Þjóðviljinn - 23.08.1985, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 23.08.1985, Qupperneq 15
Baksfða „Assins", stærsta íþrótta- dagblaðs Spánar, var helguo nýja „víkingnum" hjá Hercules. IÞROTTIR Pétur Pétursson Héfcuies abte qsta noche et torneo de Cartágena Petursson ya es jugador blanquiazul ti Hércufos abrlii esta oocho ei tarnootUi Cartágsna jugando ctm e! eiquipo dcpartomcntal cn el cstadlo dc El Armarjat. Mðflána so crifrent»tá ái Nh nctuftrá Pclutsíxftn porqitc marcha boy- a Islcndis a rcctigpr 3 su tamilia pucsto que ái'istarwJés ya es íugodnr bíáhpuíaiut. PHatnii 28 En los campeonatos de Espana de Cielismo en pista EI aticantino José Tomás Canté, medaltas de oro v piata „Besti útlendi framherjinn sem Spánverjar geta fengið segir Munoz landsliðsþjálfari Spánar um Skagamanninn Pétur Pétursson hefur fengið mjög góðar um- sagnir í spænskum blöðum eftir að hann fór þangað til að leika með Hercules. Landsliðsþjálfari Spán- verja segir að hann sé mikill fengur fyrir liðið og það hafi komið mörgum á óvart að Hercules hafi tekist að krækja í þennan eftirsótta leikmann sem hefur skorað fjöldann allan af mörkum og leikið 25 lands- leiki. Miguel Munzo landsliðsþjálfari segir að Pétur sé „besti útlendi framherjinn sem Spánverjar geta fengið". Pétur lék með Hercules gegn Alicante í síðustu viku og skoraði tvö mörk í þeim leik. í umsögn um leikinn er sagt að Pétur hafi hleypt lífi í sóknarleik liðsins og alltaf verið þar sem hlutirnir vóru að ger- ast. Pétur hafi sþilað hraðan og einfaldan fótbolta og haft mjög góð áhrif á liðið. aró/gg England Webb rekinn David Webb, fyrrum varnar- maður hjá Chelsca, varð í gær fyrsti framkvæmdastjórinn í ensku knattspyrnunni til að missa stöðu sína á nýhöfnu keppnis- tímabili. Lið hans, Torquay, hef- ur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum og það var dropinn sem fyllti mælinn eftir að félagið hafði hafnað í neðsta sæti 4. deildar sl. vetur. Webb verður þó áfram í starfi hjá Torquay og sér um fjármái félagsins. -VS/Reuter Svíar unnu Svíar sigruðu Pólverja 1-0 í vináttulandsleik í knattspyrnu sem háður var í Malmö í fyrra- kvöld. Það var Andreas Ravelli sem skoraði sigurmarkið 16 mín- útum fyrir leikslok. -VS/Reuter Bikarúrslitin Stefnir í skemmti- legan úrslitaleik Fram-ÍBK á Laugardalsvellinum á sunnudag Þeim bar saman um það, leikmönnum, þjálfur- um og forráðamönnum Framara og Keflvíkinga, á blaðamannafundi nú í vikunni að enginn vafi væri á að úrslitaleikur félaganna í bikarkeppni KSÍ á sunnudaginn yrði opinn, fjörugur og skemmti- legur - og örugglega jafn og tvísýnn. Það er óhætt að taka undir þessi orð þeirra. Fram og Keflavík eru með tvö af skemmtilegustu liðum 1. deildarinnar í dag og það má segja að þau mætist á miðri leið. Framarar byrjuðu mjög vel í sumar en lentu síðan í öldudal sem þeir hafa ekki náð sér fyllilega uppúr. í liði Keflvíkinga hefur hinsvegar verið mikil stígandi síðustu vikurnar og þeir eru við það að blanda sér í baráttuna um Islandsmeistaratitilinn. Úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvellinum á sunnudaginn og hefst kl. 14. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leikur fyrir vallargesti við inngönguhliðin og í leikhléi skemmta Jón Páll Sig- marsson og félagar hans með nýstárlegum hætti. Miðar eru seldir við verslunina Víði í Austurstræti frá kl. 12-18 í dag og á Laugardalsvelli kl. 11-16 á morgun og frá kl. 11 á sunnudag. í blaðinu á morgun verður heil síða helguð bik- arúrslitaleiknum í knattspyrnu 1985. -VS Holland Cruyff bannað að þjálfa? Knattspyrnuþjálfarafélag Hol- lands hefur kvartað til knatt- spyrnusambandsins þar í landi yflr því að Johan Cruyff skuli vera við þjálfun hjá meisturum Ajax. Snillingurinn gamli hefur ekki tilskilin þjálfararéttindi en hann segist ekki þjálfa lið Ajax, veiti aðeins ráðgjöf varðandi leikaðferðir. Cruyff sagði nýlega við fréttamenn að ef þessum ásök- unum linnti ekki myndi hann hætta störfum hjá Ajax. -VS/Reuter Knattspyrna Stórsigur Anderlecht Bikar - 1. fl. Anderlecht vann stórsigur á Liege, 4-1, í 3. umferð belgísku 1. deUdarinnar í knattspyrnu í fyrrakvöld, og situr sem fyrr í ef- sta sæti. Liege var númer tvö fyrir leikinn. Anderlecht og Beerschot hafa 5 stig hvort en Antwerpen og Beveren koma næst með 4 stig. Feyenoord og Den Bosch eru efst í hollensku 1. deildinni eftir aðra umferðina sem leikin var í fyrrakvöld. Feyenoord vann Heracles 5-1 heima og Den Bosch vann óvæntan sigur á PSV Eindhoven, 2-0. Hvort lið hefur 4 stig. Ajax hefur reyndar ekki heldur tapað stigi en lék ekki í fyrrakvöld. -VS/Reuter Rummenigge fær ekki frí ítalska liðið Inter Miiano hefur neitað að leyfa Kari-Heinz Rummen- igge að leika vináttulandsieik með Vestur-Þjóðverjum gegn Sovét- mönnum í næstu viku. Talsmenn Int- er segjast þurfa á honum að halda í bikarieik gcgn Cesena. Verona á að leika í bikarnum sama kvöld en ekkert hefur heyrst um hvort liðið gefi Hans- Peter Briegel lausan í landsleikinn. -VS/Reuter Karl-Heinz Rummenigge fær ekki að leika með Vestur-Þjóðverjum gegn Sovétmönnum. Valur Valsmenn urðu í gær bikar- meistarar í 1. flokki karla, unnu Kr-inga á Valsvelii 2-1. Sigurður Helgason skoraði Reykjavíkurfélögin KR og Val- ur halda á morgun, laugardag, hátíðiegan KR-dag og Vals-dag. Á félagssvæðum þeirra verður vann fyrir KR í fyrri hálfleik, en Vals- menn urðu sér úti um bikarinn í seinni hálfleik með mörkum Magnúsar Péturssonar og Kri- stins Bjömssonar. mikið um að vera síðdegis á morgun, fjörið byrjar á KR- veUinum kl. 13.30 en á Valsvellin- um kl. 14. Laugardagur KR-dagur - Vals-dagur Föstudagur 23. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.