Þjóðviljinn - 18.05.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 18.05.1985, Blaðsíða 16
MENNING Alþýðuleíkhúsið 10 ára Húsnœðislaust afmœlisbarn Eignast reykvíkingar loksins félagsheim- ili? Leikhúsfólk hefur áhuga á gamla Sigtúni en Póstur og sími haláa fast um sitt Alþýðuleikhúsið á 10 ára afmæli um þessar mundir en það var stofnað norður á Ak- ureyri sumarið 1975. Af þvítil- efni verður tekið til sýningar eitt af stærri öndvegisverkum leikhúsbókmenntanna en hvert það verður veit nú eng- inn eða í það minnstafáir þangað til síðar í þessum mánuði. Upphaflega var Alþýðuleik- húsið að mestu leyti farand- leikhús og sýndi víðsvegar um landið. Með stofnun Sunnan- deildar í Reykjavík var m.a. ætl- unin að festa leikhúsið í sessi sem atvinnuleikhús á höfuðborgar- svæðinu og raunar var flest til staðar sem þurfti, annað en hús- ið. Framan af var starfsemin til húsa í Hafnarbíói en þar leið hver dagurinn af öðrum í óvissu um það hvort kraninn með kúluna kæmi og legði til atlögu við gamla hermannabraggann. Á endanum var AL úthýst úr Hafnarbíói og húsið rifið. Síðan hefur leikhúsið ekki haft neinn fastan samastað undir sýningar sínar. Það hefur verið sýnt víða: að Kjarvalsstöðum, Hótel Loft- leiðum og í Nýlistasafninu svo nokkrir staðir séu nefndir. í vetur varð leikhúsið að hætta sýningum á leikriti Fassbinders, Beisk tár Petru von Kant, að Kjarvalsstöð- um vegna þess að nota þurfti húsnæðið til annarra hluta. Samt var enn sýnt fyrir fullu húsi. Nú í vor var leikritið Klassapí- ur sýnt í Nýlistasafninu, litlum sal Gamla Sigtún við Austurvöll sem einu sinni hét Sjálfstæðishúsið. Eins og sjá má á innfelldu myndinni er þetta upprunalega timburhús ená einhverju ævisskeiði þess var það múrhúðað. i þessu húsi voru um árabil sýndar revíur og væri ekki úr vegi að endurlífga þær á sama stað. á annarri hæð sem rúmar aðeins 50-60 manns í sæti. Æfingar eru svo hafnar á næsta verkefni Alþýðuleikhússins en það verður sýnt í gyllta salnum á Hótel Borg í sumar. Á frummál- inu heitir verkið A State of Affa- irs og er eftir enska leikrita- skáldið Graham Swannell. Þetta eru þrír einþáttungar sem hver á Ljóðareisur Sigfúsar Bjartmarssonar Mál og menning hefur sent frá sér Ijóðabókina Hlýja skugg- anna eftir Sigfús Bjartmars- SOn’Er það önnur Ijóðabók Sigfúsar, en sú fyrri hét „Út um lensportið" og kom út árið 1979. í bók Sigfúsar skiptast á stuttar ljóðmyndir og lengri frásagn- arljóð. Hann leitar víða fanga og sum ljóð hans eru einskonar skáldlegur vitnisburður um ferðir hans til Rómönsku Ameríku og fleiri framandi landa. Ljóð Sig- fúsar eru tregablandin án þess að vera neitt svartagallsraus og hann reynir að höfðu ekki síður til vitsmuna en tilfinninga. Hlýja skugganna skiptist í þrjá hluta með eftirmála. Kápu hann- aði Hilmar Þ. Helgason. Bókin er 76 bls. (Fréttatilkynning) Höfuðlausn Gyrðis Elíassonar Nýlega sendi Mál og menning frá sér Ijóðabók Einskonar höfuðlausn eftir Gyrði Elíasson. Þetta er þriðja Ijóða- bók Gyrðis en hann hefur áður sent frá sér bækurnar „Svarthvít axlabönd" (1983), og „Tvíbreitt (svig)rúm“ (1984). Gyrðir er tilraunamaður í skáldskap. Ljóð hans segja ekki sögu heldur bregða upp leiftur- myndum úr hugarheimi nútíma- manns. Tungutak hans er í sam- ræmi við þetta einskonar „skipu- legt ofbeldi nútímaljóðíistar.“ Gyrðir leikur sér að margs konar klisjum úr tækniheimi og borg- armenningu og leggur auk þess mikið upp úr umgjörð ljóðanna, svo segja má að þau séu myndir í tvenns konar merkingu, bæði hvað varðar innihald og útlit Einskonar höfuðlausn er 44 bls., unnin að öllu leyti í Prents- miðjuni Hólum. Mynd á kápu er eftir Sigurlaug Elíasson. (F réttatilky nning) sinn hátt segir frá samskiptum kynjanna innan og utan hjóna- bandsins. Saman mynda þeir gamanleik en þó með alvarlegum undirtónum. Ýmis ástönd A State of Affairs (Ástand mála?) er nýtt verk, það var frumsýnt í London núna í febrúar og hlaut geysigóðar viðtökur. Þýðandi þess er Sverrir Hólmars- son en leikstjóri verður Krist- björg Kjeld. Með hlestu hlutverk fara systkinin Arnar og Helga Jónsbörn og Margrét Ákadóttir. Frumsýning verður væntanlega í byrjun júní. En eins og áður segir hefur helsti vandi Alþýðuleikhússins á tíu ára ferli þess verið húsnæðis- leysið. Enn sér ekki fyrir endann á því og stendur það starfseminni fyrir þrifum, t.d. er alls óvíst hvar afmælissýningin verður sett upp. Á það hefur verið bent að hér í Reykjavík vanti félagsheimili eins og þau sem til eru víðs vegar um landsbyggðina. Þeirri áskorun er hérmeð komið á fram- færi við borgaryfirvöld að hau haldi upp á 200 ára afmæli borg- arinnar á næsta ári með því að koma upp félagsheimili miðsvæð- is í borginni þar sem hægt er að halda leiksýningar, tónleika, myndlistarsýningar oþh. Það þarf ekker endilega að byggja, ef vel er að gáð er eflaust til húsnæði sem gera má upp og breyta þann- ig að það henti. Það er bara spursmál um vilja og peninga. Húsið fundið Reyndar er starfandi á vegum menntamálaráðuneytisins nefnd sem hefur það hlutverk að benda á leiðir til lausnar á húsnæðis- vanda áhugaleikhópa í Reykja- vík sem eru fjölmargir. Sú nefnd hefur átt viðræður við ýmsa ráða- menn og einkum beint augum að húsi við Austurvöll sem áður hét Sigtún en heitir nú ekki neitt og hýsir mötuneyti og félagsaðstöðu fyrir starfsmenn Pósts og síma. Ýmsir hópar og stofnanir á menningarsviðinu hafa rennt hýru auga til gamla Sigtúns en yfirmenn Pósts og síma og starfs- mannafélögin eru lítt hrifin af þeirri hugmynd að láta húsið af hendi. Gunnar Eydal borgarlög- maður sem sæti á í nefndinni sagðist í viðtali við Þjóðviljann eiga von á að úrslit fengjust í þessu máli áður en leikárið hefst aftur í haust en vildi að öðru leyti ekkert segja um gang viðræðn- anna. Á það hefur verið bent að hugsanlega mætti leysa mötu- neytisvanda starfsmanna Pósts og síma í því húsnæði sem losnar beggja megin Austurstrætis þeg- ar Seðlabankinn flytur í svarta kastalann. -ÞH ð sumartískunni frá Marks & Spencer gædavara" íStTJUchael / dágana 17.-25. maístenduryfirvikukynning á fatnaði frá Marks & Spencer í kaupfélögum víða um land. í Reykjavík býður Mikligarður, Torgið, Herraríkið og Domus Marks & Spencer getraun verður í gangi á kynningarvikunni. fatnað frá Marks & Spencer Vinningur: Vikuferð til London fyrir tvo.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.