Þjóðviljinn - 16.06.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 16.06.1985, Síða 3
17. JÚNÍ Róbert Tómasson: Losnuðum undan dönskurum Þarna fórstu illa meö mig, við fengum skjölin á 17. júní ekki satt? og við losnuðum að fullu við danskarana. Jón Sigurðsson er sennilega maðurinn sem barðist fyrir skjölunum, og síðar varð hann fyrsti forsetinn. Aðalsteinn Snorrason; Afmœlisdagur Megasar Á ég að vita það? Jú ætli það sé ekki vegna þess að Megas á afmæli þá, og hann er fæddur í kringum 1942. Jón Sigurðsson er sennilega maðurinn, berfættur og í bleikri skykkjunni, sem Megas orti um. Edda Jónsdóttir: Afmœlisdagur Jóns Sigurðssonar Jón Sigurðsson fæddist á 17. júní. Hann barðist ötullega fyrir sjálfstæði íslands, frá Dönum, og varð síðar okkar fyrsti forseti. Lýðveldinu var síðan valinn stofndagur á afmæli Jóns. Hvers vegna er þjóðhátíðardagur íslendinga haldinn 17. júní? Ásta Haraldsdóltin Jón Sigurðsson fyrsti forsetinn Auðvitað vegna þess að Jón Sigurðsson fæddist þann 17. júní. íslendingar fengu lýðveldi 1944 og völdu þennan dag sem þjóðhátíðardag sennilega í þakkarskuld fyrir það hvað Jón Sigurðsson vann vel að okkar málum. Jón varð síðar fyrsti forseti lýðveldisins íslands. Árni Steínarsson; ísland varð sjólfstœtt 17. júní Nú, ísland varð sjálfstætt ríki 17. júní, æ ég man ekki hvaða ár. Ég veit varla meira um það. Jón Sigurðsson var fyrsti forseti íslands og barðist mik- ið fyrir sjálfstæðinu, ekki satt? Sumarferð Alþýðubanda- lagsins í Kópavogi verður farin laugardaginn 22. júní. Lagt verður af stað frá Þinghóli kl. 8.30. Gist á Arnarstapa. (Svefnpokapláss/tjaldstæði). Leiðsögumenn á Snæfellsnesi: Ingi Hans Jónsson Grundarfirði og séra Rögnvaldur Finnbogason Staðarstað. Verð farmiða kr. 900.-, ein máltíð innifalin (án gistingargjalds). Hálft gjald fyrir 12 ára og yngri. Athugið: pantið í síðasta lagi miðvikudaginn 19. júní. Símar 45306, 40163 og 43294. Takmarkaður sætafjöldi. Stjórnin. Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða hjúkrunarfræðing og sjúkraliða til starfa sem fyrst eða eftir samkomulagi. Einnig vantar hjúkr- unarfræðinga og Ijósmóður til sumarafleysingja. Gott húsnæði fyrir hendi. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 94-1110 eða 94- 1386. A Kennara vantar að grunnskólum Kópavogs. Kennslugreinar: Raun- greinar, handmenntir og almenn kennsla. Upplýsing- ar á skrifstofu Kópavogs, sími 41863. Skólafulltrúi. Ástkær eiginmaður minn Jónas Guðmundsson rithöfundur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 19. júní nk. kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Slysavarnafélag íslands. Jónína H. Jónsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.