Þjóðviljinn - 02.08.1985, Blaðsíða 15
Kvennaboltinn
Haukar
í 1. deild
Haukastúlkurnar tryggðu sér
sæti í 1. deild kvenna í knatt-
spyrnu í gærkvöldi með því að
vinna Fram 4-0 á Hvaleyrarholt-
inu. Staðan í hálfleik var 1-0. He-
lena Önnudóttir skoraði 2 mark-
anna, Hrafnhildur Gunnarsdótt-
ir þjálfari eitt og eitt var sjálfs-
mark Framara. Það verða því
Haukar og Víkingur sem fara
uppí 1. deildina en liðin eiga eftir
að leika til úrslita um meistaratitil
2. deildarinnar.
Stjarnan vann ÍR 3-0 á ÍR-
vellinum - Guðný Gunnsteins-
dóttir gerði 2 markanna og
Brynja Astráðsdóttir eitt úr vít-
aspyrnu. Staðan í B-riðli erþessi:
Haukar...............10 8 2 0 29-4 26
Stjarnan..............8 6 0 2 16-4 18
Fram..................8 4 2 2 14-9 14
Hveragerði..........8 3 14 15-18 10
[R....................9 1. 1 7 5-21 4
Selfoss...............7 0 0 7 3-25 0
Drengjaliðið
Slæmur
skellur
íslenska drengjalandsliðið í knatt-
spyrnu fékk slæman skell gegn gest-
gjöfunum, Norðmönnum, á Norður-
landamótinu í gærkvöldi. Norðmenn
sigruðu 7-2 eftir að hafa leitt 3-0 í
háifleik.
Gunnlaugur Einarsson úr Val
skoraði fyrsta mark síðari hálfleiks,
Norðmenn svöruðu en Gunnlaugur
var síðan aftur á ferðinni og staðan þá
4-2. Heimamenn skoruðu þrjú mörk
til viðbótar áður en yfir lauk og stór-
sigur þeirra varð staðreynd.
ísland á eftir einn leik á mótinu -
gegn Finnum á morgun.
4. deild
Jafnt á
Ströndinni
Tveir síðustu leikirnir í riðlakeppni
4. deildarinnar í knattspyrnu fóru
fram í fyrrakvöld.
Æskan og Tjörnes gerðu jafntefli,
1-1, á Svalbarðsströndinni í E-riðli.
Jóhann Sævarsson kom Æskunni yfir
en Sigurður Illugason jafnaði fyrir
Tjörnesinga fyrir hlé.
Skytturnar töpuðu 2-3 fyrir Svarf-
dælum á Siglufirði í D-riðlinum.
Gunnlaugur Guðleifsson og Ragnar
Ragnarsson skoruðu fyrir Skytturnar
en Tómas Viðarsson 2 og Hörður Lil-
lendahl fyrir Svarfdæli.
-VS
Jóhannes Eðvaldssón í bar-
áttu við KR-ing í fyrsta leik
íslandsmótsins, kæruleiknum
fræga. Hann lék tvo fyrstu
leiki Þróttar en nú er Ijóst að
þeir verða ekki fleiri.
haattiir!
Slœmt
gengi Þróttar
undanfarið.
Tökum
áhœttu,
s
segir Omar
Jóhannes Eðvaldsson er hættur störfum sem þjálfari 1.
deildarliðs Þróttar í knattspyrnu! Hann tók við liðinu sl. vetur
og gekk ágætlega framanaf en síðustu vikurnar hefur allt gengið
á afturfótunum og Þróttur er kominn í bullandi fallhættu.
í fréttatilkynningu sem Þróttur og Jóhannes sendu frá sér í
gær segir m.a.: „Eru Jóhannes og stjórn Knattspyrnudeildar
Þróttar sammála um að lið félagsins hefur ekki náð þeim árangri
sem stefnt var af, og því var ákveðið að láta núverandi samstarfi
lokið. Stjórn Knattspyrnudeildar Þróttar þakkar Jóhannesi Eð-
valdssyni störf hans og óskar honum góðs gengis í framtíðinni.
Jóhannes Eðvaldsson óskar Þrótturum góðs gengis og biður
fyrir kveðju til allra knattspyrnuunnenda á íslandi.“
„í síðustu sex leikjunum hefur allt stefnt niðurávið og það var
ekki hægt annað en að grípa til aðgerða. Við tökum ákveðna
áhættu og síðan verður bara að koma í ljós hvort hún borgar
sig,“ sagði Ómar Siggeirsson formaður knattspyrnudeildar
Þróttar í spjalli við Þjóðviljann í gær.
Það hefur vakið athygli að mannabreytingar í Þróttaraliðinu í
undanförnum leikjum hafa verið miklar og í 11 leikjum 1.
deildar hefur það notað 22 leikmenn. Engin stöðugleiki og
síðustu leikir liðsins hafa verið mjög slakir.
-VS
ÍÞRÓTTIR
V. Þýskaland
Briegel útnefndur
Vestur-þýskir íþróttafrétta-
menn útnefndu í gær Hans-Peter
Briegel knattspyrnumann ársins.
Briegel leikur með ítölsku
meisturunum Verona og þetta er í
fyrsta sinn í 25 ára sögu þessa
kjörs að valinn er leikmaður sem
leikur með liði utan V. Þýska-
lands.
Frestur
Þróttarar hafa frest til 10. ág-
úst til frekari aðgerða í, Jónsmál-
inu“ sem reis vegna leiks KR og
Þróttar í 1. umferð íslandsmóts-
ins í knattspyrnu, eins og frægt er
orðið. Þróttarar bíða eftir því að
lögmaður þeirra, Magnús Ósk-
Briegel fékk 125 atkvæði, ann-
ar varð Rudi Völler frá Bremen
með 113 atkvæði og þriðji var
Klaus Allofs frá Köln með 71 atT
kvæði. Toni Schumacher, mark-
vörður Kölnar og vestur-þýska
landsliðsins, hlaut þessa útnefn-
ingu í fyrra en nú varð hann í 12.
sæti með 8 atkvæði. -VS/Reuter
til tíunda
arsson, komi til landsins nú um
helgina en eftir það dregur vænt-
anlega til tíðinda. „Það verður
ekkert gefið í þessu máli,“ sagði
Ómar Siggeirsson formaður
knattspyrnudcildar Þróttar í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Hans-Peter Briegel, varnarmaðurinn
kraftmikli, er besti leikmaður Vestur-
Þjóðverja að mati þýskra íþrótta-
fréttamanna.
Jónsmálið
Pétur
Enn fastur!
Skoraði tvö m örk í tveimur leikjum með
Servette. Antwerpen stendur enn í
veginum
Pétur Pétursson knattspyrnu-
maður er kominn til landsins að
nýju frá Sviss, þar sem hann
skoðaði aðstæður hjá svissneska
liðinu Servctte með samning í
huga. Servette hafði samband við
Pétur á fimmtúdaginn í síðustu
viku og fór Petur utan strax
morguninn eftir. Samningar tók-
ust ekki og að sögn Péturs er
ástæðan sú að Antwerpen vill
ekki sleppa af honum hendinni
enn sem komið er.
„Mér leist mjög vel á allar að-
stæður hjá félaginu, sem varð
svissneskur meistari á síðastliðnu
keppnistímabili. Ég lék með
þeim tvo æfingaleiki, tókst að
skora tvö mörk og þeim leist vel á
mig, en af einhverjum ástæðum
sér Antwerpen ástæðu til að
standa í vegi fyrir mér ennþá“,
sagði Pétur í viðtali við blaðið.
-gg
Kvennaboltinn
ÍA missti stig
Guðrún inná sem varamaður og jafnaði
gegn KR á síðustu mínútu. Erla skoraði
4 í Keflavík
ÍA tapaði óvænt sínum fyrstu
stigum í 1. deild kvenna í sumar
með því að gera jafntefli gegn
KR,. 3-3, á grasvelli KR-inga í
gærkvöldi. Reyndar stefndi allt í
sigur KR því Guðrún Gísladóttir
skoraði jöfnunarmark IA tæpri
mínútu fyrir leikslok - skaut í
þverslána og niður - mark að
mati Baldurs Þórðarsonar dóm-
ara. Guðrún var þá nýkomin inná
sem varamaður.
ÍA náði forystunni strax í byrj-
un þegar Ragnheiður Jónasdóttir
skoraði en Arna Steinsen jafnaði
úr vítaspyrnu og Björg Sigþórs-
dóttir kom KR í 2-1 fyrir hlé.
Halldóra Gylfadóttir jafnaði fyrir
ÍA með glæsilegu skoti, sláin inn,
í upphafi síðari hálfleiks en um
miðjan hálfleikinn fékk KR aðra
vítaspyrnu. Arna afgreiddi hana
einnig af öryggi. Staðan 3-2 og
KR virtist ætla að halda fengnum
hlut með mikilli baráttu og allan
brodd vantaði í sóknarleik ÍA,
enda Laufey Sigurðardóttir lasin
heima á Akranesi. En Guðrún
bjargaði málunum og ÍA ætti
ekki að missa af meistaratitlinum
þrátt fyrir þetta.
Breiðablik gerði sitt til að
þjarma að ÍA - vann ÍBK 9-0 í
Keflavík. Leikurinn var alger
einstefna á mark Keflavíkur-
stúlknanna einsog tölurnar bera
með sér en staðan var 4-0 í hálf-
leik. Erla Rafnsdóttir skoraði 4
marka Breiðabliks, Ásta B.
Gunnlaugsdóttir 2, Lára Ás-
bergsdóttir 2 og Ásta María
Reynisdóttir eitt.
Staðan í 1. deild:
lA 11 10 1 0 46-8 31
Breiðablik 10 8 0 2 49-8 24
Þór A 10 6 0 4 19-19 18
KR 11 4 1 6 19-28 13
Valur 9 4 0 5 23-14 12
KA 9 4 0 5 9-16 12
iBK 10 3 0 7 9-51 9
iBl 10 0 0 10 5-35 0
Markahæstar:
ErlaRafnsdóttir, Breiöabliki...........16
ÁstaB. Gunnlaugsd., Breiöabliki........15
Ragnheiöur Jónasdóttir, lA.............15
AnnaEinarsdóttir, Þór.................11
Laufey Siguröardóttir, (A.............11
Ásta María Reynisd., Breiðabliki.......10
-VS
Golf
Fyrsti meistari
Húsvíkinga
Ómar og Sigurður efstir í mfl. karla
Húsvíkingar eignuðust í gær
sinn fyrsta Islandsmeistara í golfi.
Sigríður P. Ólafsdóttir tryggði
sér þá sigur í 2. flokki kvenna á
landsmótinu í golfi sem nú stend-
ur yfir á Akureyri, lék 36 holur á
189 höggum. Ilildur Þor-
steinsdóttir, GK, og Kristíne
Eide, NK, léku á 198 höggum
hvor en Hildur náði öðru sætinu
eftir þriggja högga einvígi.
Keppni er hálfnuð í 2. og 3.
flokki karla, leiknar hafa verið 36
holur af 72. Karl H. Karlsson,
GK, Rúnar Gíslason, GR, og
Guðmundur Sigurjónsson. GS,
eru jafnir og fyrstir í 2. flokki með
168 högg. ívar Harðarson, GR,
hefur forystu í 3. flokki með 175
högg, Guðmundur Bjarnason,
GS, hefur leikið á 177 höggum og
í þriðja sæti er Guðni Magnússon
frá Eskifirði með 181 högg.
í 1. flokki karla hafa verið
leiknar 18 holur af 72. Helgi
Eiríksson, GR, er með foryst-
una, hefur leikið á 75 höggum.
Næstir koma Stefán Unnarsson,
GR, sem er með 77 högg og þeir
Óttar Ingvason, GR, og Olafur
Gylfason, GA, sem hvor um sig
hafa notað 78 högg.
Ómar Örn Ragnarsson frá
Leyni á Akranesi er með forystu í
meistaraflokki karla eftir fyrstu
18 holurnar sem kláruðust seint í
gærkvöldi - ásamt íslands-
meistaranum Sigurði Péturssyni
úr GR. Þeir hafa leikið á 75 högg-
um hvor. Sigurður Hafsteinsson,
GR, er með 76 högg, Hannes
Eyvindsson, GR, 77, og þeir
Gylfi Kristinsson, GS, og Karl Ó.
Karlsson 78 högg hvor.
Fyrstu 18 holunum í meistara-
og 1. flokki kvenna var ekki lokið
þegar blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi. _vs
Föstudagur 2. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15