Þjóðviljinn - 02.08.1985, Síða 8
GLÆTAN
„Mór finnst æðislega gaman að hanga hérna á Hlemm."
Gldtafl á tí'lewM i
n Ct
U/yöijwfififfíWijLj'j
Hjördís var inni á Hlemmi
þegar Giætan átti leið þar
um. Hún er algjör pönkari í
útliti og spurði ég hana
fyrst að því hvort hún væri
pönkari.
„Nei, kannski í útliti, en ekki í
mér, systir mín og vinkona henn-
ar eiga heiðurinn af hárgreiðsl-
unni. Það er stundum meiriháttar
að ganga um göturnar og sjá
þetta gamla lið snúa sig úr hál-
sliðnum, þegar það sér hausinn á
mér, sérstaklega af því að mér
finnst ekkert að hárgreiðslunni.
Ég bý á Unglingaheimili Ríkis-
ins. Þar er mjög gott að vera,
flestir starfsmennirnir hafa góðan
„húmor“, og reyna að hjálpa
okkur svo að við getum komið
betri manneskjur út. Annars
finnst mér ekkert að mér, ég verð
sennilega á Unglingaheimilinu
næsta vetur vegna þess að að-
stæðurnar heima eru svo erfiðar.
Ég er búin að vera 3 vikur í
saltfiki í ísbirninum, og er það
miklu skárra heldur en Unglinga-
vinnan. Við fáum 66 krónur á
tímann, þegar krakkar jafn gaml-
ir fá 54 krónur í unglingavinn-
unni. En gallinn við fiskinn er hve
vinnutíminn er langur. Ég hef
mjög takmarkaðan tíma fyrir mig
og kunningjana. Mér finnst æðis-
lega gaman að hanga hérna niðri
á Hlemmi, því maður hittir alltaf
einhverja af krökkunum. Annars
geri ég ekki mikið í mínum frí-
tíma, ég hlusta mikið á Ninu Hag-
en og Dio.
Um verslunarmannahelgina
ætla ég að reyna að komast í Atla-
vík; þar verður fjörið. Ég fer
sennilega ein, en maður hittir
alltaf einhverja. Það er ágætt að
fara í ferðalög, ég fór t.d. um
páskana með Unglingaheimilinu
á Snæfellsnes, en var send heim
vegna að ég og nokkrar stelpur
hittum stráka sem voru á bíl og
buðu okkur á rúntinn. Þeir voru
auðvitað með brennivín og buðu
okkur nokkra sjússa, og með það
fengum við fararpassann beint í
bæinn.
Ég verð ekki vör við að krakk-
ar hafi fordóma gagvart okkur
sem búum á Unglingaheimilinu,
enda er yfirleitt ekkert að okkur,
þetta eru yfirleitt ytri aðstæður
sem þvinga okkur á þennan stað,
eins og f mínu tilfelli þá er ég á
Unglingaheimilinu út af erfiðum
heimilisaðstæðum. Það er í lagi
að birta þetta, mamma og pabbi
hafa gott af því að sjá ástæðuna á
prenti.“ -sp
Viö hittum Koibrá Braga-
dóttur inni á Hlemmi, hún
var einsog aðrir aö slæpast,
sýna sig og sjá aðra. „Æ, ég
nennti alls ekki í morgun í
vinnuna, þetta eralgjört
þræiahald hjá ísbirninum,
viö erum aldrei búin aö
vinna á okkar rétta tíma.
Það er yf irleitt unnið til 7
eða 10 á kvöldin og svo er
oft unnið á laugardögum.
Maður verður einhvern tím-
ann að vera til og hitta
kunningjana.
Ég og vinkona mín fengum
vinnu í saltfiskinum í ísbirninum,
það eru miklu betri laun þar en í
unglingavinnunni og var það ekki
spurriing hvað við ætlum að gera.
Það eru margir skrýtnir karlar að
vinna þarna, enda hver heldurðu
að endist í svona vinnu? Maður
getur að minnsta kosti skemmt
sér við að horfa á þá reyna við
stelpurnar!
Þegar ég er ekki að vinna og
ekki hér á Hlemmi, er ég yfirleitt
á hljómsveitaræfingum. Við vor-
um fjórar saman í „stelpu-hljóm-
sveit“ sem við köllum Einingu,
en nú erum við bara eftir þrjár.
Við rákum eina vegna þess að
hún var ekki nógu góð. Ég spila á
bassa og fékk ég hann lánaðan
hjá strák sem ég er með. Hann
spilar líka á bassa og hefur til um-
ráða tvö stykki. Við spilum all-
skonar músík en höfum ekki ver-
ið að hafa okkur að fíflum með
því að vera að koma fram.
Ég hlusta talsvert á tónlist og
höfðar Voice mest til mín. Ann-
ars reynir maður að vera sem
mest með kunningjunum því þeir
skipta mig öllu máli, mér finnst
gott að vera í fjölmenni. Um
næstu helgi nenni ég ekki að gera
neitt, ég ætla bara að vera heima
og hafa það gott.“
Aðspurð um dóp og eiturlyfj-
aneyslu unglinga sagði hún að
það væri mikið um að krakkar á
hennar aldri væru í allskyns pill-
um, reyktu hass og tækju inn
LSD. Énda væri nokkuð gott
verð á þessum hlutum. „Það
kostar aðeins 700 krónur „tripp-
ið“ sem er álíka og verðið á
brennivínsflösku. Það er allt
niður í 11 ára krakka sem eru í
„spítinu", ætli þeir ffli ekki betur
vímuna af LSD heldur en af
brennivíninu.“
Kolbrój Bragadóttir 14 ára: „Krakkarnir taka inn LSD til að gefa skít í liðið".
- Hvernig fara þau að því að
frjármagna neysluna?
„Það er ekkert mál fyrir þau,
þau „klinka" þ.e. sntfkja fyrir
því. Þá betla þau af fólki fyrir
strætó, þau eru nokkuð fljót að fá
700 krónur. Þau fá líka lánað sem
þau náttúrlega borga aldrei aftur
og svo stela þau líka. Ég veit ekki
hvers vegna krakkarnir eru að
þessu, þau eru sennilega bara að
gefa skít í liðið!“
- Hvar heldurðu að krakkarnir
komist yfir dópið?
„Það er ekkert mál fyrir þau,
markaðurinn hefur verið yfirfull-
ur hingað til. Þau geta t.d. keypt
sér dóp hérna á Hlemmi. Eftir að
fíknó, sem er nú vengjulega al-
gjör „gufa“ fann allt þetta magn
af LSD þá held ég að markaður-
inn verði tómur í bili. Þannig að
skammturinn getur orðið mikið
dýrari,“ sagði Kolbrá að lokum.
-sp
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir 1. (1.) There must be an angel (playing in my heart) - Eurithmics 2. (2) You are my heart, you are my soul - Modern Talking 3. ( 4) Live is life - Opus 4. (5) In my house - Mary Jane girls 5. ( 3) Frankie - Sisters Slades 6. (-) History - Mai Tai 7. (10) Disco-band - Scotts 8. (-9 Animal Instinct - Commondores 9. ( 6) Life in one day - Howard Jones 10. (9) Keylich - Marillon Grammið 1. (1) Kona - Bubbi Morthens 2. (-) Low life - New order 3. (2) Blá himmel blues - Imperiet 4. (-) Skemmtun - Með nöktum 5. (-) Perfect kiss - New order 6. (7) Boys and Girls - Brian Ferry 7. (-) Musi-O-Tunya - Misty in Roots 8. (3) Rip, Rap, Rup - Oxsmá 9. (5) Those who do not - Psychic TV. 10 (9) Meat is murder - The Smiths Rás 2 1. (1) There must be an angel - Eurythmics 2. (5) Life is life - Opus 3. (2) Frankie - Sister Sledge 4. (-) Head over Heels - Tears for Fears 5. (4) Keyleig - Marillon^ 6. (3) Life is on day - Howard Jones 7. (7) Ung og rík - PS og co. 8. (6) A view to kill - Duran Duran 9. (10) History - Mai Tai 10. (-) Money for nothing - Dire Straits
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. ágúst 1985