Þjóðviljinn - 02.08.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 02.08.1985, Blaðsíða 9
HEIMURINN Kjöt þeirra skuluð þér ekki eta; kannski snýst svinamálið um sjálfan tilveru- grunn (sraelsríkis. ' Israel Svínakjöt fyrir stjórn- málavinskap Hreintrúarmenn vilja „hvítusteikina“ útlœga úr ríki gyðinga. Svínabœndur óhressir en hvorugur stóruflokkanna vill styggja trúmenn. Hreintrúarmenn í ísrael eru nú undir forystu rabbíanna skrefi nær því marki að stöðva svínakjötsát í ríkinu. Frumvarp um að banna svínaeldi og sölu á svínakjöti utan arabasvæða var samþykkt við fyrstu um- ræðu (einskonar for-umræðu eða þingmálastu) í ísraelska þinginu, Knesset, - meðal annars með atkvæðum Sham- irs utanríkisráðherra úr hægri- flokknum Líkúd og forsætis- ráðherrans Peres úr Verka- mannaflokknum. Einsog sjá má hér að ofan eru svín talin óhrein í lögmáli gyð- inga, og hinir trúræknustu meðal ísraelsmanna hafa háð langa bar- áttu gegn því að þessi lögmáls- kafli sé brotinn í ríkinu. „Svínið var skapað í þeim sérstaka til- gangi að vera okkur tákn guð- leysis, lyga og hræsni" sagði einn flutningsmanna frumvarpsins á þingi, innanríkisráðherrann og rabbíinn Jitsak Perets: „svínið er viðbjóðsleg og andstyggileg skeppna." Um 100 þúsund grísir eru ár- lega leiddir til slátrunar í ísrael, og kjötneyslan er 10 þúsund tonn á ári. Svínabændur eru bæði kristnir arabar og gyðingar á sam- yrkjubúum (kibbúts), svínakjöts- píta, einn vinsælasti skyndibit- inn, og ríkisstjórnin hefur hönd í bagga með eldi svína á nokkrum stærstu kibbútsunum þrátt fyrir lögmálið og borgarreglugerðir sem banna svínakjötssölu. Raunar þurfa kjötbúðir og veitingahús sem stendur ekki að óttast mikla refsingu fyrir að selja svínakjöt, sektin nemur um 500 íslenskum krónum, en þó er svín- ið dulbúið á matseðlunum sem „annað kjöt“ eða „hvít steik“. Svínabændur eru lítt hrifnir af framgöngu hreintrúarfrumvarps- ins. „í þjóðsöngnum segir að við séum frjálsir menn í frjálsu landi“ segir einn þeirra, ég vil vera frjáls að því hvað ég hef í mat- inn.“ Og bætir við að hann sé full- ur áhyggju, ekki bara vegna svín- anna og eigin fjárhags, - „ég hef áhyggjur af því að Ísraelsríki sé á leiðinni úti kómeinisma“. Hingað til hefur meirihluti ís- raelsþings staðið gegn öllum til- raunum strangtrúarmanna um að koma svíninu fyrir kattarnef. En strangtrúarflokkar hafa eflst hin síðari árin í ríkinu, vaxið fylgi og öðlast úrslitaáhrif í því tvísýna einvígi sem stóru flokkarnir tveir hafa átt í á þingi og í kosningum. Nú er við lýði samsteypustjórn hægribandalagsins Líkúd og Verkamannaflokksins, og með í henni nokkrir hreintrúa smá- flokkar. Leiðtogar stóru flokk- anna vita að samsteypan stendur ekki til eilífðar, og þegar uppúr slitnar gæti riðið á að njóta stuðn- ings smáflokkanna: þeir skulu því ekki styggðir. Og fyrri andstæð- ingar svínabanns á þingingu sáu sér þann kost vænstan að veita frumvarpi innannkisráðherrans brautargengi. Raunar má þetta ísraelska svínamál vera til marks um eitt af fjölmörgum ljónum í vegi friðsamlegrar lausnar á standinu í þessum eldfima heimshluta: ísra- elsmenn hafa sjálfir ekki komið sér saman um tilverugrunn eigin ríkis, og andstæður skerpast milli þeirra sem eru að endurreisa konungsríki Davíðs og hinna sem vilja lifa þokkalegu nútímalífi í skjóli frá hitlerískum ofsóknum allra landa. Af þeim sem jórtra og klaufir hafa megið þérþó ekkiþessi eta: úlfaldann, þvíað hann jórtrar að sönnu, en ereigi klaufhœfður; hann sé yður óhreinn; stökkhérann, því að hann jórtrar að sönnu, en hefir eigi klaufir; hann sé yður óhreinn; hérann, því að hann jórtrar uð sönnu, en hefir eigi klaufir; hann sé yður óhreinn; og svínið, þvt' aðþað hefir að sönnu klaufir -ogþœr alklofnar -, en jórtrar ekki; það sé yður óhreint. Kjöt þeirra skuluð þér ekki eta og hrœ þeirra skuluð þér ekki snerta; þau skulu vera yður óhrein. (3. Mós. 11, 4-8) Suður-Afríka Tala einsog ég hef alltaf talað Tutu virðir ekki útfararbannið. EBE-lönd kalla sendiherra til fundar. Málþófi hótað á Bandaríkjaþingi. Johannesburg/Helsinki - Des- mond Tutu biskup, helstur leiðtogi suðurafrískra blökku- manna, sagði í gær að hann mundi ekki virða þær regiur sem ríkisstjórnin hyggst setja um útfarir svartra fórnarlamba í Suður-Afríku. „Ég tala einsog ég hef alltaf talað“ sagði Tutu við jarðarför í gær, „veraldlegir valdhafar geta ekki stjórnað því hvaða kenningu ég pre- dika“. Óeirðir halda enn áfram í hverfum svartra innan og utan neyðarlagasvæðanna. í gær hafði lögregla handtekið 1329 stjórnar- andstæðinga. Allar samkomur blökkumanna eru bannaðar og í fyrradag var því lýst yfir að settar ...Um hundrað fulltrúar helstu kirkjudeilda í Bandaríkjunum hafa gagnrýnt Reagan- stjórnina fyrir að reyna að eyða andstöðu meðal almenn- ings vestra gegn bandarískri hernaðaríhlutun í Níkaragúa. ...Lfkur eru taldar á að Marcos Filippseyjaforseti rjúfi þing og boði forsetakosningar í nóv- ember. Andstöðuþingmenn ætluðu að bera upp frumvarp um brottrekstur hans í þinginu vegna fjármálahneykslis sem Marcos er flæktur í. ...Kínverskir vísindamenn eru steini lostnir yfir trjám sem vaxa í borginni Wenzhou í austurhluta landsins. Bolur trjánna hefur fjögur horn, þversneið reglulegur ferning- ur. Trén eru þriggja til fjögurra metra há og hver bolhlið um tíu sentimetrar. ...Elísabet Taylor og aðrir vinir Rock Hudson í Hollywood hafa yrðu reglur um fjölda og ræðu- menn við jarðarfarir sem undan- farið hafa tekið á sig æ pólitískari svip. Fulltrúar deildanna í banda- ríska þinginu hafa náð samkomu- lagi um frumvarp sem takmarkar suður-afrísk viðskipti við Banda- ríkin. í frumvarpinu er bann við bankalánum til landsins, bann við sölu kjarnorkubúnaðar og tölvubúnaðar til her- og lögreglu- nota og bann við sölu suðurafrí- skrar gullmyntar. Þingið tekur málið fyrir í næstu viku, en íhaldssamir þingmenn hafa þegar hótað málþófi frammí væntanleg þingslit. Alls óvíst er að Reagan undirriti framvarpið þótt sam- þykkt verði. ákveðið að safna milljón doll- urum (um 40 milljón ísl. kr.) til að berjast gegn alnæmu (AIDS). Rock Hudson, fræg- astur þeirra sem fengið hafa sjúkdóminn, er kominn til Los Angeles frá París og er hress eftir atvikum. ...Greiða átti atkvæði í annarri deild ítalska þingsins um traustsyfirlýsingu um ríkis- stjórn Craxi eftir að uppvist varð að hin ítalska Landsvir- kjun og hinn ítalski Seðlabanki áttu vænan hlut að máli þegar líran hrapaði skyndilega á gjaldeyrismarkaði seinnihluta júlímánaðar. Gert var ráð fyrir að stjórnin stæði af sér at- kvæðagreiðsluna, en málið allt hefur orðið henni hnekkir. REUTER Umsjón: Mörður Árnason Utanríkisráðherrar Efnahags- bandalagslanda komu saman í Helsinki í fyrradag og komust að því samkomulagi einu að kalla sendimenn sína í Suður-Afríku til Brússel á ráðslagsfund. Belgar höfðu lagt til að EBE-löndin sameinuðust um efnahagsað- gerðir gegn Suður-Afríku, en vesturþjóðverjar og bretar eru því mótfallnir. Heppinn þar Limágræðsla! Vancouver - í gær græddist ungum manni getnaðarlimur á kanadísku sjúkrahúsi, og er það í fyrsta sinn sem þarlendis er fengist við slíkt verk. Maðurinn með liminn var þokkalega hress í gær eftir sjö- tíma skurðaðgerð en ekki kemur strax í ljós hvort límágræðslan hefur tekist. Um 30 slík læknis- verk eru kunn hingað til, og hefur rúmur helmingur þeirra hepnast að kalla. Sjúkrahúsmenn gátu þess ekki hvernig limurinn varð upphaf- lega viðskila við hinn hluta líkam- ans. Skuldir Getum bara ekki borgað Skuldir Suður- Ameríku: 1440 billjónir Havana/Lima/Caracas - Er- lendar skuldir þriðja heimsþjóða eru brýnasti heimsvandinn, segir EBE- kommissarinn Claude Cheys- son i ferð sinni um Suður- Ameríku, og hefur hvatt til al- varlegra viðræðna milli Efnahagsbandalagsríkja og suður-ameríkana um máli. Leiðtogar Suður-Ameríku ák- váðu að leita eftir slíkum við- ræðum þegar þeir hittust í höfða- borg Perú í vikunni til að fylgjast með embættistöku hins nýja for- seta þarlendra, Alan Garcia. Garcia sagði í setningarræðu sinni að Perú mundi í ár ekki borga aftur af skuldum sínum nema 10% útflutningstekna í stað 45% í fyrra, og skoraði á önnur lönd að fylgja í fótsporin. Fidel Castro hefur hinsvegar hvatt til að ríkisstjórnir álfunnar ákveði sameiginlega að hætta af- borgunum af skuldum sínum, og búist er við að þúsundmanna skuldaráðstefna sérfræðinga, stjórnmálamanna og mennta- manna í Havana taki í svipaðan streng. Erlendar skuldir þjóða í Suður-Ameríku eru samtals um 1440 billjónir íslenskra króna. Skipulagsráðherra Bólivíu, einn fárra opinberra ráðstefnugesta í Havana óttast að slík ákvörðun gæti leitt til efnahagslegrar ein- angrunar, en segir jafnframt að ástandið sé alvont: „Það er ekki þannig að við viljum ekki borga skuldir okkar, - við bara getum það ekki.“ Helsinki Vonir um þíðu Shevardnadze vinsœll, en ein svala á lofti.. Helsinki - Fundi 35 utanríkis- ráðherra í minningu tíu ára Helsinkisáttmála lauk í gær- kvöldi þegar allir höfðu fengið að halda ræðuna sína. í frétt- um af ráðstefnunni gætir bjartsýni um bætta sambúð austurs og vesturs, og sumir telja líkur á „þíðu“ í sam- skiptum risaveldanna sem hafa verið nokkuð kaldranaleg síðasta hálfa áratuginn. Kastljós fjölmiðlunga og fund- armanna hefur einkum beinst að nýja sovéska utanríkisráðherran- um, Edvard Shevardnadze, frammistöðu hans og viðræðum við vestræna starfsbræður. Þykir grúsíumaðurinn bjóða af sér góð- an þokka, og samtöl hans við bandaríkjamanninn Schultz og frakkann Dumas hafa vakið von- ir um að stórveldin austan og vestan tjalds séu reiðubúnari nú en áður að setjast niður til alvöru- viðræðna um deilumál sín. Að loknum fundi með sovét- manninum sagði franski utanrík- isráðherrann Roland Dumas að hann hygði Sovét mundu ganga lengra í málamiðlunarátt en verið hefur á afvopnunarráðstefnunni í Stokkhólmi í efnavopnaviðræð- unum í Genf. í sovésk-bandarísku viðræðun- um var meðal annars gengið frá frumdrögum að dagskrá nó- vemberfundar Reagans og Gor- batsjoffs í Genf og þykja vinahót Schultz og Shevardnadze benda til að sá fundur verði ekki eins árangurslítill og búist var við. En bæði nadarískir og sovéskir full- trúar vara við of mikilli bj artsýni; mýkri viðræðustíll merki ekki að ágreiningsmál séu úr sögu. „Ein svala á flugi þýðir ekki að það sé komið sumar“ sagði Vladimir Lomeikó talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins. Þetta gerðist líka... Föstudagur 2. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.