Þjóðviljinn - 23.08.1985, Síða 8

Þjóðviljinn - 23.08.1985, Síða 8
GLÆTAN Hljómborðsleikarinn MickTalbot og Paul Weller, bassa-, gítarog hljóðgerflaleikari og aðalsöngvari S'tyle Council. Róttækni undir sléttu yfirborðinu The Style Council er rúmlega tveggja ára gamall dúett Bret- anna Micks Taibot og Pauls Well- er sem nú fyrir stuttu gáfu út sína aðra breiðskífu: Our Favourite Shop (sú fyrri heitir Café Bleu.) Af plötualbúminu utanverðu að dæma gæti maður haldið að hér væri ort og sungið um gamla ung- linga og sjöunda áratuginn, þar sem þeir Style Council tvímenn- ingar standa inni í verslun um ýmislegt poppdót frá þeim tíma. Oðru máli gegnir þegar kíkt er inn í albúmið og á textana; hér er á ferð hvatning til ungs fólks að notfæra sér ár æskunnar, vera virkt í samstarfi í ýmsum fé- lögum, t.d. þeim sem reyna að gera eitthvað fyrir atvinnulausa; textarnir fjalla um eymdina, ó- réttlætið og kynþáttahatrið sem atvinnuleysi fylgir. Að framansögðu gæti margur haldið að The Style Council væru öskrandi reiðir nýbylgjurokkar- ar, jafnvel pönkarar...eða gamlir hippar ennþá á Dylan-flippi, en öðru er nú.nær. Þetta er hin ljúf- asta danstónlist fyrir alla. aldurs- hópa, einskonar poppdjassfönk' með sveiflu, og ágætar melódíur. Og þeir félagar hugsa um að kaupandinn fái vel fyrir sinn snúð, heil 14 lög eru á skífunni. Paul Weller var, eins og marg- ur veit, aðalsprauta hljómsveitar- innar Jam og urðu margir aðdá- endur þeirrar sveitar og breskir blaðamenn ferlega fúlir út í hann þegar hann ákvað að leggja Jam „niður. „Ég varð hræddur við hvað Jam var orðin föst í sessi, við hefðum getað haldið áfram 10 ár í viðbót og orðið sífellt frægari.. - sem sagt orðið eins og allir þessir þekktu...Rolling Stones og Who, sem eru búnir að vera lengur í þessum bransa heldur en þeir voru velkomnir“, sagði Paul Weller í október 1982 þegar hann sagði frá upplausn Jam. Og fyrstu plötur Style Council fengu ekki uppörvandi dóma: Hann hugsar svo mikið um merkingu orðanna og mikilvægi textans að hann hef- ur gleymt að hugsa um hvað hljómar vel og hvað ekki...ég vildi að Paul hætti þessum pæl- ingum og sleppti sínum sanna krafti lausum. Ekki tökum vér á Þjóðviljan- um undir þessi fýlupokaorð hvað My Favourite Shop snertir. Þeir félagar eru ljómandi hljóðfæra- leikarar og söngvarar og fá þar að auki til liðs við sig vant fólk. Platarrer-mjög létt og áheyrileg en leynir mjög á sér-T. texta- deildinni, eins og áður segir. Best finnst mér vera lagið og textinn Homebreakers sem segir frá þriðja syni hjóna úti á landi serry Stevie White trommar með Style Council og deilir með þeim skoðunum um tilgang tónlistarinnar: Það þarf meira en músikina. er að fara að heiman í atvinnuleit. í>á er gott lagið sem hvetur fólk til að verða Internationalist, al- þjóðahyggjufólk, sem hugsar mannúðlega á heimsvísu. Þetta er sem sagt hin mesta hugsjónaplata og unnin í svipuð- um dúr og lagið Nelson Mandela Special Aka að því leyti að mús- ikin er mjög aðgengileg entext- arnir róttækir og fást við líðandi stundu: Dansmúsik með boð- skap. Vinsældalistar Þjóðviljans Fellahellir (-) 1. Tarzan Boy- Baltimore (-) 2. Into the groove- Madonna (2) 3. Peeping Tom - Rockwell (1) 4. Animal instinct- Commondores (7) 5. All fall down - Five Star (-) 6. We don’tneedanotherhero- Tina Turn- er (-) 7. Stronger together- Shannon (5) 8. Dare me- Pointer Sisters (3) 9. Your are my heart you are my soul - Modern Talking (-) 10. Head over heals- Tears for fears Grammið (1) 1. Low life- New Order (2) 2. Kona- Bubbi Morthens (3) 3. Talking Heads - Little creatures (5) 4. Skemmtun - Meö nöktum (-) 5. Screaming, Jay Hawkins- I put a spell on you (7) 6. Nico + the Faction - Camera obscure (4) 7. Nick Cave and the bad seed- The first- born is dead (6) 8. Cult- Dream time (9) 9. How will the wolf survive - Los Lobos (-) 10. Pat Metheny Croup- First circle Rás 2 1. (3) Into the Groove - Madonna 2. (5) We Don’t Need Another Hero - Tina Turner 3. (1) Life is Life - Opus 4. (2) Money for Nothing - Dire Straits 5. (6) Tarzan Boy - Balti Mora 6. (7) Á rauðu Ijósi - Mannakorn 7. (10) Hitt lagið - Fásinna 8. (4) There Must Be an Angel - Eurythmics 9. (12) Endless Road - Time Bandits 10. (8) Keyleigh - Marillion 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. ágúst 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.