Þjóðviljinn - 02.08.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 02.08.1985, Blaðsíða 6
MINNING Drysill í Nú sem endranær verður sitt- hvað um að vera í Húnaveri um verslunarmannahelgina. Þetta árið er það rokksveitin Drýsill sem heldur uppi stuðinu þar nyrðra. Auk þess verður margt annað til skemmtunar. Söngkonan Leoncie Martin kemur fram en hún hefur vakið Velkomin í Það hafa ýmsir sjálfsagt hugs- að sér að fara í Þórsmörk um verslunarmannahelgina. í gegnum tíðina hafa verið i gildi óformlegar reglur um um- gengni á útivistarsvæðum okkar allra. Þeir aðilar sem hafa með Þórsmörk að gera hafa hins vegar séð ástæðu til að setja sérstakar reglur um umgengni í Þórsmörk. Nú þarf til að mynda hver sá hóp- ur sem ætlar sér að dvelja í Þórs- mörk að hafa fararstjóra sem er þá um leið talsmaður hópsins. Á eftirtöldum stöðum þarf einnig sérstakt leyfi til að tjalda og eru ákveðnir aðilar sem veita leyfið. í Langadal (Ferðafélag íslands), Húnaveri mikla athygli fyrir söng sinn og sviðsframícomu. Hljómsveitin Start verður vakin til lífsins á ný, aðeins um þessa einu helgi. Diskótek verður í gangi með bæði gömlu og nýju dansana og snyrting og veitingasala verður opin allan tímann. Aðgangur að svæðinu er ókeypis. gg Þórsmörk Básum (Otivist og Skógrækt Ríkisins), Endum (Skógrækt Ríkisins), Slyppugili (Farfuglar og Skógrækt Ríkisins), Húsadal (Austurleið hf. og Skógrækt Ríkisins). Þá vilja umsjáraðilar Þórs- merkur einnig minna á að of- neysla áfengis getur valdið brott- vísun úr Þórsmörk eða synjun um dvalarleyfi. Þá verður heldur aldrei of oft á það minnt að ekki á að skilja eftir rusl né urða það á víðavangi, ekki skal kveikja elda, þá á ekki að rífa upp grjót né hlaða vörður. Einnig á að vera næturró á svæðinu frá kl. 00.30 til 07.00. Mót og útiskemmtanir Hátíðahöld um Verslunar- mannahelgina verða að öllum lík- indum með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár. Margvísleg mót og útisskemmtanir verða víðs vegar um landið. I Þjórsárdal er það Gaukurinn ’85 sem gefur tóninn. Þangað verða ferðir alla helgina frá BSÍ 1-2 á dag og ferðir frá Þjórsárdal 'laugardag, sunnudag og mánu- dag. I Galtplæk verður haldið veg- legt bindindismót. Á föstudag er í boði sérstakur unglingaafsláttur fyrir 13 til 15 ára. Ferðir frá Reykjavík í Galtalækjarskóg eru föstudag og laugardag og til baka sunnudag og mánudag. Vestmannaeyingar halda sína árlegu þjóðhátíð með ættjarðar- ást og söng. Þangað komast lyst- hafendur með Herjólfi og sér- leyfisferðum Kristjáns Jóns- sonar. Ferðir út í Eyjar hófust á miðvikudag og er farið tvisvar á dag til og frá Eyjum. Austurleið sér um áætlunar- ferð í Þórsmörk en annars staðar má sjá ábendingar til þeirra sem þangað leggja leið sína til náttúruskoðunar og útiveru. Far- ið er daglega frá Reykjavík kl. 8.30 og frá Þórsmörk 15.30. Aukaferð frá Reykjavík föstudag kl. 20.00. í þjóðgarðinn á Þingvöllum eru ferðir daglega kl. 14.00 og aukaferð á föstudag kl. 20.00. Heim aftur er farið með Þing- vallaleið kl. 17.00 daglega. Ólafur Ketilsson sér um ferðir til og frá sælureitnum Laugar- vatni og fer daglega frá Reykja- vík kl. 10.00. Aukaferð á föstu- dagskvöld kl 19.30. Frá Laugar- vatni er farið alla daga kl. 16.00. Sætaferðir í Aratungu eru föstudags- og laugardagskvöld. Á Úlfljótsvatni verður haldin mögnuð fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina. Þangað komast væntanlegir gestir með sérleyfisferðum Selfoss. Ferðir frá Reykjavík föstudag og laugar- dag og frá Úlfljótsvatni sunnudag og mánudag. Á tjaldstæðið á Geirsár- bökkum í Borgarfirði er leikur einn að komast. Frá Reykjavík eru daglegar ferðir föstudag til sunnudags og tvisvar á dag laug- ardag og sunnudag. Frá Geirsár- bökkum er farið k. 16.00 sunnu- dag og mánudag. Þá verða sæta- ferðir frá tjaldstæðinu á dansleik. Á stuðið í Atlavík verða ferðir hvaðanæva að á landinu á föstu- dag og frá Egilsstöðum eru ferðir alla daga. Frá Atlavík verður far- ið á mánudag en til Egilsstaða eru margar ferðir laugardag, sunnu- dag og mánudag. Allar nánari upplýsingar um áætlunartíma, verð og fleira er hægt að fá á BSÍ. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. ágúst 1985 Þorvaldur Þorvaldsson kennari fœddur 13.02. 1929 dáinn 27.07. 1985 Árið 1950 kom til Akraness ungur kennari sem hugði til skammrar dvalar rétt til að reyna sig við kennslu áður en haldið yrði til frekara náms. Viðdvölin varð þó lengri og stóð með litlum hléum allt til æviloka. Þorvaldur Þorvaldsson átti starfsævi sína í framhaldsskólum á Akranesi. Fyrst í Gagnfræða- skólanum, þá í Iðnskólanum og loks í Fjölbrautarskólanum á Akranesi. Eitt skólaár kenndi hann í fæðingarbæ sínum Hafnar- firði og hlé varð á starfsferlinum er hann sótti til náms í Kennara- háskólanum í Kaupmannahöfn. Auk skyldustarfa sinnti hann fél- agsmálum af miklum áhuga og var hvarvetna stórvirkur. Tók hann þátt í störfum fleiri félaga og samtaka en ég kann að greina og lét alls staðar til sín taka. Hann tók virkan þátt í stjórnmálabar- áttu, störfum frímúrara, skáta- hreyfingunni, Norræna félaginu og leiklistarmálum svo nokkuð sé nefnt. Sýndist mér á ýmsu sem leiklistin hafi verið honum hug- stæðust. í menntamálum á Akranesi var Þorvaldur áhrifamaður um langa hríð. Hann átti sæti í skólanefnd Akraness um árabil og skóla- nefnd Fjölbrautaskólans á Akra- nesi frá stofnun hans til dauða- dags. Þorvaldur barðist mjög fyrir gengi og velferð skólanna og átti einna ríkastan þátt í því að Fjölbrautáskóli var stofnaður á Akranesi árið 1977. Hafði hann vandað til almenns undirbúnings skólastofnunar með vönduðum áætlunum og ráðstefnuhaldi, en lokaákvörðun kom seint og því tími til faglegs undirbúnings skammur. Kynni okkar Þorvalds hófust haustið 1977 er Fjöl- Aðstoð íslenskir fiskstjómar- menn aðstoða íbúa Á Grænhöfðaeyjum (Capo Verde) sem eru undan vestur- strönd Afríku eru sex íslendingar að störfum. Starf þeirra felst að- allega í aðstoð við fiskveiðar þar- lendra. Verkefnisstjóri hópsins er Jóhanncs Guðmundsson en, auk hans eru þrír aðrir íslenskir skip- stjórnarmenn, þ.e. skipstjóri, vélstjóri og stýrimaður. Þeir eru á skipinu Feng sem sent var til eyjanna af Islands hálfu. Þá hafa einnig verið á Capo Verde tveir menn frá Sjómælingum. Þeir hafa verið undanfarinn mánuð við fiski- kortagerð. í landhelgi Capo Ver- de hafa aðeins verið kortlögð þau svæði sem mest veiðivon hefur verið í. Þróunarsamvinnustofnun ís- lands hefur annast milligöngu um verkefni þetta á Grænhöfða- eyjum. Það hefur m.a. orðið til þess að á næstunni er væntan- legur í heimsókn til íslands að- stoðarframkvæmdastjóri stærsta útgerðarfyrirtækis þar á eyjum og mun hann kynna sér fiskvinnslu og sölumál hérlendis. IH - Islend- ingar á C. i Verde Auglýsing um stofnaðNd að Verðbréfaþingi ís- lands Starfsemi Verðbréfaþings íslands mun hefjast á hausti komanda. Stjórn þingsins auglýsir hér með eftir umsóknum þeirra verðbréf- amiðlara, sem vilja eiga aðild að þinginu frá upphafi, í samræmi við ákvæði reglna um Verðbréfaþing Islands nr. 268 frá 28. júní 1985 Umsækjendur eða starfsmenn þeirra skulu fullnægja eftirfarandi skilyrðum: a) Vera fjárráða og hafa forræði á búi sínu; b) hafa til að bera næga menntun og reynslu í verðbréfaviðskiptum að mati stjórnar og c) setja verðtryggða bankaábyrgð, eigi lægri en 1 milljón króna í upphafi. Auk þess verður krafist að þingaðilar undirriti drengskaparyfirlýs- ingu um að rækja störf sín eftir bestu samvisku og að hlíta reglum þingsins sem og reglum, sem stjórnin setur. Væntanlegir umsækjendur skulu vera við því búnir að tengjast sameiginlegu tölvukerfi. Umsóknir berist stjórn Verðbréfaþings íslands, Hafnarstræti 10, R. fyrir 20. ágúst 1985. Reykjavík, 1. ágúst 1985 Verðbréfaþing Islands jH| Frá menntamálaráðu- 5ij§' neytinu: Lausar stöður við framhaldsskóla: Kennarastaða í íslensku við Menntaskólann á Akur- eyri. Umsóknarfrestur til 15. ágúst. Framlengdur er umsóknarfrestur til 10. ágúst um áður auglýstar kennarastöður við Menntaskólann á Laugarvatni í ensku og stærðfræði og við Framhalds- skólann í Vestmannaeyjum í þýsku, stærðfræði og félagsfræði. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda til menntamálaráðuneytisins, Hverfis- götu 6, 101 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið brautaskólinn tók til starfa. Átti skólinn starfskrafta hans óskipta og naut fjölhæfni hans til hins ýtr- asta. Hann var óþreytandi starfs- maður, laginn kennari og úr- ræðagóður. Naut reynsla hans sín vel í samstarfi hans við nemendur en hann hafði á hendi um nokk- urra ára skeið eftirlit með félags- lífi í skólanum. Þá lagði hann leiklistarklúbbi nemenda lið og yfirleitt allri menningarstarfsemi. Þorvaldur var einlægur hugsjóna- maður, sem barðist fyrir málstað sínum án þess að skeyta um eigin hag. Hann var óhræddur við að setja fram skoðanir sínar og tók oft röggsamlegar ákvarðanir, en hlaut fyrir bragðið oft óvægna gagnrýni sem þeir hljóta sem ein- hverju koma til Ieiðar. Þorvaldur Þorvaldsson var traustur maður, hann átti viðkvæma listamanns- lund og skarpar gáfur. Hann var vinafastur og vinsæll samstarfs- maður sem við samferðarmenn fengum að njóta of skamma hríð. Eg votta eftirlifandi eiginkonu Ólínu Jónsdóttur og börnum þeirra einlæga samúð. Olafur Ásgeirsson Við erum enn minnt á smæð okkar frammi fyrir hinum hinstu rökum. Þorvaldur Þorvaldsson félagi okkar og samstarfsmaður við Fjölbrautaskólann á Akra- nesi er látinn. Við eigum honum margt að þakka. Þorvaldur var í forystusveit þeirri er á sínum tíma vann að stofnun Fjölbrauta- skólans. Hann var kennari við skólann frá upphafi og átti sæti í skólanefnd þar sem hann barðist ötullega fyrir uppbyggingu skólans og jákvæðri þróun hans. Áhugi Þorvaldar og reynsla í starfi varð mörgum kennaranum til uppörvunar er úr vöndu var að ráða. Þegar á reyndi var styrkur- inn mestur. Þorvaldur var annál- aður kennari meðal þeirra mörgu nemenda sem nutu kennslu hans. Þegar starfinu sleppti var gott að leita athvarfs hjá Þorvaldi og njóta kímni hans og ánægju af því að vera í hópi fólks. Síðastliðið haust hóf Þorvaldur framhaldsnám erlendis. Var ætl- an hans að sérhæfa sig í kennslu- grein sinni, trúr þeim eldmóði er einkenndi störf hans. En mein sem mannlegum mætti reyndist yfirsterkara gaf honum ekki þau grið er við þurfum til að lifa. Því er Þorvaldur nú einungis með okkur í minningunum. Þær minn- ingar eru bjartar og munu lifa lengi meðal samstarfsfólks hans. í niðurlagi þessara kveðjuorða sendi ég Ólínu og börnum sam- úðarkveðjur og hughreystingar- óskir frá öllu starfsfólki Fjöl- brautaskólans á Akranesi. Þórir Ólafsson, skólameistari

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.