Þjóðviljinn - 02.08.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Hestaslysið við Skeiðavegamót
Árekstrar hesta og bifreiða áþjóðvegum tíðir. Vantar reið leiðirfyrir hestamenn.
Sigfús Guðmundsson formaður hesta mannafélagsins Smára á Selfossi:
Bœði reiðmenn og öku menn verða að sýna meiri aðgœslu.
Fyrir svo sem eins og tíu dögum
varð alvarlegt slys á Skeiða-
vegamótum skammt frá Selfossi,
þar sem bifreið af tegundinni Sco-
ut ók inn í hóp hesta. Afleiðingar
slyssins voru þær, að aflífa þurfti
tvo hesta og fjórir aðrir slösuðust.
Bifreiðin var talin óökufær eftir
slysið.
Svona slys vekja upp ýmsar
spurningar um umferð bifreiða
og hesta um þjóðvegi landsins og
það er fjarri sanni, að þetta ák-
veðna slys sé undantekning. Það
er talsvert algengt, að bifreiðar
og hestar lendi saman á þjóðveg-
unum. Lögreglunni á Selfossi er
tilkynnt um mörg slík slys á ári
hverju og líklegt verður að telja
að svo sé einnig á öðrum svæð-
um.
Þjóðviljinn hefur haft fregnir
af því, að reiðleið frá Þjórsárbrú
og upp að Þrándarholti hafi verið
lokuð þegar slysið varð, en ann-
ars séu reiðmenn varnir að nota
þá leið í stað þess að fara með
Skeiðarvegi. Blaðamaður bar
þetta undir Sigfús Guðmundsson
formann hestamannafélagsins
Smári á Selfossi. „Jú, þessi reið-
leið var lokuð þegar þetta slys
varð og ég veit ekki betur en hún
sé það enn. En eftir því sem við
höfum komist næst er það óleyfi-
legt, að loka gömlum reiðleiðum.
Við höfum mikið barist fyrir
úrbótum í þessum málum, en það
hefur ekki borið tilætlaðan ár-
angur, því miður. Auðvitað
skapast mikil slysahætta þegar
bæði bifreiðar og hestar eiga leið
um þjóðvegi. En ég er þeirrar
skoðunar, að ef þessir aðilar
sýndu meiri aðgát og tillitssemi
myndi sú hætta minnka til muna.
Svo er spurning hvort ökumenn
og reiðmenn þekkja það sem um-
ferðarlögin segja um þeirra sam-
skipti. Ég þekki það reyndar ekki
sjálfur. Þetta þarf að kynna
mönnum og einnig að brýna fyrir
þeim að fara varlega," sagði Sig-
fús.
Jón I. Guðmundsson yfirlög-
regluþjónn á Selfossi sagði í við-
tali við blaðið, að ástandið í þess-
um málum væri mjög slæmt. Að-
spurður um slysið á Skeiðavega-
mótum sagði Jón, að hemlar bif-
reiðarinnar hefðu ekki virkað
sem skyldi. Reiðmaðurinn taldi
sig hafa nægan tíma til að komast
yfir veginn með hestana áður en
bifreiðina bæri að, en þar sem
bifreiðin var á heldur miklum
hraða og hemlar hennar bilaðir,
Friðarbúðir
Nog
handa
öllum
Bjarni Harðarson:
býður til lundaveislu
Við bjóðum til lundaveislu í
friðarbúðunum flmmtu-
daginn 8. ágúst, sagði Bjarni
Harðarson sem sæti á í miðnefnd
Samtaka herstöðvaandstæðinga
þá er hann leit við á Þjóðviljanum
með væna kippu lunda í gær.
Bjarni hefur verið við lunda-
veiðar í Drangey ásamt þremur
öðrum um mánaðarskeið. Hann
mun hafa meðferðis í friðarbúð-
irnar á þriðjahundrað lunda að
bjóða svöngum friðarbaráttu-
mönnum. „Veiðin hefur að vísu
ekki gengið mjög vel í ár, það er
óhagstætt veður sem á þar mesta
sök“.
„Lundann háfa veiðimenn þar
sem hann svífur hægt og rólega
með bjargbrúninni. Síðan er
lundinn aflífaður áður en hann
hefur haft ráðrúm til þess að átta
sig á hlutunum, semsagt mannúð-
leg veiðiaðferð", sagði Bjarni.
„Arlega eru veiddir um 200.000
lundar hér við land, mest í
Vestmannaeyjum, séu aðstæður
góðar getur vanur lundaveiði-
varð raunin önnur með hinum
hörmulegustu afleiðingum. Jón
sagði að sér vitanlega væru ekki
til neina sérstakar reglur um sam-
skipti ökumanna og hestamanna
á þjóðvegum landsins utan það
sem stendur í 63. grein umferð-
arlaganna. Þessi samskipti yrðu
fyrst og fremst að byggjast á að-
gætni og tilltisemi beggja aðila.
Það væri aftur á móti mjög slæmt
að reiðmenn þyrftu að vera svo
nálægt bílaumferð.
gg
Bjarni Harðarson, með lundakippu, aðeins örlítið brot þess sem boðið verður
uppá í friðarbúðunum nk. fimtudagskvöld: „Það ætti að verða nóg handa öllum,
ef svo verður ekki þá gerir það heldur ekkert til." Ljósm. Ari.
maður veitt og það auðveldlega ekki núna, enda vertíðin léleg
1001undaádag,enþvínáðumvið víðast hvar“. -já
Reiðleiðir vom lokaðar
Vesælt í verðbréfunum
Tekju- og eignaskattslaus verðbréfafirma. Heildargjöld hjáAvöxtun s/f15.045 kr.
á er komið að því að líta á
opinber gjöld nokkurra helstu
rekstrarráðgjafafyrirtækja
landsins og stærstu verðbréfa-
sölufírmanna. Það vekur strax at-
hygli hversu illa hefur árað hjá
öllum þcssum fyrirtækjum þó
veltan hjá flestum þeirra sýnist
vera töluverð, og þau komast öll
hjá því að borga tekjuskatt þetta
árið.
Sömu sögu er að segja um
verðbréfasalanna en að þeirra
eigin sögn hefur verið mikil
gróska á verðbréfamarkaðnum
og skuldabréfin stoppa stutt við.
Eitthvað gefur þessi umboðssala
samt lítið í aðra hönd því ekkert
fyrirtækjanna borgar tekjuskatt
né hefur haft efni á að fjárfesta
því eignaskatturinn er heldur
enginn. Meira að segja eitt fyrir-
tækið Ávöxtun s/f sem lofar í
auglýsingum að ávaxta sparifé
landsmanna á hagkvæmasta
máta, sleppur við aðstöðugjaldið
í ár og fær í heildarálagningu
rúmar 15 þúsund krónur. Hvað
ætli það sé hátt hlutfall af meðal-
afföllum handhafaskuldabréfa á
verðbréfamarkaðnum í dag?
-lg-
Tekjusk. Elgnask. Ulsvar Aðstoöugj. Onnurgj Frádr. Samtals
Rekstrarráðgjafar
Hagvangur h/f
Grensósvegi 13 0 0 0 270.750 367.716 0 638.466
Hannarr Síöumula 1 0 2.939 0 75.510 98.088 0 176.537
íslensk endurskoðun Suðurlandsbr. 14 0 1.091 0 22.660 9.152 0 32.903
Rekstrartækni Síðumúla 37 10.330 0 0 306.300 327.564 0 644.194
Verðbréfasalar
Ávöxtun s/f Laugavegi 97 0 0 0 0 15.045 0 15.045
Fjárfestíngarf. íslands h/f Hafnarstræti 7 0 0 0 225.010 119.715 0 344.725
Kaupþing h/f Húsi verslunarinnar 0 0 0 180.670 166.263 0 346.933
Föstudagur 2. ágúst 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3
Seltjarnarnes
Jafn-
rettislög
brotin?
Félagsráðgjafar mót-
mœla kvenfjandsamlegri
afstöðu bœjarstjórnar
Hið íslenska félagsráðgjafafé-
lag telur að ranglega hafí ver-
ið staðið að ráðningu félagsmála-
stjóra á Seltjarnarnesi nú nýver-
ið. Þar hafi kynferði umsækjenda
skipt sköpum við ráðningu í
stöðuna.
í tilkynningu frá félaginu segir
að ljóst sé að tveir félagsráðgjafar
hafi sótt um starfið. Annars vegar
var það kona með um 15 ára
starfsreynslu og hins vegar ungur
maður sem lauk prófi í félagsráð-
gjöf árið 1982. Karlmaðurinn var
ráðinn í stöðuna en ekki var hirt
um að ræða við konuna, segir í
tilkynningunni.
Það sjónarmið hefur jafnan gilt
við ráðningar, að sá sem lengri
starfsaldur hefur er metinn hæf-
astur, ekki síst þegar um sömu
menntun er að ræða og telur fé-
lagið því ljóst að kynferði um-
sækjenda hafi ráðið úrslitum í
þessu tilfelli. Segir að lokum í til-
kynningunni að HÍF mótmæli
harðlega þeirri kvenfjandsant-
legu afstöðu sem kemur fram í
þessum vinnubrögðum bæjar-
stjórnar Seltjarriarness.
1H
Neskaupstaður
Smábáta-
kvóta
motmælt
Á aðalfundi Samvinnufélags
útgerðarmanna Neskaupstað
(SUN) nýlega urðu umræður um
fiskveiðistefnuna og þá einkum
kvóta smábáta innan við tíu lestir
að stærð, en þaðan eru gerðar út
yfír fímmtíu slíkar trillur og er
aðalveiðitímabil frá því í maí cða
júní og fram í október.
í einróma samþykktri áætlun
segir m.a. að fundurinn lýsi yfir
hörðum mótmælum gegn þeim
ósanngjörnu og fáránlegu reglum
sem opinberir aðilar hafa sett um
fiskveiðar smábáta undir tíu
rúmlestum.
Landsaflakvóti allra slíkra báta
í landinu sé fráleitur og valdi ó-
þolandi misrétti milli veiðisvæða
og landshluta. Fundurinn mót-
mælir einnig einstökum veiðist-
öðvunum trillubáta um hásumar-
ið og nú síðast barnalegum regl-
um um helgarbann á smábafa.
___________________IH
Framleiðsluráð
ASI skipar
ekki
fulltrúa
Miðstjórn Alþýðusambands
íslands hefur ákveðið að ASÍ
skuli ekki tilnefna fulltrúa í þær
nefndir sem ný lög um fram-
leiðsluráð landbúnaðarins kveða
á um. Segir í frétt frá ASÍ að full-
trúa neytenda séu engir mögu-
leikar skapaðir til þess að hafa
áhrif á heildarstefnumótun ráð-
herra og fulltrúa framleiðenda.
Aðild neytenda að verðlagning-
arkerfinu sé greinilega sviðsett og
endurspegli þetta nú sem fyrr við-
horf einokunar- og skrifræðis-
herranna í landbúnaðarráðuneyti
og Bændahöll.