Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 1

Þjóðviljinn - 13.09.1985, Síða 1
GLÆTAN HEIMURINN UM HELGINA S-Þing. „Aldeilis hreint há- bölvað“ Skárri tíð síðustu daga. Sumirhafa hent heyi „Tíðarfarið hér í sumar hefur verið aldeilis hreint hábölvað, rignt blátt áfram vikum saman. Fyrir tveimur - þremur dögum skipti loksins um og nú er kominn sunnan þurrkur.“ Þannig fórust Þorgrími Starra bónda í Garði i Mývatnssveit orð, er blaðið hafði tal af honum í gær. „Þó hefur heyskapartíöin verið illskárri hér í Mývatnssveitinni eri í dölunum,“ sagði Starri. „Ég veit ekki betur en að í Aðaldal og kannski víðar, hafi menn blátt áfram orðið að henda heyi í tals- verðum mæli, það var bara orðiö ónýtt. Og auðvitað er það meira og minna lélegt fóður, sem þó næst upp nú. Menn eru nú að reyna að ljúka heyskap en það verður úrtakasamt því göngur og sláturtíð eru á næsta leiti. Þrátt fyrir þessar hremmingar er ég ekki viss um að bústofns- fækkun verði mikil þegar á heildina er litið, því fyrningar frá fyrra ári eru víða talsvert miklar. Hinsvegar heltast alltaf einhverj- ir bændur úr lestinni og er það ekki líka stefnan hjá háyfirvöld- unum? Þeir dilkar, sem ég hef séð, sýnist mér vera lélegir og kemur þar eflaust til úrfellið og kuldinn. En jörðin lítur allsekki illa út. Þú mátt svo bæta því við, að bændur hér binda miklar vonir viið samtök sauðfjárbænda." - mhg. Þingflokkur Ah. Tillaga um afnám kvóta Skúli Alexandersson: Efnúverandi kvótakerfi verður ekkiafnumið má búast við algjöru hruni í íslenskum sjávarútvegi. Heildarkvóta verði ekki skipt á milli einstakra skipa Skúli Alexandersson lagði í gær fram tillögu um það á þing- flokksfundi Alþýðubandalagsins að kvótakerfið yrði afnumið 1. október nk. Skúli lagði fram til- lögur í fjölmörgum liðum um stjórnun fiskveiða á þessu ári og því næsta og eru þær nú í athugun hjá þingflokknum. „Það er ljóst að grípa þarf til aðgerða strax til að varna því að núverandi kvótakerfi leiði til al- gers hruns í sjávarútveginum. Þessar tillögur eru enn á umræð- ugrundvelli en hafa fengið nokk- uð jákvæðar undirtektir," sagði Skúli í stuttu samtali við blaðið að loknum fundi í þingflokknum. í gær. I tillögum sínum segir Skúli að afnema þurfi aflakvótakerfið 1. október nk. Hann vill að sá mannskapur sem nú hefur eftirlit með aflamagni verði notaður til að hafa eftirlit á meðferð afla. Bátar hafi ekki veiðarfæri í sjó frá föstudagsmorgni til laugardags- kvölds. Þorskveiðitúrar togara verði ekki lengri en 6 sólarhring- ar. Löndunarfrí togara verði lengd og að veiðar verði ekki stundaðarfrá 19. desember til 31. sama mánaðar. Ennfremur leggur Skúli til að á árinu 1986 verði heildarkvóta í engu skipt á milli einstakra skipa, en ákvörðun um leyfilegt heildar- aflamagn verði tekin á svipaðan hátt og verið hefur undanfarin ár. í stað þess að skammta hverju skipi kvóta verði dregið úr sókn með reglum um veiðistöðvanir á ákveðnum árstímum og í kring- um helgidaga. -gg- Grímur Sæmundsen fyrirliði Vals fagnar fslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu, með brotið nef en bros á vör. A innfelldu myndinni lyftir hann fslandsbikarnum eftirsótta. Myndir: E.OI. Sjá bls. 15 Ljóðlist Hátíðin, gengur vel Fjölmennt í Norræna húsið Norræna ljóðlistarhátíðin hef- ur gengið mjög vel og verið fjöl- sótt. Skáldin hafa lesið ljóð sín á frummálinu og mætir menn lesið ljóð margra þeirra í þýðingum. Á ljóðakvöldunum hefur líka troðið upp einn íslenskur ein- leikari, en á daginn hefur verið rætt um ljóðlist á tækniöld, ís- lenska nútímaljóðlist og erlendar þýðingar hennar kynntar og rætt hefur verið um ljóðlist á Norður- löndum. í kvöld er síðasta ljóðakvöldið, sem erlendu gestirnir taka þátt f og hefst það klukkan 20.30. Þá lesa ljóð sín Lars Forell, Uffe Harder, Lars Huldén, Matthías Johannessen, Mimmo Morina og James Tate. Ásdís Valdimars- dóttir lágfiðluleikari sér um tón- listarhlið mála í kvöld. - pv. Fjárlagagatið Beðið eftir stjóminni Matthías Bjarnason: Tek ákvörðun um að sitja eða segja afmérþegar égsé hvernig málfara. Ólafur G. Einarsson: Ríkisstjórnin íheild verðurað takaámálinu ingflokkur Sjálfstæðisflokks- ins tók enga efnislega afstöðu til deilna ráðherra um fjárlaga- gatið í gær og sagði Olafur G. Einarsson formaður þingflokks- ins að menn teldu ekki tímabært að fjalla um einstaka efnisþætti fyrr en ríkisstjórnin hefði komið sér saman um endanlegar til- lögur. Ríkisstjórnarfundur verð- ur haldinn í dag kl. 16 en þing- flokkur Framsóknarmanna kem- ur saman árdegis. „Það var engar niðurstöður þar að hafa,“ sagði Matthías Bjarna- son, heilbrigðis- og samgöngu- ráðherra eftir þingflokksfundinn. „Málið er í höndum ríkisstjórnar- innar og til umfjöllunar hjá ráð- herrum.“ Hann kvaðst ekki vita hvort dregið yrði úr fyrirhuguðum nið- urskurði á verklegum fram- kvæmdum. „Nei, ég er ekkert vongóður og ekkert bjartsýnn", sagði hann. „Ég er ákaflega ósáttur við þetta allt saman, enda þótt ég sé ekki að kenna neinum sérstökum um. Því er ekki að leyna að það er erfið staða í ríkis- fjármálum öllum og hefur verið í nokkur ár og farið versnandi.“ - Má skilja þau orð þín i Morg- unblaðinu að ekki komi til greina meðan þú sitjir í embœtti að skera vegamálin niður við trog, þannig, að þú munir segja af þér verði sú niðurstaðan? „Það er ákvörðun sem ég tek þegar ég sé hvernig mál fara. Þau má þó ekki skilja þannig og reyndar á hvorugan veginn," sagði Matthías. Olafur G. Einarsson lagði áherslu á að ríkisstjórnin hefði sett sér ákveðinn ramma m.a. um erlendar lántökur, jafnvægi í tekjum og gjöldum ríkisins og væri með ákveðið prógramm í skattamálum. „Það þýðir að fjár- málaráðherra getur ekki orðið við óskum allra fagráðherra um fjárveitingar," sagði hann, „sem þýðir aftur að nkisstjórnin í heild verður að taka á málinu“. -ÁI Sönglist Imelda syngur fyrir Marcos Manila — Imelda, eiginkona Ferdinands Marcosar forseta Filippseyja, heiðraði mann sinn á 68 ára afmæli hans í fyrradag með því að semja og flytja honum þakkarsöng. í fréttatilkynningu frá forsetahöllinni segir að í söngnum hafi Imelda lýst „þeim árangri sem stjórn Marcosar hefur náð í að efla réttlæti, frelsi og lýðræði sem stuðli að velferð hins óbreytta filippseyings“. Sagt er að forsetinn og frú hans skiptist iðulega á söngvum og ljóðum, einkum þegar þau eiga afmæli.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.