Þjóðviljinn - 02.08.1985, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 02.08.1985, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. DIOÐVIUINN Föstudagur 2. ögúst 1985 175. tölublað 50. örgangur Ríkisstjórnin Skólamenn óánægðir Ríkið stendur oft á tíðum ekki við gerða samninga um rekstur fjölbrautaskólanna. Greiðir sumt ekki og annað seint. Sagt er aðfjárlögin séu svo knöpp aðþau þoli engar aukafjárveitingar til skólanna vegna ársins 1984. Albert Guðmundsson: Aukafjárveitingaróeðlileg afgreiðsla Skólastjórar og aðstandendur framhaldsskóla sem ríkið hefur skuldbundið sig til að reka til helminga á móti sveitarfélögum eru mjög óánægðir með fram- komu fjármáiaráðuneytisins í þeim efnum, þar sem þeir telja ráðuneytið ekki standa að fullu við skuldbindingar sínar við sveitarfélögin. Ríkið neiti að greiða eitt og annað sem því beri að greiða og annað þurfi að klípa úr ríkissjóði með töngum, svo notuð séu orð aðstoðarskóla- meistarans á Selfossi. Þeir skólar sem um er að ræða eru aðallega fjölbrautaskólar. Venjan er að ríki og sveitarfélög geri með sér samning um að ríkið greiði mestan hluta launa- kostnaðar en rekstrarkostnaður skiptist á milli aðila. Skólarnir senda frá sér áætlun um rek- strarkostnað fyrir hvert ár, en sú áætlun er iðulega skorin við nögl þegar hún er sett á fjárlög. Mis- muninn taka sveitarfélögin á sig þar til uppgjör fyrir árið liggur fyrir. Oftast biður menntamála- ráðuneytið þá um aukafjár- veitingu handa viðkomandi skóla og hingað til hefur hún verið veitt, þótt seint sé. Þeir skólastjórar og forráða- menn sveitarfélaga sem Þjóðvilj- inn hafði tal af voru undantekn- ingarlaust óánægðir með þátt ríkisins í samrekstrinum eins og áður segir. Vitað er að búið er að biðja um aukafjárveitingu fyrir a.m.k. tvo skóla vegna þess að framlag ríkisins af fjárlögum hef- ur ekki nægt til að greiða hlut- deild þess í rekstri hvers árs. Forsvarsmenn þessara skóla hafa fengið mjög neikvæð viðbrögð við þessu og þeirri hugmynd hef- ur jafnvel verið fleygt að fjár- málaráðuneytið ætli ekki að greiða þetta fyrr en af fjárlögum fyrir árið 1986. Það myndi þýða Albert Kassinn í mínus Greiðsluafkoma A-hluta ríkis- sjóðs í júnílok er verri í ár um 2.549 miljónir króna en á sama tíma í fyrra. í fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu er sú skýring gefin á Iélegri reikningsstöðu, að engar nýjar lántökur hafi verið teknar á árinu, þar sem lánsfjár- lögin voru afgreidd svo seint, en heimild er fyrir rúmlega 1500 miljóna króna láni erlendis. Þá hafi ríkissjóður greitt framlag sín til lánasjóðs námsmanna og Byggingasjóðs ríkisins fyrr en áætlað var - og nemi sú upphæð 825 miljónum króna. Þá er getið um óhagstæða rekstrarafkomu ríkissjóðsins sem nemi 1557 miljónum, minnkandi innflutningstekjur, mikill vaxta- kostnaður og fleira. Þrátt fyrir þetta er spáð að afkoma A-hluta ríkissjóðs verði ekki mikið lakari en fjárlög gerðu ráð ráð fyrir. -óg stóraukinn vaxtakostnað fyrir sveitarfélögin, því þau hafa þegar lagt þennan kostnað út. Tæki ráðneytið slíka ákvörðun væri af- komu skólanna stefnt í voða. Upphæðir þessar skipta hund- ruðum þúsunda króna í hverjum skóla. Einn skólameistaranna hafði á orði við Þjóðviljann, að ef sveitarfélögin stæðu sig jafn slæ- lega í rekstri skólanna og ríkið væri löngu búið að loka þessum skólum. Það eina sem fjármálaráðherra vildi segja um málið var að auka- fjárveitingar væru óeðlileg fyrir- bæri. pn ,,Ég vil láta friða öll gömul hús, og þetta er gott hús þó það sé það Ijótasta norðan Alpafjalla að utan“, sagði Guðmundur Arnason sem er nú að hætta rekstri rammagerðar í steinhúsinu við Bergstaðastræti 15, eftir 18 ára starfsemi. Mynd Ari. -vd. Lánasjóður Stúdentinn gegn náms- mönnum! Fulltrúi Stúdentaráðs H.í. greiddi atkvceði gegn lánum fyrstaársnema U denta í Háskólanum í stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna greiddi í gær atkvæði gegn því að fyrstaársmenn í háskólanum fengju lán úr sjóðnum. A stjórnarfundi LÍN í gær voru teknar til umræðu úthlutunar- reglur þær sem stjórnin áðurhafði samþykkt fyrir næsta vetur, en menntamálaráðherra neitað að skrifa undir og sent sjóðstjórn aftur með athugasemdum. Á fundinum voru allar athuga- semdir Ragnhildar Helgadóttur samþykktar sem nýjar úthlutun- arregíur. Borin var upp tillaga um að lánasjóðsstjórn héldi fast við fyrri samþykkt um að veita fyrsta- ársnemum á íslandi víxillán úr sjóðnum einsog tíðkaðist fyrir ráðherradaga Ragnhildar, - en sú tillaga var felld með atkvæðum tveggja fulltrúa menntamála- ráðherrans og fulltrúa Stúdenta- ráðs háskólans.Nemar á fyrsta ári í háskólanum og öðrum lánshæf- um skólum verða því að leita á náðir bankastjóranna í haust. Ólafur Arnarson er félagi í Vöku, klúbbi íhaldsdrengja í stú- dentahópi. _m Menningarverðmœti Niðurrifsbeiðni á steinbæ Anæstu dögum mun skipulags- nefnd borgarinnar fjalla í annað sinn um niðurrifsbeiðni á steinbænum við Bergstaðastræti 15, en nýlega barst álitsgerð frá umhverfismálanefnd, þar sem lagst er gegn því að húsið verði rifið vegna menningarsögulegs verðmætis þess. Eigandi hússins, Sverrir Krist- insson, hefur fengið arkitektinn Ingimund Sveinsson til að gera teikningar að þriggja hæða húsi, sem byggt verður í þessari gömlu steinhúsabyggð, ef leyfi fæst til að rífa. í álitsgerð sem fengin var frá Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt, en hún hefur haft með höndum það verkefni að gera athugun á gömlu bæjarhverfunum, er lagst ein- dregið gegn niðurrifi og sama álit kemur fram í bréfi borgarminja- varðar til umhverfismálaráðs. Árbæjarsafn hefur undanfarið verið að gera úttekt á steinhúsa- byggð í Reykjavík, en þetta sér- staka byggingarlag mun ekki þekkjast utan borgarinnar. „Þessi ákveðni steinbær er einn af þeim stærstu sem eftir eru ennþá. Á þessu svæði, það er að segja við Bjargarstíg, Bergstaðastræti og Spítalastíg, voru upphaflega ein 13 steinhús en nú eru aðeins eftir 6“, sagði Ragnheiður Þórarins- dóttir í samtali við Þjóðviljann. „Húsið er vel nýtilegt og alls ekki svo illa farið, enda þótt útlitið blekki augað. Það er byggt á sama tíma og húsin þarna í kring, á árunum í kringum 1895. Það er Umhverfismálaráð á möti. vel staðsett miðað við aðra byggð á þessu svæði, og er f beinni línu við hana. Aðalatriðið er, að þetta hús er eitt af fáum sem enn er eftir af þessari steinhúsabyggð og er mjög merkilegt vegna menning- arsögulegs gildis þess. Ég leggst algerlega gegn því að það verði rifið“, sagði Ragnheiður að lok- um. Þjóðviljinn hafði samband við Jóhannes Kjarval, sem er fulltrúi borgarskipulags í skipulagsnefnd og innti hann eftir gangi málsins. „Það er erfitt fyrir okkur að standa í vegi fyrir því að húsið verði rifið, sérstaklega þar sem enginn aðili er fyrir hendi sem gæti styrkt eða kostað endurnýj- un á því“, sagði Jóhannes. „Hús- ið er í niðurníðslu og við fagmenn hjá hinu opinbera eigum í nokkr- um vanda með mál af þessu tagi. Þetta er samt gott hús og borgin hefur ekki staðið sig sem skyldi í varðveislu gamalla steinhúsa. Mitt persónulega álit er að það ætti tvímælalaust að gera þetta hús upp. En, sem sagt, nefndin mun fjalla um þetta aftur og laga- leg ákvörðun er í höndum bygg- ingarnefndar borgarinnar. -vd. Kjararannsóknarnefnd 18% umfram taxta Laun karla hœkka mest. Langur vinnutími við lýði í landinu. Samkvæmt upplýsingum úr fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar hœkkuðu launin að meðaltali um 7.7% umfram taxta. Mesthjá körlum ískrifstofustörfum Tímakaup karla í skrifstofu- störfum hækkaði að meðaltali um 52.6% á tímabilinu frá 1. ársfjórðungi 1984 til 1. ársfjórð- ungs 1985 en hækkun taxta nam 27.8%, þannig að hækkunin er 18% umfram taxta. Hjá konum í skrifstofustörfum var 16% hækk- un umfram taxta. Að meðaltali hækkuðu laun hjá þeim starfs- hópum sem könnun Kjararann- sóknarnefndar nær til um 37.7% á tímabilinu en samkvæmt taxta áttu þau að hækka um 27.6%. Meðalvikutekjur verkamanna jukust um 32.4%, iðnaðarmanna um 42.7%, verkakvenna um 28.3%, karla í afgreiðslustörfum um 41.6%, kvenna í afgreiðslu- störfum um 43.4%, karla í skrif- stofustörfum um 56.1% og kvenna í sömu störfum um 54.1%. Vinnutími hefur lengst hjá öllum starfshópunum nema verkamönnum og verkakonum. Meðalfjöldi vinnustunda á viku voru t.d. 46.7 hjá konum í af- greiðslustörfum á 1. ársfjórðungi 1985, 50.5 hjá verkakörlum, 51.3 stundir hjá iðnaðarmönnum, 43.9 hjá verkakonum, 47.2 hjá körlum í afgreiðslustörfum, 44.8 hjá körlum í skrifstofustörfum og 43.3 hjá konum í sömu störfum. Úrtakið hjá Kjararannsóknar- nefnd nær til 11 fyrirtækja og 14250 starfsmanna. -óg Sjá leiðara bls. 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.