Þjóðviljinn - 16.06.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.06.1985, Blaðsíða 12
17. JÚNÍ Finnur Torfi Hjörleifsson lögum og fá þjóðinni aftur til neyslu það land, sem lagt var undir sumarbústaði. Það þarf að taka ákvörðun um hvaða bústaði á að rífa, hverja að flytja burt og hverjir skuli fá að standa til nota fyrir þjóðina, sem á Þingvelli, fyrir starfsfólk hér í þjóðgarðin- um, eða fyrir skólafólk sem hing- að kæmi til náms og vinnu, eða þá e.t.v. fyrir einhverja þá hópa sem þjóðin vildi sérstaklega rétta hjálparhönd til að geta notið þessarar eignar með okkur hin- um, t.d. aldrað fólk. Fleiri hús á Þingvelli Ég þykist vita að ýmsar hug- myndir hafi verið á kreiki um að reisa ný hús í þjóðgarðinum, t.d. fyrir starfsfólk - eitt slíkt stendur nýreist í Þingvallatúni - og fyrir alþingismenn. Og nú fyrir nokkr- um dögum heyrðum við í út- varpsfréttum af hugmynd um menningarmiðstöð í grennd við Þingvallabæ. Mér sýnist að nóg sé komið, og reyndar miklu meira en nóg af húsum í þjóðgarðinum sjálfum. Það liggi nú fyrst og fremst á að taka ákvarðanir um að rífa hús og flytja burt, en kaupa önnur eða taka eignar- námi til þjóðarneyslu. Eitt þeirra húsa sem nauðsynlegt er að rífa Erindi flutt á ráðstefnu Landverndar um framtíð og friðun Þingvalla, laugardaginn 18. mars 1985 Landiðsem kallað hefurverið þjóðgarðurá Þingvöllum, er skv. lögum nr. 59/1928 frið- lýstur helgistaður allra íslend- inga og ævinleg eign íslensku þjóðarinnar. Þetta berávallt að hafa í huga þegar rætt er um Þingvelli. Við eigum þetta land öll, okkur kemur það við og við eigum ekki að láta það afskiptalaust. í þessu ljósi mætti okkur virð- ast hafa verið furðu hljótt um Þingvelli löngum. Það ber ekki oft við að málefni þjóðgarðsins hér séu rædd manna á meðal eða opinberlega. Það er því vel að Landvernd hefur efnt til þessarar ráðstefnu. Við erum að vísu lítill partur þjóðarinnar sem hér sitj- um, en ræður manna og viðræður hér mættu e.t.v. verða upphaf að almennri umræðu um þjóðgarð- inn á Þingvöllum. Má líka vera að samkoma þessi sé háð á heppileg- um tíma. Þess sjást nú merki að umtalsverðar breytingar kunni að vera í nánd á stjórn, starfshátt- um og skipulagi þjóðgarðsins, eða hafi jafnvel að einhverju leyti þegar orðið. Friðunarlög þverbrotin Þingvellir eru sameign þjóðar- innar, en skv. fyrrnefndum lögum eru þeir undir vernd Al- þingis. Sú vernd gafst löngum illa, og snerist þegar verst lét upp í andstæðu sína. í stað þess að vernda eignina fyrir þjóðina og handa þjóðinni varð Þingvalla- nefnd, sem fór með yfirstjórn þjóðgarðsins fyrir hönd Alþingis, til þess að farga honum að hluta, láta afnotaréttinn að hluta lands- ins í hendur útvalinna einstak- linga. Sumarbústaðir og sumar- bústaðalönd eru 80 í þjóðgarðin- um skv. upplýsingum Þingvalla- nefndar. Eg hygg að það sé ekki ofmælt hjá Birni Th. Björnssyni í bók hans um Þingvelli að Þing- vallanefnd hafi árum saman þver- brotið öll lög um friðun Þingvalla (bls 146). Og lögbrotin voru þeim mun alvarlegri en oftast er að það var fulltrúi löggjafans sem framdi þau og þau bitnuðu á hagsmun- um þjóðarinnar. Því er ég að nefna þetta hér og leggja á það áherslu, að ég hygg að Alþingi, eða fulltrúi hennar Þingvalla- nefnd, nái aldrei sátt við þjóðina um neitt skipulag eða landnýt- ingu hér á Þingvöllum, fyrr en búið er að bæta fyrir brotin. Störf Þingvallanefndar eru um fleira aðfinnsluverð. Nefndin hefur löngum verið sein á sér, allt of sein, að gera tímabærar ráð- stafanir varðandi stjórn og skipu- lag hins friðlýsta svæðis til að vernda landið fyrir áníðslu og til að almenningur mætti njóta þess sem best. Heildarskipulag fyrir Þingvelli er ekkert til, engin heildaráætlun um vernd landsins, né um móttöku þjóðgarðsgesta og leiðsögn og fræðslu fyrir þá. Ekki heldur um mannvirki í þjóð- garðinum né um tjaldsvæði og ýmsa þá aðstöðu sem þeim til- heyrir eða um endurgerð og við- hald göngustíga og ýmissa gam- alla mannvirkja. Og það hefur - síðast en ekki síst - ekki verið tekin nein ákvörðun um hvað á að verða um þessa 80 sumarbú- staði og sumarbústaðalönd sem í þjóðgarðinum eru. Allt er þetta mjög neikvætt, og ég skal strax fyrir mitt leyti gang- ast við því að það er ósanngjarnt að draga myndina eingöngu svo dökkum litum. Vissulega hefur margt verið gert hér til bóta á liðinni tíð: Vegir lagðir, bílastæði gerð, hreinlætistækjum nokkrum komið fyrir og nú á síðustu tveimur sumrum komið skynsamlegri skipan á tjaldsvæði en lengi hafði verið og göngu- Jeiðir lagfærðar. Þjóðgarðsgirð- ingin hefur verið færð út og má nú víst heita sauðheld. Flest þetta eða allt hefur orðið fólki til nokk- urra hagsbóta við umferð og dvöl á svæðinu og landinu til verndar. Þá þykir mér það sérstakt fagn- aðarefni að á sl. sumri voru tekn- ar upp skipulegar gönguferðir undir leiðsögn starsmanna þjóð- garðsins, bæði um Þingið og á lengri leiðum. Allt er þetta þakk- arvert. En heildarskipulag skortir og raunar ákvarðanir í veigamiklum málum, sem óhjá- kvæmilega verða forsendur að skipulagi. En nú stendur þó til að fara að gera aðalskipulag fyrir þjóðgarð- inn á Þingvöllum, og er veitt til þess hálfri millj. króna á núgild- andi fjárlögum. Og Þíngvalla- nefnd er í þann veginn að ráða arkitekt til að veita verkinu for- stöðu, eins og segir í upplýsingum nefndarinnar í bréfi til Land- verndar nú fyrir þessa ráðstefnu (dags. 24.04. 1985.) Og í Þjóð- viljanum á skírdag mátti lesa í viðtali við Hjörleif Guttormsson, einn Þingvallanefndarmanna, að ráðnir hefðu verið tveir arkitekt- ar til starfans. Það er svo sem ekki nema sjálfsagt mál að ráðinn sé menntaður tæknimaður, eða tæknimenntaður listamaður, í skipulagsvinnuna, og ekki til- tökumál þótt fleiri séu en einn. En ekki gera þeir skipulagið á eigin spýtur. Það stendur eftir sem áður upp á yfirstjórn þjóð- garðsins og reyndar okkur öll hin, að teknar séu ákvarðanir um ýmsar mikilvægar forsendur slíks skipulags, ákvarðanir sem best færi á að Þingvallanefnd tæki í samráði við þjóðina, að svo miklu leyti sem það er unnt. Þingvallanefnd, sú sem nú sit- ur, verður t.a.m. að gera það upp við sig, hvort hún vill bæta úr lögbrotum fyrri nefnda, fara að 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. júní 1985 eða flytja burt er Valhöll. Veitinga- og gististaður með til- heyrandi drykkjugleði og glasa- glaum á ekki heima hér í hjarta þjóðgarðsins. Valhöll hefur þó þann kost með sér, eins og mig minnir fyrrverandi þjóðgarðs- vörður, Eiríkur J. Eiríksson, hafi komist að orði, að hún er ekki gerð úr varanlegu efni. En Þing- vallanefnd hefur víst enga ákvörðun tekið enn um framtíð Valhallar. Það eru ýmsar fleiri grundvall- andi ákvarðanir sem þarf að taka, svo að skipulag verði með góðu móti gert. Tjaldsvæði hér í þjóð- garðinum hafa nokkuð verið dregin saman tvö undanfarin sumur, og er það vel að mínu áliti. Ekki er samt fyllilega ljóst hvað yfirstjórn Þingvalla ætlast fyrir í þessu efni. Þó segir í bréfi Þingvallanefndar til Landvernd- ar, því sem ég hef áður vitnað til, að stefnt sé að því að safna tjöld- um á einn stað, þar sem unnt er að veita þjónustu. Má vera að þetta yrði til heilla, en ég efa það þó. Fer ég um það nokkrum orð- um síðar. Þegar menn velta því fyrir sér hvernig hátta skuli þjónustu við þjóðgarðsgesti, væri gagnlegt að fá svör við spurningum eins og þessum: Hvers konar fólk kemur hingað? Hve margir eru gestirnir á ári hverju eða sumri hverju? Og í hvaða skyni koma menn hing- að? Um þetta er nú líklega vitað heldur fátt með vissu, a.m.k. hef ég ekki séð eða heyrt um neinar tölfræðilegar upplýsingar um fjölda þjóðgarðsgesta og hvað dregur þá hingað. Eitthvað vita menn um þetta samt af eftirtekt sinni og brjóstviti. Ég vil hér leyfa mér að flokka þjóðgarðsgesti í fimm flokka, og tek það fram strax að mörkin milli þeirra eru vitaskuld ekki skýr. Fjöldi manna, íslendingar og útlendingar, kemur hingað til að skoða Þingið og fræðast um sögu- staðinn Þingvöll. Margir þeirra eru ugglaust svokallaðir daggest- ir, hafa hér ekki næturdvöl. Stór hópur manna, líklega einkum þéttbýlisbúar, kemur til þess fyrst og fremst að njóta

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.