Þjóðviljinn - 18.05.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 18.05.1985, Síða 3
FREITIR Aukabúgreinar Silungur eftirsúttur erlendis Frystur silungur fluttur út til Noregs. Valdimar Arnþórsson: Framboðið of lítið. Markaðurinn stór. Góð tekjulind fyrir bœndur. Miklir möguleikar. Enn sem komið er flytjum við bara út frystan silung til Nor- egs en erum að þreifa fyrir okkur annars staðar, sagði Valdimar Arnþórsson forsvarsmaður Asco. Asco er 3 ára gamalt fyrirtæki sem framleiðir pakkar og dreifir fiski og fiskréttum undir vöru- merkinu Fiskfang. Vandamálið er það að framboðið er svo lítið og markaðurinn miklu miklu staerri. Þetta er enn sem komið er óverulegur útflutningur vegna þess hvað við fáum lítið af fiski. Það er hafin eða er að hefjast móttaka á fiski fyrir okkur í 4 stöðvum úti á landi, Hofsósi, Þórshöfn, Selfossi og Egilsstöð- um. Bændur veiða silunginn og selja þessum stöðvum sem pakka hann og frysta. Við sjáum svo um að koma honum á markað er- lendis. Silungurinn er seldur beint til eins móttakanda í Noregi sem síðan dreifir honum á veitingahús og hótel aðallega í Suður-Noregi. Við höfum ekki farið út í að selja hann í neytendaumbúðir meðan við sinnum ekki hinu. Verðið er ágætt, kannski ekk- ert til að hrópa húrra fyrir. En það næst ekki upp fyrr en veiði fer að verða almenn. Silungurinn hefur fengið orð á sig erlendis fyrir að vera 1. flokks vara og með besta silungi sem fæst. Um leið og búið er að ná markað- sfestu er hægt að hækka verðið vegna þess hvað varan þykir góð og er eftirsótt. Ég vil koma á framfæri hvatn- ingu til bænda og hlutaðeigandi að kynna sér þennan möguleika. Þetta gæti orðið þeim góð tekju- lind með öðru um letö og búið verður að koma þessum útflutn- ingi á góðan rekspöl, sagði Vald- imar að lokum. Kvennabarátta Samhugur í konum Það var þéttskipaður salurinn á fundinum sem Kvennafylk- ing Alþýðubandalagsins boðaði til á miðvikudagskvöld svo að konum í stjórnarandstöðu gæfíst kostur á að ræða um kvennabar- áttu, hugmyndafræði og áhersl- ur. Fulltrúar samtakanna sex - Alþýðuflokkskvenna, Kvenna- listans, Kvennaframboðsins, Bandalag jafnaðarm., Kvenna- fylkingar ABL og Samtaka kvenna á vinnumarkaði - fluttu fyrst framsögur og því næst sátu fyrir svörum tvær konur frá hverjum hópi. Óhætt mun að fullyrða að fundargerstir hafi almennt haft áhuga á að samstarf í einhverri mynd tækist með þessum aðilum Einkum voru menn á þeirri skoðun að samvinna gæti átt sér stað um fóstureyðingar-, dagvist- unar- og launamál. Formlega var þó engin ákvörðun tekin, því hins vegar beint til Kvennaframboðs- ins að það hóaði saman þessum aðilum fyrr en seinna til frekara skrafs og ráðagerða. bsk Á annað hundrað manns sóttu fund í fyrrakvöld. - Valdís Pjóðgarðurinn Þingvalla- ráðstefnan í dag Þingvellir - framtíð - og friðun Ráðstefna Landverndar - Þingvellir - framtíð og friðun, verður haldin í dag, laugardag í Valhöll á Þingvöllum. Áætlunarbifreið leggur af stað frá BSÍ, Reykjavík kl. 9 árdegis en ráðstefnan verður formlega sett af Þorleifi Einarssyni for- manni Landverndar kl. 10.00, - en forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir flytur ávarp. Um kl. 10.30 hefst flutningur erinda: Sig- urður Steinþórsson jarðfræðing- ur, Pétur Jónasson vatnalíffræð- ingur, Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur, Eyþór Einarsson form. Náttúruvernd- arráðs, FinnurTorfi Hjörleifsson lögfræðingur, sr. Heimir Steins- son þjóðgarðsvörður og Matthías Johannessen ritstjóri. Kl. 14.00 í dag hefjast svo al- mennar umræður. ~«g Rœtur Dagur Ijóðsins ídag Lesið upp í Iðnó, Sjallanum og sjúkrahúsum Virðum rétt hjólreiðamanna! Ljósm. Valdís. Hjólatími hafinn Vinnings- hafinn í Ættfrœðigetrauninni f síðasta Sunnudagsblaði féll niður nafn vinningshafans í Ætt- fræðigetrauninni, Lofts Bald- vinssonar Efstasundi 21 104 Reykjavík. Beðister velvirðingar á þessum mistökum. Það er rétt að hjólreiðar aukast til muna á þessum árstíma en við höfum ekki orðið varir við neina slysaaukningu í því sam- bandi sagði Rúnar Sigurpálsson, umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík. Sumarið er komið og þeir sem vettlingi geta valdið dusta rykið af hjólhestagæðingn- um og taka til við að hjóla. Sagði Rúnar að sömu umferð- arreglur giltu fyrir reiðhjól sem og önnur ökutæki. Þó mega hjól- reiðamenn grípa til þess að hjóla á gangstéttum til að komast hjá miklum umferðargötum eins og Miklubraut og Suðurlandsbraut en varla ráðlegt að grípa til þess inní miðjum bæ þar sem mikið er um gangandi fólk á gangstéttum. Þessi undantekning gildir þó ekki um bifhjól, ökumönnum þeirra er stranglega bannað að aka á öðru en götum. Rúnar sagði að á nokkrum stöðum í borginni væru sérstakar malbikaðar brautir hugsaðar sem göngu- og reiðhjólastígar. Þær væru þó alltof fáar. Það hefur lengi verið krafa hjólreiðamanna að brautirnar yrðu fleiri og ýmis lof- orð verið gefin um úrbætur en lítið orðið um efndir. Rúnar vildi benda hjólreiða- mönnum á sem hjóla með lítil börn að hafa þau í tilþessgerðum reiðhjólastólum en ekki reiða þau á bögglaberum. Að lokum sagði Rúnar að því miður tækju ökumenn bifreiða ekki nógu mikið tillit til annarra ökutækja það er reiðhjóla og bif- hjóla. „Þeir eru bara að fylgjast með hvort það komi bíll og taka ekki eftir hjólum." -aró Idag laugardag gengst Rithöf- undasamband Islands fyrir Degi Ijóðsins. Haldnir verða op- inberir upplestrar í Reykjavík og Akureyri auk þess sem skáld munu heimsækja Landspítalann, Hrafnistu og Kleppsspítalann. Þjóðviljinn getur þessa dags í Sunnudagsblaðinu og í leiðara nú um helgina. f Reykjavík verður lesið upp í Iðnó frá kl. 14.00 og verða þar að verki okkar þekktustu ljóðskáid frá Reykjavík. A Akureyri verður lesið upp í Sjallanum kl. 17.00 þarsem lesa Bragi Sigurjónsson, Brynjólfur Ingvason, Éinar Kristjánsson, Eiríkur Stefánsson, Guðlaugur Arason, Guðmundur Frímann, Kristján frá Djúpalæk, Kristján Pétur Sigurðsson, Kristján Arng- rímsson, Jón Laxdal Halldórs- son, Martin Næs, Nick Carglía, Ólöf Sigríður Valsdóttir, Sigurð- ur Ingólfsson, Skafti Helgason og Sigurður Fálsson. Á spítalana í Reykjavík munu ganga til ljóðalesturs: Dagur, Elísabet Þorgeirsdóttir, Gylfi Gröndal, Jón Pálmholti, Kristín Bjarnadóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Þorri Jóhannsson, Þóra Jónsdóttir og Þórarinn Eld- járn. - óe Laugardagur 18. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Breiðholt Hreinsunardagur í Bakka og Stekkjahverfi Sunnudaginn 19. maí verður hreinsunardagur í Breiðholtinu, Bakka og Stekkjahverfi. Kl. 9.30 verður safnast saman á Breiðholtsvelli og um kl. 10 hefst hreinsun hverfisins og er áætlað að ljúki um hádegi. Kl. 13.15 hefst skráning í Breiðholtshlaup ÍR. Kl. 13.30 leikur Lúðrasveit Breiðholts en hlaupið sjálft hefst kl. 14.00. Kl. 15 verða tveir knattspyrnuleikir. Breiðhylting- ar á þessu svæði eru beðnir um að færa bfla sína þannig að hreinsun gangi sem greiðlegast. - óg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.