Þjóðviljinn - 13.09.1985, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
íslandsmeistarar
Heima á Hlíöarenda!
Valur íslandsmeistari á eigin heimavelli, fyrst
Reykjavíkurliða. Sigurgegn KR, 1-0, tryggðititilinn.
Guðmundur skoraði eftir undramarkvörslu Stefáns.
Hörkuspennandi í lokin undir þungri KR-sókn
Heima á Hlíðarenda tóku Vals-
menn við íslandsbikarnum laust
fyrir klukkan átta í gærkvöldi -
og urðu þar með fyrsta Reykja-
víkurliðið til að hampa honum á
eigin heimavelli. Með 1-0 sigri
þeirra á KR er spennandi keppni
til lykta leidd, þetta var fyrsti
leikurinn í síðustu umferð ein-
hvers mest spennandi og
skemmtilega íslandsmóts um ára-
raðir.
En auðvelt var það ekki, þeir
rauðklæddu máttu hafa fyrir
þessum sigri og enginn Valsari á
svæðinu leyfði sér að fagna fyrr
en lokaflautið gall. Þó KR-ingar
væru án tveggja lykilmanna sinna
og sá þriðji stigi ekki í báða fætur
jafnheila þá veittu þeir Vals-
mönnum harðvítuga keppni, og
undir lokin sóttu þeir það stíft að
Valshjörtun voru við það að
missa úr slag.
Og strax á þriðju mínútu mun-
aði engu að taugaóstyrk meistar-
aefnin brytu eigið fjöregg. Magni
Pétursson átti þá óskiljanlega
sendingu að eigin marki, boltinn
fór í þverslána og út!
Fyrsti hálfleikur var hnífjafn
en frekar lítið fyrir augað og liðin
sköpuðu sér varla umtalsvert
marktækifæri. Nema þegar Valur
náði fallegri sókn á 20. mínútu.
Heimir Karlsson átti skemmti-
lega hælsendingu á Hilmar Harð-
arson, hann sendi fallega inná
markteig þar sem Guðmundur
Þorbjörnsson skallaði í opnu
færi, en beint í Stefán Jóhannsson
markvörð. Taugaslappleiki Vals-
manna var gífurlegur, þeir áttu í
vandræðum með einföldustu
hluti og náðu sjaldan að byggja
upp markvissar sóknir. Guð-
mundur og Heimir voru þó virkir
og duglegir frammi en ekkert
gekk.
En mínútu fyrir hlé kom mark-
ið. Og það var við hæfi að Guð-
mundur sæi um það, maðurinn
sem þarna varð Islandsmeistari
með Val í fjórða sinn ásamt Grími
Sæmundsen. Hann skallaði úr
dauðafæri, Stefán varði á ótrú-
legan hátt en lá bjargarlaus þegar
Guðmundur fékk boltann aftur
við marklínuna og gat ekki annað
en skorað, 1-0.
Strax í byrjun seinni hálfleiks
var greinilegt að markið hafði
haft góð áhrif á Valsmenn. Þeir
höfðu aftur fengið trú á sjálfa sig
og strax á 47. mínútu hirti Guð-
mundur boltann af varnarmanni
KR útvið hliðarlínu, lék að enda-
mörkum og sendi á Heimi sem
skaut framhjá af markteig. Og á
67. mínútu var Heimir aftur í færi
eftir sendingu Guðmundar, sem
nú skallaði til hans eftir horn, en
nú fór boltinn hátt yfir.
KR sóttu þó öllu meira í hálf-
leiknum en gekk illa að skapa sér
færi þrátt fyrir talsverða pressu á
köflum. Valsmenn voru mun
beittari - á 72. mín. tók Þorgrím-
ur Þráinsson mikla rispu upp
hægri kantinn og sendi á Val
Valsson, sem skaut af vítateig en í
stöngina og út. Og tveimur mín-
útum síðar æddi Þorgrímur sjálf-
ur uppað teignum en skaut hár-
fínt framhjá. Hilmar Harðarson
var í góðu færi á 83. mínútu en
skaut í varnarmann og í horn.
Síðustu fimm mínúturnar voru
Guðmundur Þorbjörnsson skorar markið sem tryggði Val islandsmeistar-
atitilinn. Stefán Jóhannsson markvörður er bjargarlaus, en á innfelldu mynd-
inni sést hvernig hann ver skalla Guðmundar stórkostlega andartökum áður.
Myndir: E.ÓI.
óheyrilega langar fyrir stuðnings-
menn Vals. KR pressaði stans-
laust, boltinn dansaði um í víta-
teig Vals hvað eftir annað en sterk
vörnin stóð fyrir sínu, sem og
Stefán Arnarson markvörður.
Og þegar Sveinn Sveinsson
flautaði til leiksloka var
stríðsdansinn stiginn.
Það veðjuðu margir á Val sem
meistara í vor en flestir voru
orðnir vondaufir þegar mótið var
hálfnað. En hægt og sígandi unnu
þeir á, nýttu sín tækifæri til
fullnustu þegar fyrst Fram, síðan
ÍA og svo aftur Fram klúðruðu
sínum og fyrir vikið standa þeir í
dag uppi sem íslandsmeistarar
1985. Heilsteypt lið sem hefur
Valur-KR 1-0 (1-0) ★ ★★
Mark Vals:
Guðmundur Þorbjörnsson 44. mín.
Stjörnur Vals:
Guðmundur Þorbjörnsson **
Guðni Bergsson *
Heimir Karlsson *
Stefán Arnarson *
Sævar Jónsson •
Þorgrímur Þráinsson *
Stjörnur KR:
Ágúst Már Jónsson *
Björn Rafnsson *
Hálfdán Örlygsson *
Jósteinn Einarsson *
Stefán Jóhannsson *
Dómari Sveinn Sveinsson **
Áhorfendur 2000
styrkst með hverjum leik. Vörnin
sú sterkasta í deildinni og fékk
aðeins 12 mörk á sig í sumar, þar
af einungis tvö á Hlíðarenda. Sæ-
var og Guðni besta miðvarðapar
landsins og sjálfsagðir í lands-
leikinn við Spán og Þorgrímur og
Grímur traustir bakverðir. A
miðjunni hefur hinn ungi Ingvar
Guðmundsson sprottið upp sem
einn okkar betri miðvallarspilara
og það var dýrmætt fyrir liðið að
fá Heimi um mitt sumar. Hann og
Guðmundur hafa náð vel saman
undanfarið og Guðmundur hefur
verið hreint óstöðvandi í síðustu
leikjum.
KR-ingar stóðu sig með sóma í
gærkvöldi. Þeir veittu Val harða
keppni þótt þeir hefðu að engu að
stefna og geta verið sáttir við sína
frammistöðu í sumar. Gordon
Lee hefur gert góða hluti og er
greinilega á réttri leið með liðið.
„Ross hélt í okkur
trúnni“
„Þetta var erfitt hjá okkur
framanaf sumri,“ sagði Grímur
Sæmundsen fyrirliði Vals, nef-
brotinn eftir átökin en í besta
skapi. „Við fundum ekki taktinn
lengi vel en eftir 1-0 sigurinn á
ÍBK fóru þjólin að snúast. Þarna
lék okkar frábæri þjálfari, Ian
Ross, stórt hlutverk. Hann við-
hélt trú okkar á að við gætum
orðið meistarar, hann hefur
þessa langtímasýn sem svo marga
skortir og spyr að leikslokum.
Þegar Framarar gáfu eftir vissum
við að röðin var komin að okkur.
Þetta var erfitt í kvöld, við vorum
óstyrkir í fyrri hálfleik, en eftir
markið var tilfinningin allt
önnur,“ sagði Grímur. „Síðasti
titillinn minn? Best að hafa sem
fæst orð um það, ég sagðist nú
vera hættur í fyrra!“
„Aldrei smeykur“
,JÉg var aldrei smeykur, ég
vissi að við myndum ná að skora
og sigra,“ sagði Heimir Karlsson
sem þarna varð íslandsmeistari í
þriðja skiptið á fimm árum.
„Þetta er búið að vera skemmti-
legt sumar, góður hópur og það
var erfitt að koma inní hann til að
byrja með. En ég hef sjaldan
kynnst jafn góðum og jákvæðum
anda og ríkir í Valsliðinu,“ sagði
Heimir.
„Sýndu karakter“
Rólegastur allra í öllum fögn-
uðinum var Ian Ross, þjálfari
Vals. Eins og Guðmundur Þor-
bjömsson áréttaði við ljós-
myndarana: „Þetta þarna er
þjálfarinn, hann er svolítið hlé-
drægur!“ Og Ross sagði eftir
leikinn: „Þetta var erfiður leikur
og mínir menn voru of óstyrkir
lengi vel. En ég var aldrei í vafa
um að þeim tækist þetta, þeir
sýndu mikinn karakter og ég er
mjög ánægður fyrir þeirra
hönd.“
-VS
Staóan
f 1. deildarkeppninni eftir sigur Vals i
gærkvöldi:
Valur 18 11 5 2 28-12 38
Fram 17 10 4 3 35-23 34
(A 17 10 3 4 34-18 33
Þór A 17 10 2 5 27-20 32
KR 18 8 5 5 32-26 29
fBK 17 8 2 7 28-21 26
FH 17 5 2 10 22-35 17
Þróttur 17 3 4 10 16-29 13
Víðir 17 3 4 10 18-36 13
Víkingur 17 2 1 14 15-35 7
Markahæstir:
Guðmundur Þorbjörnsson, Val.......12
ÓmarTorfason, Fram................12
Hörður Jóhannesson, lA............11
GuðmundurSteinsson, Fram..........10
Ragnar Margeirsson, IBK...........10
Á morgun, laugardag, ráðast úr-
slitin um fall og Evrópusæti. í A og Þór
eru að berjast um Evrópusætið, ÍA
leikur við Fram á Laugardalsvellin-
um kl. 14 og á sama tíma mætast Þór
ogFHá Akureyri. Verði Þór í þriðja
sæti á eftir Fram fer liðið f UEFA-
bikarinn og það sama gildir að sjálf-
sögðu með ÍA sem þó þarf sigur til að
tryggja sig. Víðir og Þróttur leika
hreinan úrslitaleik um áframhaldandi
sæti í 1. deild kl. 14 f Garðinum. Á
sunnudag lýkur svo íslandsmótinu
meðviður eign Vfkings og ÍBK kl. 14.
Föstudagur 13. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15