Þjóðviljinn - 02.08.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 02.08.1985, Blaðsíða 7
írsku rokkararnir í U2 sem njóta nú vaxandi vinsælda um gjörvalla heimsbyggð, Hljómsveitin U2 varstofn- uð árið 1976, í ólguborginni Dublin á írlandi. Stofnendur voru fjórir unglingspiltar, sem áttu að heita nám- semnn en voru satt að segja ekki sérlega djúpt sokknir í hin bóklegu fræði. Þessir piltar, sem hófu sam- starf fyrir tæpum áratug og hafa haldið hópinn síðan, eru: söng- varinn Paul Hewson kallaður Bono, Dave Evans, sem nefndur hefur verið The Edge sökum síns hárbeitta gítarleiks, Larry Mullen trommuleikari og loks bassaleikarinn Adam Clayton. Parna var sem sé á ferðinni hin klassíska hljóðfæraskipan rokk- sins, enda hefur löngum verið haldið fram að þessi þrjú höfuð- hljóðfæri séu allt sem þarf til að skapa góða rokktónlist. „Við byrjuðum sem fjórir ung- lingar, sem ekkert kunnum á hljóðfæri. Við lærðum að spila eftir að hljómsveitin var stofnuð. Þá byrjuðum við að semja okkar eigin lög af því að við gátum hreinlega ekki spilað lög eftir aðra.“ í fyrstu gekk hljómsveitin undir nafninu The Hype en það þótti ekki nógu sterkt og hið tví- ræðna en jarnframt víðsýna U2 var valið í þess stað: „Ein ástæða þess að við tókum okkur U2 nafnið var að það er nafn með óljósa merkingu, sem kom í veg fyrir að hægt væri að mynda sér fyrirfram skoðun eða fá ranga hugmynd um hljómsveitina." Bjórinn kom hljóm- sveitinni á framfæri Fyrstu mánuðina fóru U2 að mestu huldu höfði, héldu nokkra tónleika en vöktu litla athygli. Gamli góði bjórinn kom sveitinni loks á framfæri, er U2 komu, sáu og sigruðu í hæfileikakeppni sem bjórrisinn Guinnes stóð fyrir. Sigur U2 vakti að vonum athygli innan tónlistarheimsins, og ekki leið á löngu uns hljómsveitinni var boðinn hljómplötusamningur við írlandsdeild hins heimsfræga fyrirtækis CBS. CBS gaf út tvær smáskífur með U2, sem aðeins komu út á fr- landi. Sú fyrri kom á markað haustið 1979 og innihélt þrjú lög: Stories for boys, Boy-Girl og Out of Control, sem síðar birtist í þrælmagnaðri útgáfu á fyrstu breiðskífu U2. Smáskífan varð mjög vinsæl á írlandi og komst á topp írska vinsældalistans. Sömu sögu er að segja af smáskífunni Antoher day, sem gefinn var út í upphafi árs 1980. U2 hafði því gefið út tvær vinsælar smáskífur í tveimur tilraunum og nú fóru stórlaxar í Englandi á stúfana. Hvert tilboðið á fætur öðru barst hljómsveitinni en svo fór að Islnd records hreppti hnossið í apríl- mánuðil980.Forráðamenn fyrir- tækisins voru í sjöunda himni og sögðu U2 vera mikilvægustu hljómsveitina sem þeir hefðu gert samning við síðustu árin. I maí kom út fyrsta smáskífa U2 í Bret- landi. Þar gat að heyra stórgott lag, ll’clock tick tock, sem varð til þegar Bono var staddur á bar nokkrum í London og hrofði á umkomulausa verkamenn sem drekktu ömurleika tilveru sinnar í brennivíni. Fundu skjól í kristindóminum Fyrstu árin eftir stofnun U2, voru meðlimirnir niðursokknir í hvers kyns dulspeki og hafði grúsk þetta ýmsar neikvæðar af- leiðingar í för með sér. Forvitnin rak þá á vit svartagaldurs og ým- iss konar dulúðar, sem hafði slæm áhrif á sálarlíf þeirra á tíma- bili. Þegar þeir loks losnuðu úr prísundinni fundu þeir skjól í kristnidóminum. Upp frá þessu hefur trú þeirra verið mikið til umræðu í popppressunni en U2 hafa ekki viljað ræða trú sína op- inberlega. Hún skýtur öðru hvoru upp kollinum í textum hljómsveitarinnar, eins og síðar verður vikið að. U2 héldu hverja tónleikana á fætur öðrum og urðu brátt ró- maðir fyrir rnikinn frískleika á því sviði. Traustur kjarni aðdáenda tók að myndast og stækkaði hann óðum eftir því sem leið á árið. Önnur smáskífa, f day without me, leit dagsins ljós í ágúst og að því búnu hófust upptökur á fyrstu breiðskífunni í Windmill lane hljóðverinu í Dublin undir stjórn hins unga og efnilega upptöku- stjóra Steve Lillywhite. í will follow „Boy“ kom út í október og innihélt 11 lög. Platan er óvenju sterkt byrjendaverk, uppfull af geysilega kröftugum rokklögum eins og Electric Co., fyrrnefnt Out of Control og hið klassíska I will follow, sem hljómsveitin leikur æítð í upphafi tónleika sinna. Frammistaða einstakra hljómsveitarmeðiima er með miklum ágætum og ber þá hæst stórkostlegan gítarleik The Edge sem stekkur, með þessari plötu eins og alskapaður gítarsnillingur fram á sjónarsviðið. Boy hlaut mjög góða dóma í tónlistarblöðum og var í árslok á listum flestra slíkra blaða í Eng- landi, yfir bestu plötur ársins 1980. U2 var í upphafi líkt við hljóm- sveitir eins og Joy Division og Television en menn sáu strax að engin ein hljómsveit gat talist fyr- irmynd sveitarinnar. Tónlist þeirra var einstök, kröftugt rokk með merkilegum textum, borið uppi af einstökum gítarleik The Edge, og frábærum söng Bono, sem óumdeilanlega er einn besti rokksöngvari sem komið hefur fram á síðustu árum. 1981 héldu U2 í sitt fyrsta hljóm- leikaferðalag Vorið 1981 héldu U2 í sitt fyrsta hljómleikaferðalag til Bandaríkjanna, auk þess sem þeir styrktu stöðuna heima fyrir, m.a. með útgáfu lagsins Fire, sem varð jómfrúrlag U2 á breska vins- ældalistanum í júlí. Næstu vikur dvöldu piltarnir í Dublin við upp- tökur á næstu breiðskífu, sem nefndist October og kom út í samnefndum mánuði. October fékk blendnari dóm en Boy og þótti sumum sem neistann van- taði til að gera hana að meistara- verki. Flestir voru þó sammála um að Ocotber væri mjög góð plata og almenningur tók vel við sér, því platan komst í 11. sæti breiðskífulistans í Bretlandi. Fyrrnefnd kristintrú U2 birtist í ýmsurn myndum í textum Octo- ber. Má þar nefna lögin Rejoice og Tomorrow þar sem kærleikur Guðs er vegsamaður. í öðrum lögum plötunnar er tónninn ekki eins bjartur s.s. í hinu vinsæla lagi Gloria, sem fjallar um þær hömlur sem settar eru á þær manneskjur sem geta ekki tjáð að óskum á tónleikum höldum við góðu jafnvægi og einver ró og friður ríkir innra með okkur. En ef eitthvað óvænt fer aðgerast sem við ráðum ekki við, getur bókstaflega allt gerst. Þetta er eitt af því skemmtilegasta við okkur - þú veist aldrei hverju þú getur átt von á. Bono er ótrúlegur í þessu sambandi." Þann 18. október síðastliðinn héldu U2 fyrstu tónleikana í hljómleikaferð þeirri sem enn stendur yfir. Þessir tónleikar sem haldnir voru í borginni Lyon í Frakklandi voru hinir frystu a tíu sem haldnir voru á meginlandi Evrópu. Hljómsveitin kom með- al annars fram í Brussel höfuð- borg Belgíu og notfærði sér þá í U2 tilfinningar sínar með orðum: „I try to sing this song, I try to stand up, but I can’t find my feet.“ Party Girl Árið 1982 var fremur tíðinda- lítið, engin breiðskífa leit dagsins ljós og einungisein smáskífa, sem reyndar var hinn mesti gæðagrip- ur. Titillagið var A celebration, einfalt og grípandi rokklag sem náði nokkrum vinsældum og á bakhliðinni gat að heyra lag sem vakti litla athygli á sínum tíma, en hver einasti U2 aðdáandi þekkir í dag. Hér er að sjálfsögðu átt við Trash, Trampline & the Party girl eða bara Party girl eins og það er kallað í stórkostlegri útgáfu á hljómleikaplötu U2. Hópur svita- storkinna ung- menna Allt frá stofnun U2 hefur hljómsveitin verið rómuð fyrir frábæra frammistöðu á tón- leikum. Algeng sjón eftir tón- leika U2 er hópur svitastorkinna ungmenna sem virðast hreinlega verið í öðrum heimi. Sjálfir segja meðlimir U2 að hljómleikahald sé þeim geysilega mikils virði. „Það er alltaf upplifun að spila á nýjum stað, því hvert svið hefur sinn sérstaka hljóm og sál, ef svo má að orði komast." Sviðsfram- koma Bono á hljómleikaferða- laginu eftir útkomu WAR, vakti mikla athygli og umtal, en þar var fastur liður í dagskránni að Bono sveiflaði risastórum hvítum fána, syngjandi Surrender. Þetta atriði var af sumum misskilið sem hrokafull áskorun söngvarans til áhorfenda um að gefa sig á hans vald. Ætlun Bonos var hins vegar að sýna andstöðu við styrjaldir og hið bundna þjóðernisstolt þeirra (her) manna sem, í nafni fánans, myrða náungann með köldu blóði. U2 notaði ryk- fallna jarð- skjálftamæla THE EDGE: „Ef allt gengur leiðinni nokkra rykfalina jarðas- kjálftamæla sem staðið höfðu óhreyfðir í óratíma. Nóvemb- ermánuður hófst svo með fyrstu tónleikum U2 í Bretaveldi síðasta eitt og hálfa árið. Þar var um að ræða tvenna tonleika í tónleika- höllinni Brixton Academy í Lundúnaborg. Aðdáendahópurinn stækkar U2 standa nú á hátindi frægðar sinnar og velgengni. Fimmta og nýjasta meistaraverk þeirra, The Unforgettable fire, komst hátt á vinsældalista víða um heim, með- al annars á toppinn í Englandi og hið frábæra lag „Pride" var eitt vinsælasta lag síðasta árs. Aðdá- endahópurinn kringum þessa fjóra tónlistarmenn þar í landi stækkar dag frá degi, jafnframt því sem hættan á því eykst að U2 einangrist í eigin loftköstulum. Hingað til hefur leiðin verið greið og við skulum vona að þessi stór- góða rokkhljómsveit fái að þró- ast óáreitt tónlistaráhugafólki til gagns og gamans á komandi árum. —sp stytti úr Smell Plötulisti Smáskífur Sept. ’79 1. U23-Out of Control/Boy- Girl/Stories for boys Feb. ’80 2. Another day/Twilight Maí ’80 3. 11 o’clock tick tock/Touch Ágúst ’80 4. A day without me/Things to make and do Okt. ’80 5. I will foIlow/Boy-Girl July ’81 6. Fire/J. Swallow Sept. ’81 7. Gloria/I will follow (Live) Mars’ 82 8. A Celebration/Trash, trampoline & The Party Girl Jan. ’83 9. Ncw Years Day/Treasure Mars ’83 10. Two hearts beat as one/ Endless dcep Sept. ’84 11. Pride (in the name of love)/Bommerang 1 Breiöskífur Október 1980 1. Boy Október 1981 2. October Febrúar 1983 3. War Nóvember 1983 4. Under a blood red sky Október 1984 5. The unforget- table fire Föstudagur 2. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.