Þjóðviljinn - 16.06.1985, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 16.06.1985, Blaðsíða 18
Á tímamótum og hvers kyns afmælum er góður siður að líta til baka til atburða sem liðnir eru og draga af þeim lærdóma. Við það kemurtíð- ast í ijós að ekkert er nýtt undir sólinni, - mannskepnan er ótrúlega mikið á svipuðu hringsóli og því erforsendan fyrir því að einhverju miði fram á við, fólgin í að maðurinn læri af hinu umliðna, ýmist af mis- tökunum eða því sem vel er gert. Þegarþjóðin minnistnú afmælis lýðveldisins er því ekki úr vegi að huga að rótum þess að þjóðin reis upp og krafðist sjálfstæðis. Einn öflugasti þátturinn í því gangvirki var tímaritið Fjölnir, ársrit sem kom í fyrsta sinni út í Kaupmannahöfn árið 1835, fyrir 150 árum. Markmið útgefenda, þeirra félaga Jónasar Hallgríms- sonar, Konráðs Gíslasonar, Tómasar Sæmundssonar og Brynjólfs Péturssonar, var að vekja íslendinga úr þeirri and- legu deyfð og sinnuleysi sem þeim fannst svo rík hér í landi og kynna þeim andlegar og verk- legar framfarir aldarinnar. Til þess var tímarit ákjósanlegur vettvangur, vegna þess sem segir í stefnuskrá fyrsta árgangs: Tímaritin eru hentugri enn flestar bœkur aðrar, til að vekja lífið í þjóðunum og halda því vakandi, og til að ebla frelsi þeirra, heíll og mentun.... - í stuttu máli, eígum við að geta fylgt tímanum, þá eru tímaritin eíttafþvísem okkur er öldúngis ómissandi. Róttœkt rit Um þessar mundir var mikið að gerast í Evrópu. Júlíbyltingin í Frakklandi 1830 hafði mikil áhrif á Fjölnismenn og það er engin tilviljun að í 1. árgangi var þýðing úr Reisebilder eftir Hinrik Hæni frá Þusslaþorpi (Dusseldorf); . einmitt kafli sem skírskotar til þessarar byltingar. Fjölnir var byltingarsinnað rit sem vildi veita til íslands þeim frelsisstraumum sem fóru um álfuna. Fjölnismenn voru líka undir miklum áhrifum frá rómantísku stefnunni, sem borist hafði til Kaupmannahafn- ar og olli því m.a. að menn fóru að gefa meiri gaum að þeim inn- lenda menningararfi sem ísland var svo ríkt af. í rómantíkinni fólst nefnilega aðdáun á því sem var gamalt, - ævintýri og sögur sem sprottið höfðu upp úr „þjóð- arsálinni“ voru hafnar til vegs og virðingar og af þvílíkum höfund- arlausum sögum var og er ísland auðugt. Með þessu vopnuðust Fjölnismenn og aðrir þjóðfrelsis- menn í baráttunni við að sýna þjóðum heimsins, og ekki hvað síst íslendingum sjálfum, að ís- land byggi yfir merkilegri fortíð, göfugu máli og ætti skilið sjálf- stæði, - frelsi undan forræði ann- arrar þjóðar. Eða eins og segir í stefnuskránni í 1. árgangi: Líkt og konúngarnir hafa stundum þjóðirnar villst, álitið sér leýfilegt að svíkjast að öðr- um þjóðum, svipta þœr frelsi sínu, og láta þœr tolla sér; í stuttu máli, farið fram við þcer allri sömu rángsleitni og harð- stjórarnir við sína undirmenn, þángaðtil hefndin kom yfir þær. Þetta ófrelsi, hvurt sem það kemur frá mörgum eða fáum, drepur andann íþjóðun- um, og það er sú mesta óham- íngja sem nokkurt ríki getur í- ratað. Enn það er ekki harð- stjórnin tóm, eða ránglát yfir- drottnun, sem ollir deýfð þjóð- arandans, so hann stundum kulnar út. Menn sjá dœmi til, að sumar þjóðir sem áttu beztu lög, og dugandi og réttvísa stjórnendur, hafa samt dregist apturúr, og orðið daufar og af- skiptalausar af högum sínum, af því aðrir réðu öllufyrir þœr, og þær voru sjálfar til eínskis kvaddar. Á eftir stefnuskránni, sem mun að mestu hafa verið samin af Tómasi Sæmundssyni, fer hið al- kunna kvæði Jónasar ísland far- sælda frón; sem kalla má að myndi eins konar grundvöll að þjóðfrelsisbaráttu Islendinga á 19. og 20. öld. Það er til skemmti- leg saga af tilurð þessa fræga kvæðis. Þannig var að Konráð Gíslason dreymdi að til hans kom mikill og föngulegur maður sem fór með kvæði fyrir hann. Þegar Konráð vaknar man hann aðeins þetta: Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart. Hann segir síðan Jónasi draum- inn og utanum þetta brot yrkir svo Jónas kvæðið. Annað sem sætti tíðindum í 1. árganginum var Úr bréfi frá íslandi eftir Tóm- as Sæmundsson. Þar fer Tómas gagnrýnum orðum um atvinnu- vegi þjóðarinnar; Iandbúnað, sjávarútveg og verslun. Hann bendir á allt það fjölmarga sem miður fór í þessum efnum og nefnirleiðir til úrbóta. Greinin er skrifuð bæði af þekkingu á mál- efnum landsins og af tilfinninga- hita, enda Tómas eldhuginn í hópnum og mestur ákafamaður í umbótum. Tómas Það hefur oft verið bent á að Tómas olli mestu um að Fjölnir varð pólitískara rit en kannski til stóð. Hann gengur til liðs við hina þrjá vorið 1834, þá nýkominn úr tveggja ára Evrópureisu þar sem hann hafði drukkið í sig allt það markverðasta sem var að gerast og kom til Kaupmannahafnar ólgandi af atorku til að fræða og upplýsa þjóð sína. Því miður varð hann sér úti um berkla í París sem að lokum drógu hann til dauða 1841, langt fyrir aldur fram. Það má segja að nytsemissjónarmið Tómasar hafi runnið saman við frelsis- og fegurðartilfinningu Jónasar og Konráðs. Tómas var líka mesti framkvæmdamaður þeirra félaga, dreif hina með sér og ávítaði stundum fyrir seinlæti. Aðstæður þeirra Fjölnismanna voru nokkuð ólíkar og olli það nokkrum deilum og togstreitu þeirra í milli. Tómas var prestur á Islandi frá 1834 og vissi því best hvað þjakaði íslendinga mest þá og þá stundina, en Jónas, Konráð og Brynjólfur voru í Kaup- mannahöfn og beindu sjónum sínum í hrifningu til Evrópu og hinna merkilegu atburða sem þar voru að gerast. Þeir hafa kannski verið full bjartsýnir varðandi menntunar og fróðleiksfýsn ís- lendinga, og ekki gert sér grein fyrir því að alþýðu manna á ís- landi skorti allar forsendur til þess að meta bókmenntir á borð við Heine og Tieck. Á íslandi urðu enda hörð viðbrögð og mót- mæli; sérstaklega yfir Ævintýri af Eggerti Glóa eftir Ludvig Tieck, sem íslendingum fannst ekkert varið í, - aðeins heimskulegt og þarflaust ævintýri. Tómas var heldur ekki ánægður með 1. ár- gang Fjölnis. Honum fannst að þyrfti meira efni sem „grípi sem mest inn í lífið“. Hann varð líka reiður yfir stafsetningarþætti Konráðs í 2. árgangi og sagði að „ekki hafa 10 á öllu íslandi lesið hann“. Tómasi fannst Konráð vera of vísindalegur og vildi fá meira efni um málefni íslands, efnahags- og atvinnumál sem skrifað væri fyrir alþýðu manna. Meðal annars af þessum á- greiningi kom Fjölnir út árið 1839 skrifaður og gefinn út af Tómasi Sæmundssyni einum. Konróð En víkjum aftur að stafsetning- arþætti Konráðs. Það var hans skoðun að stafsetja ætti sem næst framburði, - það væri hinn eini rétti grundvöllur ritaðs máls. í samræmi við kenningar hans var stafsetningin á Fjölni fram til 7. árgangs 1844. Konráð útrýmir t.d. y og ý og er einna fyrstur til að fylgja þeirri kenningu eftir. Þetta þótti auðvitað byltingar- kennt uppi á íslandi, féll í mjög grýttan jarðveg enda framúr- stefnukenning enn í dag, 150 árum seinna. Að lokum gaf Konráð eftir, hvort sem honum hefur snúist hugur eða ekki, og Fjölnir tók upp hina algengu rétt- ritun sem fyrr segir 1844. En hin feiknarlega áhersla sem einkanlega Jónas og Konráð lögðu á gott og fagurt mál er eitt þeirra atriða sem gera Fjölni merkan og hafa áhrif hans í þessu efni verið mikil allt til þessa dags. Það verður að hafa í huga að þeir eru að vinna endurreisnarstarf á tungunni. íslenskan hafði átt undir högg að sækja gagnvart dönskunni og einhverjir íslend- ingar höfðu haft orð á að leggja hana niður og taka upp dönsku. Um þetta segir Konráð m.a. í Fjölni 1838: Hún [íslenskanj hefur náð nokkurum þroska, hrist af sjer dálítið af útlenzkuslettunum, og öðlast það vald ifir hugskoti þjóðarinnar, að - so jeg viti - láta nú aungvir sjer um munn fara, að þeír vilji hreínlega skjipta henni við útlendar túng- ur. Þeír eru nú dauðir, sem að so töluðu, og eíngjinn hefur feíngið í arf alla heímsku þeírra, eíns og hún var; hún hefir líkast til farið í moldina með þeim. Enn upp af þeírri mold er nú sprottin önnur kjin- slóðin, skjild hinni firri, og þó ekkji að öllu eins. Það eru þeír, sem halda að einugjildi, hvurn- ig þeír fara með íslenzkuna, og bæta hana og staga með bjög- uðum dönskuslettum, í orðum og talsháttum, greínum og greinaskjipan - af eínberri heímsku og fákunnáttu. Og Tómas Sæmundsson, sem j fannst nú stundum félagar sínir ganga full langt í fegrun tungunn- ar og vildi frekar reyna að kenna íslendingum fyrst að hugsa, - að því loknu mætti fara að bæta mál- ið, hann segir: Sá sem ekki talar mál sitt vel og lagliga, plagar sjaldan að vera vel að sér í annarri kunnáttu; hjá þeim sem ei leggur rækt við sitt móðurmál er og lítil föður- 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. júni 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.