Þjóðviljinn - 08.09.1985, Page 13

Þjóðviljinn - 08.09.1985, Page 13
ríður, „hann var t.d. mjög góður hjá Svíunum". „En mér fannst,“ segir Guðný Björk, „varðandi sýninguna í heild, að Svíarnir og Finnarnir, sérstaklega Finnarnir, væru með metnaðarfyllstu verkin. Sérstak- lega fannst mér sýningin sem finnskir leiklistarnemendur voru með á Beðið eftir Godot, vera góð. Sú sýning fannst mér hrein- lega vera toppurinn á þessari há- tíð, frábær sýning". „Kannski hefur þetta fólk ver- ið betur undirbúið en við fslend- ingar sem fórum á þessa hátíð,“ segir Guðný Björk. „Sjálfsagt hefur það verið aðstoðað meira og betur við undirbúning sinn heldur en hjá okkur. Við erum síst að lasta það sem fyrir okkur var gert. Öðru nær. Við erum mjög þakklát þeim aðilum sem gerðu okkur það kleift að fara í þessa ferð. Það sem vantar hins vegar hér á íslandi er að lista- menn geti leitað til einhvers aðila sem sæi um undirbúning og fram- kvæmdahlið sýninga. Eins og þetta er núna, og kom kannski fram á þessari hátíð, þá stjórnast allt af happa og glappa aðferð- inni. Allt er svo tilviljanakennt varðandi alla skipulagningu. Við stöndum í öllu þessu sjálf. “ Skari gerður að stjörnu „Það má nefna það sem dæmi um þessi mál,“ segir Guðný, „að það var japanskur kennari í skólanum síðasta vetur, sem sagðist aldrei hafa kynnst því áður að þurfa að gera allt í sam- bandi við sýningu sína, hann býr í Berlín og er vanur því að þurfa ekki að standa í því að senda til- kynningar til fjölmiðla, setja frí- merki á bréf, borga leigu á sal o.þ.h. Þetta þykir hins vegar sjálfsagður hlutur hér heima“. Aðspurð um það hvemig þeim hefði verið tekið í fjölmiðlum þar úti sögðust þau hafa dálítið óljósa hugmynd um það enn sem komið væri. „Það var gerð kvikmynd um þessa hátíð og það má búast við að hún verði sýnd hér heima í vetur,“ sagði Sara. „Nú, svo var Skari gerður að stjörnu um leið og hann mætti á svæðið. Sjálfs- mynd hans var yfirleitt birt í blöð- um þegar verið var að kynna há- tíðina. Svo tók sænska sjónvarpið viðtal við hann. Annars vorum við yfirleitt ógurlega feimin. Á blaðamannafundinum í upphafi hátíðarinnar gengum við næstum því með veggjum, við í einu horn- inu og Grænlendingarnir í hinu. Jæja, en svona í alvöru, þá vorum við ósköp tómlát fyrir því að koma okkur á framfæri, yfirleitt þurfti að leita okkur uppi“. „Og við héngum auðvitað ekk- ert á sýningunni allan tímann," segir Guðný Björk. „Við gáfum okkur ofurlítinn tíma til að skoða skemmtanalífið". „Já, dans- mennt Svíanna var t.d. dálítið sérstök," segir Kristbergur. „Á diskótekum dönsuðu Svíarnir t.d. allir í takt, allir á dansgólfinu voru í sama takti. Þegar við ís- lendingarnir réðumst inn á gólfið í okkar óskipulagða bægslagangi stoppaði plötusnúðurinn músik- ina og skipaði okkur að hafa okk- ur hæg. Dansa skipulega takk.“ En hvað tekur svo við hjá þess- um nýútskrifuðu nemendum? „Það er nú mismunandi. Skari fer í kvikmyndaskóla í London, National Film & Television Scho- ol, Georg Guðni fer til Maasticht í Ffollandi, í Jan Van Eyck Aka- demie. Svanborg fer e.t.v. í þann sama skóla. Sara fer til Oslo, í Statens Kunst Akademie, Krist- bergur fer til Amsterdam, í Aka- demie van Beeldende Kunsten. Anna Sigríður, Ásgerður, Leifur og Guðný Björk fara hins vegar í brauðstritið hér heima. Sú síð- astnefnda er reyndar á kafi í leik- myndagerð fyrir Alþýðuleikhús- ið og Nemendaleikhúsið. Öll auglýsa þau hér með eftir stórri og rúmgóðri vinnuaðstöðu. Frá Norræna félaginu í Kópavogi Aðalfundur Norræna félagsins í Kópavogi verður haldinn í Þinghól þriðjudagskvöldið 10. septemberog hefst klukkan 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Frá Tónlistarskóla Kópavogs Innritunferfram 10.-14. september, að báðum dögum meðtöldum kl. 9-12 og 16-18. Innritað verður á sama tíma í forskóladeildir. Nemendur eru beðnir að láta stundaskrárfylgja umsóknum. Athygli skal vakin á því að meðal annars verður kennt á óbó, horn, básúnu og kontrabassa. Ekki verður tekið á móti umsóknum í gegnum síma. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans Hamraborg 11 annarri hæð. Skólastjóri Framandi menning í framandi landi • Ert þú fædd/ur 1968 eða 1969? • Viltu auka þekkingu þína á umheiminum? • Viltu kynnast lifnaðarháttum annarra þjóða? • Viltu búa eitt ár í framandi landi? • Viltu verða skiptinemi? Umsóknarfrestur er til 9. okt. Opið daglega milli kl. 14 og 17. Ef svarið er já, hafðu samband við: élffS á íslandi Hverfisgötu 39, P.O. Box 753 - 121 Reykjavík. Sími 25450. Rannsóknastyrkur Menntastofnun íslands og Bandaríkjanna (Fulbright- stofnunin) vill bjóða íslenskum fræðimanni styrk til að stunda rannsóknir í Bandaríkjunum í 2-3 mánuði á námsárinu 1986-1987. Umsóknir ásamt staðfestingu á rannsóknastöðu við mennta- eða rannsóknastofnun í Bandaríkjunum skulu berast stofnuninni fyrir 22. nóv- ember n.k. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu stofnunarinnar, Garðastræti 16, sem eropin kl. 13-17, sími 10860. Citroén Axel árgerð '86 kostar nú aðeins 285.000,- kr. Það er afar hagstættverðfyrirjafn góðan bíl. Frá því að Axel var kynntur í sumar hefur jafnt og þétt komið í Ijós hvílíkur kostagripur hann er. Framhjóladrifið skilar honum yfir erfiða hjalla og sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum skapar þægindi í G/obuse SÍMI81555 akstri. Axel er sterkbyggður og öruggur fararskjóti í umferðinni, sætin eru sérstaklega þægileg og útsýni úr bílnum er gott. Pú gerir varla betri bílakaup. 285.000,- kr. fyrir ósvikinn Citroén - ryðvarinn, skráðan og með fullan bensíntank. Einnig er mögulegtaðfá 35% afkaupverði lánað í allt að átta mánuði. langstærsta bifreiðastöð borgarinnar með flesta 7 farþega bíla Fljót og góð afgreiðsla. Stæði um allan b

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.