Þjóðviljinn - 10.08.1985, Síða 4
LEHDARI
Þjóðemisvandamál
Sjálfstæðisflokksins
Einsog Þjóðviljinn hefur greint frá að undan-
förnu eru yfirstandandi hagsmunaárekstrar
innan íslenska auðvaldsins jafnframt innan-
flokksátök í Sjálfstæðisflokknum. Gamla fjöl-
skylduveldið í Sjálfstæðisflokknum sem á Eim-
skip, Morgunblaðið, meirihlutann í Flugleiðum
og í íslenskum aðalverktökum, ræður mestu í
Alusuisse-manginu og svo framvegis - reynir
nú að verja hagsmuni sína fyrir „nýríka pakk-
inu”, sem á fyrirtæki einsog Hafskip, DV, heild-
sölur og kjúklingabúlur af ýmsum toga.
Geir Hallgrímsson hefur verið einsog hinn
staði klár gamla fjölskylduveldisins meðan Al-
bert Guðmundsson hefur leikið orrustufola ný-
ríka liðsins í flokknum. Geir hefur tapað margri
orrahríðinni á vegferð sinni en Albert og nýríka
liðið hrósað sigri þeim mun oftar.
Átökin í ríkisstjórninni um flutningatil hersins,
um sölu eignarhluta ríkisins í Flugleiðum og
tollskoðun á hergóssi eru öll af sama meiði
hagsmunaárekstra og innanflokksátaka í Sjálf-
stasðisflokknum.
Átökin standa því ekki um grundvallaratriði
þó báðir aðilar reyni í kapp að halda því fram, að
þeirra hagsmunir séu hagsmunir þjóðarbúsins.
Hitt er hins vegar Ijóst, að uppúr þessum
átökum væri eðlilegt að ræða um grundvallar-
atriði; svosem einsog sölu á ríkiseignum, hvort
halda eigi áfram hermangi eða byggja upp ís-
lenskt atvinnulíf, hvort starfsmenn fyrirtækja
eigi að fá forgangsaðild að kaupum ríkisfyrir-
tækja, hvers konar form eigi að vera á ríkis-
ábyrgð og þar fram eftir götum.
Röksemdir hagsmunahópanna í Sjálfstæðis-
flokknum hafa verið býsna athyglisverðar.
Gamla ættarveldið í flokknum hefur til dæmis
gert þjóðernisvandamálið að sérstökum þrösk-
uldi fyrir hugsanleg kaup Birkis Baldvinssonar á
eignarhluta ríkisins í Flugleiðum. Sam-
gönguráðherra Sjálfstæðisflokksins er látinn
segja í Morgunblaðinu í gær, að „hann vildi ekki
selja bréfin einum manni búsettum erlendis,
jafnvel þó íslenskur væri”.
Hér hefur sumsé búktalari ættarveldisins í
flokknum komist að kjarna máls, hjólað í sjálft
grundvallaratriðið - eða hvað? Nei, sá armur
Sjálfstæðisflokksins sem hér talar, grundvallar
veldi sitt einmitt á erlendu kapitali. Þetta eru
málpípur Alusuisse-hringsins sem kaupir helm-
ing allrar raforkuframleiðslu Landsvirkjunar á
gjafverði, þetta eru málpípur áframhaldandi
aukinna hernaðarumsvifa Bandaríkjahers á ís-
landi, þetta eru þeir sem fleytt hafa rjómann
með blygðunarlausum hætti af hersetunni í
gegnum Islenska aðalverktaka, einokunarfyrir-
tækið í hermanginu í gegnum Eimskip og svo
framvegis. Þetta er sami armur í Sjálfstæðis-
flokknum sem talar og gengur um hirðir heims-
ríkjanna og býður útlendingum eignarhluta í
fyrirtækjum hér á landi og lýsir fjálglega ódýru
vinnuafli og samvinnuþýðri ríkisstjórn. Þannig
var þetta tilbúna þjóðernisvandamál Sjálf-
stæðisflokksins ekki annað en hlægilegur fyrir-
sláttur- og í mótsögn við þeirra eigin röksemdir.
Þeir urðu að finna sér betri rök.
Hafnarfjarðargangan
í dag, laugardaginn 10. ágúst verður gengin
sérstök friðarganga frá Hafnarfirði til Reykja-
víkur. Þetta er lokaáfangi friðardaganna sem
haldnir hafa verið síðustu daga til að minnast
hinna vofveiflegu atburða er Bandaríkjamenn
vörpuðu kjarnorkusprengjum á japönsku borg-
irnar Hirosima og Nagasaki. Um leið er verið að
mótmæla vígvæðingu stórveldanna sem öllu
mannkyni stafar hætta af. Þessar aðgerðir eru
hluti af hliðstæðum aðgerðum sem fram fara á
sama tíma hvarvetna um hinn frjálsa heim.
Hafnarfjarðargangan í dag hefst með fundi á
Thorsplani í Firðinum kl. 14.00. Áð verður við
Suðurlandsbraut kl. 17.00 og lýkur göngunni
með útifundi á Lækjartorgi kl. 19.00. Að honum
loknum verða rokktónleikar á Torginu. -óg
„Mf5 §T£MÞU^.íNé,ÍMN 'a
BAK VÍP í ÞESSU.
TiLBó&i HEtfA <oMAM MÍKl ”
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiöja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 30 kr.
DJOÐVILIINN Ritstjórar: Árni Berqmann, össur Skarphéðinsson. Rit8tjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, MörðurÁrnason, Páll Valsson, Sigríður Pótursdóttir, SævarGuð- björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Ólason, Valdís Oskarsdóttir. Útlft og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir. Handrita- og prófarkaiestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Utbraiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir. Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Sunnudagsverð: 35 kr. Áskriftarverð á mánuði: 360 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. ágúst 1985