Þjóðviljinn - 16.06.1985, Page 8

Þjóðviljinn - 16.06.1985, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. júní 1985 Rísa þjóðhátíöadagar undir nafni? Tja, hvað skal segja. Við íslendingar erum líklega meðal þeirra þjóða sem reyna að gera sem mest úr þjóðhátíð og höfum allgóðarforsendur til þess - völdum að stofna lýðveldi á afmælisdegi manns sem náðst hafði samkomulag um að verið hefði okkar ágætasti foringi ísjálfstæðisbaráttu. Samt finnst mönnum eitthvað vatnsbragð af hátíðinni með sjálfvirkri ræðu- mennsku og alþjóðlegu poppstandi, kábojhöttum, ýlum og ropvatni. Sannleikurinn er sá, að þjóð- hátíðir eru tiltölulega ungar og hafa víða átt erfitt með að hlaða utan á sig helgum siðum og leikrænum uppákomum sem festa hátíð niður djúpt í fylgsnum sálarkirnunnar. Þjóðhátíðir eru tengdar upphefð þjóðríkisins, sem hefst ekki mikið fyrr en á nítjándu öld. Þjóðhátíðin á þá að upphefja ríkið, sýna herstyrk þess, skreyta það fánum og skrúðgöngumynstrum, blása þegnum í brjóst samstöðu með músík og sögulegri upprifjun á því að eitt sinn vorum vér í þræl- dómshúsi Faraós eða einhvers keisarabjáifans í nágrenninu en eignuðumst okkar Móíses sem leiddi okkur yfir eyðimörk um- skiptanna og til fyrirheitna lands- ins þar sem vér nú unum glaðir við dáðir feðranna og okkar eigið ágæti. Undir kóngum Þetta gengur svo misvel. Allur glæsi- og hetjubragur er yfirleitt farínn af ríkjum svosem tveim áratugum eftir að til þeirrá var stofnað. Hvundagsleikinn tekur við og hann færist einnig yfir á þjóðhátíðardaginn. Altént reynist slíkum degi erfitt um vik að keppa við aðra daga, sem hafa aldimar á bak við sig og trúarlegt uppeldi kynslóðanna svo langt sem sagan skráir. Enda er það varla reynt í konungsríkjum að hafa þjóðhátíðardag í alvöru. Shkt uppátæki mundi draga at- hyglina frá því sérstaka sambandi við almættið sem kóngaþjóðir hafa samkvæmt skilgreiningu. í mesta iagi er haldið upp á afmæli kóngsins eða drottningarinnar með móttökum og kannski sýn- ingu á drottins smurða. Og kann- ski er dagurinn ekki einusinni af- mælisdagur kóngs eða drottning- ar heldur hinn svokallaði opin- beri afmælisdagur sem valinn er eftir hentugleikum. Norðmenn Norðmenn eiga sér kóng, en þeir eru náttúrlega út af fyrir sig í þessu eins og ýmsu fleiru. Þeir halda upp á sautjánda maí og að af svo miklu kappi, að mér er sagt að skólabörn í Osló fái ekki að fara í skrúðgönguna nema annað- hvort ár hvert barn, annars yrði gangan allt of löng og það mundi líða yfir kónginn gamla ef hann ætti að horfa á allt saman. Norð- menn eru líka að halda upp á merkisatburð - nánar tiltekið þegar þeir tóku sig til þann sautjánda maí 1814 og komu sér upp stjórnarskrá sem var mjög sniðin eftir frönsku byltingar- stjórnarskránni frá 1791. Þótti þetta hin frjálslegasta stjórnar- skrá sem menn áttu þá völ á. Helgi dagsins efldist svo með ýmsu móti - ekki síst með því, að Norðmenn voru hernumdir af Þjóðverjum í heimstyrjöldinni síðari, og þjóð sem er hernumin minnist þjóðhátíðar sinnar með alveg sérstakri ofurgnótt tilfinn- inganna. Stærð sautjánda júní í norskri vitund kemur fram á ein- staklega eftirminnilegan hátt í bók sem Sigrid Undset skrifaði á hemámsárunum í útlegð - vestan hafs - „Hamingjudagar heima í Noregi.“ Eftir byltingar Reyndar er það svo, að einna stærstir verða þeir þjóðhátíðar- dagar, sem tengjast við miklar byltingar. Tökum sem dæmi þjóðhátíðardag Frakka, Bastillu- daginn 14. júlí, sem ber upp á þann dag þegar lýðurinn í París reif niður kastala með dýflissum mörgum sem var tákn og ímynd hataðs einveldis. Síðan þá hafa Frakkar oft átt í tvísýnni baráttu um það hvort þeir væru stórveldi eða ekki og frönsk þjóðernis- hyggja hefur aldrei vanrækt þá möguleika sem tengjast Bastillu- deginum til að porra upp mann- skapinn. Annað dæmi gæti verið sjöundi nóvember í Sovétríkjun- um, sem haldinn er til þess að ÁRNI BERGMANN minnast Októberbyltingarinnar 1917. Yngra fólki kann að þykja skrýtið hvers vegna októberbylt- ingar er minnst í nóvember, en það stafar af því að þegar bolsév- íkar klifruðu yfir grindverkið í Vetrarhöllinni var enn notað í Rússlandi tímatai austurkirkj- unnar sem hafði dregist aftur úr öðru almanaki um eina þrettán daga. Bolsévíkar tóku svo upp nýtt tímatal í meira samræmi við stjörnufræðina og margt fleira gerðu þeir - afnámu einkaeigna- rétt á verksmiðjum og felldu úr stafrófinu jatið, sem var yfsilon þeirra Rússa. Sjöundi nóvember er einmitt dæmi um að bylting vill gera sem mest úr sjálfri sér og þar með koma í staðinn fyrir það sem áður Sjöundi nóvember í Leníngrad - herganga á eftir styttu byltingarforingjans: koma í staðinn fyrir þá daga sem áður voru helgir. var. í Sovétríkjunum lætur ríkið eins og gamlar trúarhátíðir, jól og páskar, séu ekki til. En þeim mun meir er gert úr sjöunda nóvem- ber, sem er tvöfaldur frídagur, stjórnarskrárdegi og fyrsta maí, sem einnig er tvöfaldur frídagur. Og það er marsérað á Rauða torginu og bornar fimm metra há- ar myndir af aðalritaranum og hans mönnum, íþróttamenn sauma lifandi mynstur á torgin og erlendir fréttamenn reyna að velta því fyrir sér, hver nýmæli séu að eldflaugunum stóru sem fóru síðast í hersýningunni. Gamlar og nýjar hátíðir í lífi þjóða þar sem trúarlegar hefðir hafa ekki verið rofnar með opinberri stefnu, þar sýnist svo einatt lítið pláss fyrir þjóðhátíðir. Ýmsar dýrlingahátíðir í kaþólsk- um löndum verða miklu meiri hátíðir en opinber þjóðhátíð. Eða tökum dæmi af ísrael. Gyð- ingdómurinn á sér svo margar hátíðir að það liggur við að fullt starf sé að halda upp á þær ailar: það þarf að halda upp á páska í heila viku, og svo Shovuos og það þarf að gráta eyðileggingu must- erisins, halda upp á nýja árið (í september) iðrast á Jom Kíppúr, gleðjast á Súkkos og Hanúkka og ærslast á Púrím. Fyrir nú utan það, að helst verða menn að halda laugardaginn svo hátíð- legan, að þeir fari ekki í strætó eða tali í síma. Það sýnist því lítið pláss fyrir Sjálfstæðisdaginn, Jom haatzmaút, sem minnist stofnun- ar ísraelsríkis 1948. En það er samt reynt að gefa honum gaum með svipuðum hætti og í öðrum ríkjum. En óneitanlega verður slíkur dagur sálarlítill í saman- burði við daga sem eiga sér óra- langa sögu og hver um sig flókið siðamynstur, sérstaka texta, fast- mótað mataræði - og svo skipu- lagt og samstillt hugarfar. Þrengsli í almanakinu Svo er annað sem er vert að gefa gaum. Ríkjum í heiminum hefur fjölgað ört á undanförnum árum. Þau eru nú orðin um eitt hundrað og sextíu og öll vilja þau eiga sér þjóðhátíðardag, hvort sem hann er nú kenndur við sjálf- stæðið, stjórnarskrána, bylting- una eða eitthvað annað. Eins og að líkum lætur vilja ný ríki ógjama að þeirra dagur rekist á við þjóðhátíðir annarra - slíkt gæti m.a. leitt til óheilbrigðrar samkeppni milli sendiráða um að fá til sín mektarmenn í þjóðhátíð- arkokkteilinn - en mætingar í slfkum veislum eru víst ótrúlega merkilegt mál. Sumir segja það sé vegna þess að diplómatar hafi ekkert betra að gera en að fara yfír boðsgestalista sína, en aðrir sjá í slíkum málum háþróað pólit- ískt táknakerfi. En hvað sem því líður, og þótt ýmis ný ríki kunni að velja sér dag með það fyrir augum að vera ein um hann, þá verður einatt mjög þröngt í almanakinu. Fjölvís gef- Hvergi verða þjóðhátíðardagar fyrirferðarmeiri en þar sem þeim er ætlað að Ja vi elsker dette landet Eða vangaveltur um þjóðhátíðardaga hér og þar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.