Þjóðviljinn - 16.06.1985, Síða 14
Frá einum besta þjóðhátíðardeginum á Arnarhóli árið 1966, þegar hitinn komst í 15 stig.
17 sinnum
alveg þurrt
„ Það er gaman að skoða
svona þjóðsögur og oftast
tekst manni að útrýma þeim.
17. júní hefur ekki verið neitt
sérstaklega slæmur dagur ef
miðað er við júnídaga í
Reykjavík, en ef til vill gera
menn heldur meiri kröfur til
þessa dags en flestra annarra
dagaásumrinu.
vott í 24 skipti
Af 41 þjóðhátíðardegi eru 24
með einhverja úrkomu, en þar af
eru 8 dagar með óverulega
úrkomu, en 17 sinnum hefur
hann haldist þurr á þjóðhátíðinni
í borginni,“ sagði Adda Bára
Sigfúsdóttir veðurfræðingur,
þegar við spurðum hana um
veðurlagið 17. júní frá lýðveldis-
stofnuninni. Menn hafa gjarnan
haldið því fram að veðurguðirnir
væru höfuðborgarbúum ótrúlega
óhagstæðir á þjóðhátíðardaginn,
en það kemur í ljós að þetta er
ekki alls kostar rétt þegar skoðað
er aftur í tímann. Að vísu hefur
dagurinn sjaldnast verið sérlega
hlýr og oftar en ekki er einhver
úrkoma, en þess má geta að
aðeins annar hver júnídagur í
höfuðborginni er alveg þurr sé
litið á meðaltalið.
„Verstu þjóðhátíðardagarnir
frá stofnun lýðveldisins voru 1955
og 1979 en báða þessa daga rigndi
mjög mikið. Auk þess var mjög
kalt og hvasst árið 1959, en þá var
hitinn aðeins 7,3 stig og norðan
hvassviðri. Þá brotnuðu
varnargarðar við Þingvallavatn
og varð stórtjón af vatnsflaumi,
en ekkert rigndi þó úr lofti
þennan dag. Bestu þjóðhátíðar-
dagarnir á þessum fjórum áratug-
um eru 1952 og 1966 en þá komst
hitinn í 15 stig,“ sagði Adda Bára
að lokum.
Þess má geta til viðbótar að
meðalheildarúrkoma í júní í
Reykjavík er 41 mm, svo að
menn sá að þegar úrkoman er
komin yfir 8 mm eins og hún
verður 1955 og 1979, þá er ekki
um neina minniháttar vætu að
ræða. Og svo er að bíða og sjá
hvernig viðrar þjóðhátíðardag-
inn 1985.
þs
Stofnun lýðveldis á íslandi 1944. Mikið rigndi á Þingvöllum og sátu menn með regnhlífar og hneppt upp í háls undir
hátíðarhöldunum.
1969 var mestur hluti hátíðarhaldanna inni í Laugardal. Þá rigndi mikiö og
uppspenntar regnhlífar skreyttu áhorfendastúkurnar. Fjallkonan þetta ár var
Valgerður Dan, sem hér sést ganga inn á völlinn.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. júní 1985