Þjóðviljinn - 26.07.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 26.07.1985, Blaðsíða 12
ALÞÝÐUBANDAiAGIÐ Tilkynning til miðstjórnarmanna Alþýðubandalagsins Framkvæmdastjórn Alþýöubandalagsins hefur ákveöið aö haust- fundur miðstjórnar verði haldinn í Reykjavík dagana 21 .-22. sept- ember n.k. Meginefni fundarins verða utanríkismál. Miðstjórnarmenn eru beðnir að festa sér þessa dagsetningu í minni og hafa í huga að berist óskir um að á dagskrá verði tekin mörg mál gæti orðið að hefja miðstjórnarfundinn föstudagskvöldið 20. september. Þá er miðstjórnarmönnum bent á ráðstefnu um Þjóðviljann og ný viðhorf í fjölmiðlun sem ákveðið hefur verið að halda eftir hádegi sunnudaginn 22. september, en gert er ráð fyrir að Ijúka miðstjórn- arfundinum fyrir hádegi sama dag. - Flokksskrifstofan. Alþýðubandalagið í Reykjavík Sumarferð ABR 17. ágúst Árleg sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugar- daginn 17. ágúst. Að þessu sinni verður ekið um Hvalfjörð og áð við Saurbæ og á Akranesi við kútter Sigurfara. Þaðan verður ekið að Leirá. Frá Leirá verðurfarið um Svínadal og að Reykholti. Síðan verður ekið um Uxahryggi og áð í Biskupsbrekku á Kaldadalsleið. Þaðan verður ekið um Þingvelli til Reykjavíkur. Fararstjórn að þessu sinni verður i höndum Árna Björnssonar og Kjartans Ólafs- sonar. Áningastaðir og allt fyrirkomulag ferðarinnar verður nánar kynnt í Þjóðviljanum síðar en ferðanefnd hvetur alla flokksmenn og stuðn- ingsmenn að panta miða tímanlega til að auðvelda allan undirbún-: ing. Skráning farþega er í síma 17500. - Ferðanefnd ABR. Snæfellsjökull. Magnaðasti blettur í kjördæminu. Vesturland - Sumarferðalag - Verslunarmannahelgin Eins og undanfarin sumur efnir Alþýðubandalagið á Vesturlandi til útivistar og ferðalags um verslunarmannahelgina. Nú verður farið um Snæfellsnes og Nesið skoðað undir leiðsögn gagnkunnugra heimamanna. Gist verður í tvær nætur í svefnpokaplássi á Lýsu- hóli í Staðarsveit. Brottför er frá Akranesi kl. 9 og frá Borgarnesi kl. 10 á laugardagsmorgni 3. ágúst. Heimkoma síðdegis á mánudegi, 5. ágúst. Þau sem í ferðalagið ætla að fara, láti skrá sig sem fyrst hjá einhverjum eftirtalinna: Ólöfu - síma 8811, Grundarfirði, Jónu - síma 1894, Akranesi, Grétari - síma 7506, Borgarnesi, Skúla - síma 6619, Hellissandi, Jóhannesi - síma 6438, Ólafsvík, Þórunni - síma 8421, Stykkis- hólmi, Kristjóni - síma 4175, Búðardal. Nesti, góðir gönguskór og viðlegubúnaður þarf að vera með í för. Það er margt sem alltaf er nýstárlegt og gaman að skoða á Snæ- fellsnesi. Gengið verður á Eldborg ef veður leyfir. Þetta er fjöl- skylduferðalag. - Allir velkomnir. - Kjördæmisráð. ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Friðarbúðir 7.-10. ágúst Allir í friðarbúðirnar ÆFAB efnir til hópferðar í friðarbúðirnar í Njarðvík miðvikudaginn 7. ágúst og eru ailir eindregið hvattir til að nota þetta einstæða tækifæri til andófs gegn helstefnu og hermangi á íslandi. Allir sem áhuga hafa á að taka þátt í undirbúningi fyrir ferðina 7. ágúst eða vilja kynna sér þetta nánar er bent á að áhugasamir friðarsinnar ætla að koma saman að Hverfisgötu 105, fimmtudaginn 25. júlí kl. 20 og rabba saman um væntanlegar aðgerðir. Æskulýðsfylkingin í Reykjavík. Ferðalangar Ath. Sumarferð Æskulýösfylkingarinnar er frestað vegna óviðráðanlegra ástæðna. - Ferðanefnd. ASTARBIRNIR Veistu það, Birna. Ég er orðinn þreyttur á að vera stuttur og digur, þreyttur á að vera í megrun og þreyttur á að finnast ég veikburða. GARPURINN FOLDA í BLÍÐU OG STRÍÐU h 2 3 4 5 6 7 • 8 9 10 11 12 • - 13 14 • □ 15 16 n 17 18 n 19 20 i ■ 21 □ 22 23 n 24 n 25 KROSSGÁTA Nr. 6. Lárétt: 1 skvamp 4 ill 8 bognaði 9 hópur 11 sáðland 12 haldinu 14» eins 15 friður 17 hlýjum 19 ham- ingja 21 fljótið 22'autt 24 tútta 25 drakk. (i Lóðrétt: 1 ágætast 2 hristi 3 hjálpinni 4 fátæk 5 draup 6 fugl 7: ilmefnið 10 álitinn 13 viðkvæmt' 16 lykta 17 rámur 18 þvottur 20 , borðuðu 23 mynni. Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 krem 4 skak 8 fautana 9: póll 11 órar 12 platar 14 Ra 15" önug 17 ógild 19 rói 21 mið 22 - alúð 24 snið 25 laug. Lóðrétt: 1 kapp 2 efla 3 maltöl 4|j stóru 5 kar 6 anar 7 karaði 10|t, ólagin 13 anda 16 grúa 17 óms 18 iði 20 óðu 23 II. K 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJ! "östudagur 26. júlí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.