð-
astnefnda nokkuð gott og hugs-
aði sem svo: betra að satt væri.
En því miður er þessi uggur
íhaldsmannsins um skaðvænleg
áhrif Hriflu-Jónasar ekki réttur.
íslendingum þykir mjög fallegt
að græða peninga, alveg sama
hvernig það er gert.
Það er líka rangt að Jónas hafi
fundið upp hatrið og heiftina í
íslenskri pólitík. Hann tók þar
við rammri hefð. Og allir döns-
uðu með. Morgunblaðið sagði
svo frá framgöngu Jónasar á
kappræðufundum úti um Iand, að
ekki væri maðurinn aðeins frá-
munalega ljótur heldur og áreið-
anlega undir áhrifum eiturlyfja.
Menn voru að tala um þetta allt
í heitum potti þegar mig bar þar
að vatnsborði. Framsóknar-
mennirnir voru hneykslaðir á
Morgunblaðsgreininni. Þeir voru
ábúðarmiklir og latínulærðir og
vitnuðu í spakmæli: de mortuis
nihil nisi bono - lofaðu dauðan
mann eða haltu kjafti ella!
Óekkí, sagði þriflegur íhalds-
maður og fór ekki ofan af því að
aldrei skyldi hann mæla lofsam-
legt orð um slíkan skálk.
Hann skrifaði eina sæmilega
bók, sagði íhaldsmaðurinn,
kennslubók í dýrafræði. Og það
er engin tilviljun að besti kaflinn í
henni er um rottuna!
Það fer bara enn hrollur um
ykkur íhaldsmenn þegar þið
heyrið minnst á Jónas, sagði einn
stakur kommi af lævísi sinni og
vildi ekki láta tækifærið ónotað til
að hræra í sjtórnarsamvinnunni.
Já, ætli það ekki, sögðu Fram-
sóknarmenn ánægðir yfir hverj-
um liðsauka í viðkvæmu stór-
máli. Ætli það fari ekki hrollur
um þá. Líkíegt er nú það!
Jónas gutlaði eitthvað í skóla-
málum en að öðru leyti gerði
hann aldrei neitt af viti, sagði
íhaldsmaðurinn staffírugur.
Það er nú bara ekki hægt að
tala við svona mann, sögðu
Framsóknarmenn.
Tiltölulega umburðarlynt sam-
band þegna í værukæru heitu
vatni var komið í bráðan háska.
Ég þorði ekki að bíða eftir frekari
slagsmálum og laumaðist upp úr,
stakk mér og reyndi sem frið-
samur þegn Steingríms Her-
mannssonar að koma mér á
skriðsundi sem lengst frá háska-
samlegum anda Jónasar Jóns-
sonar frá Hriflu. Hilmar.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Kvennafylkingin
Morgunrabb á laugardegi
Hittumst í morgunkaffi kl. 11 - 14 á laugardaginn.
Vorhappdrætti ABR 1985
Alþýðubandalagið í Reykjavík hvetur þá sem fengið hafa
heimsenda miða í vorhappdrætti félagsins að gera skil núna um
mánaðarmótin.
Athygli þeirra sem ekki hafa fengið senda miða er vakin á því að
panta má miða í síma 17500.
Vórhappdrætti 1985
Viimingan
firefiið
lO.maí
I € Fccft lU Mii»i.itpaf.idlv):ir.rwr Kh.xJof
mcð S.imvniimLfóum - (jmcfeftit
.......................... íS.tWO
2« Ferð ii' Kimmi .1 ftaiin cncð
Sejmvinnuierðoiii •• I jukIsvií. 2tuxxt
3. fcrí) i«( Kímuii j fwiiti mct)
fiamvinnuícrftum - I-uidsyn . 20.txxi
4. í'tvól i sætuiiuv í Kenilx'tvciuicn í
iiutUllHtl .1 Vv-RUIH
S-jmvifimiíiífðj ■ t.jirut-ón . 15.000
• Dvðt ( Minunt-úsi i KiuUilufide cCtei
OiUclcje ( D.inmuri.i' .i v<pm;
Snmvinuofciða •• l-umtwi ’. . 15.000
i rrvöl i suirwiliiHi i Knrlslundc cön
OiBciciv' t Tl.wiftörfcu á vejrun:
Sjmvmmifcfö.i -• I nruLýn . . 15.000
Ver
Ijökli
'Aíþýóubaikí.t!ngið i Keykjavík:
Alþýðubandalagið minnir á að þeim krónum sem varið ertil baráttu
gegn stjórninni er vel varið. Þær munu ávaxta sig betur fyrir launa-
fólk en nokkur banki býður.
Gíróseðilinn má greiða í næsta banka/pósthúsi eða á skrifstofu
Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105.
DREGIÐ VERÐUR í HAPPDRÆTTINU 10. MAÍ.
Alþýðubandalagið í Reykjavík.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Aðalfundur ABR
Aðalfundur ABR verður haldinn fimmtudaginn 30. maí kl. 20.30 að
Hverfisgötu 105.
Nánar auglýst síðar.
Stjórn ABR.
Frá skrifstofu Alþýðubandalagsins
Sumartími
í sumar fram til 15. september verður skrifstofa Alþýðubandalags-
ins opin til kl. 16 daglega.
Starfsfólk
Aðalfundur
Breiðholtsdeildar ABR
Stjórn 5. deildar ABR boðar til
aðalfundar mánudaginn
6. maí kl. I20.30 í Gerðubergi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins mætir
ogræðir
stjórnmálaviðhorfið.
3. önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórn 5. deildar ABR.
Baráttusamtök sósíalista
Baráttustefna - blaðaútgáfa
Opinber fundur um Neista verður haldinn þriðjudaginn 7. maí
kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Frummælendur:
Sólveig Ásgrímsdóttir „1968-1985, baráttustefna”
og Pétur Tyrfingsson „Um Neista”.
Umræður. Kaffi. Allir velkomnir.
Sólveig.
Pótur.
Aðalfundur
Langholts- og
Laugarnesdeildar
ABR
Stjórn 3. deildar ABR boðar til
aðalfundar fimmtudaginn
,9. maí kl.
20.30 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórn 3. deildar ABR.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. mal 1985