Þjóðviljinn - 13.09.1985, Page 16

Þjóðviljinn - 13.09.1985, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Föstudagur 13. september 1985 210. tölublað 50. örgangur MÓOVmiNN Frjálshyggja Hafna tekjujöfnun S US-þingið áAkureyri hafnar tekjujöfnun sem þjóðfélagslegu markmiði. Vilja stóriðju. Atvinnuleysistryggingarnar búa til iðjuleysingja. Innra öryggi ríkisins áhyggjuefni. Ráðstafanir til að útsendarar erlendra ríkja grafi ekki undan öryggi íslenska ríkisins Ungir sjálfstæðismenn hafna þeirri stefnu að tekjujöfnun sem slík sé þjóðfélagslegt mark- mið til að keppa að, segir m.a. í ályktun SUS-þings sem háð var á Akureyri um mánaðamótin. í ályktunum þingsins ber mjög á frjálshyggjunni og sjónarmið- um sem fram að þessu hafa helst verið eignuð þröngum hópi innan Sjálfstæðisflokksins. Flestar til- lagnanna voru samþykktar án nokkurs mótatkvæðis á þinginu. í stjórnmálaályktun þingsins er m.a. vikið að óvinsældum ríkis- stjórnarinnar. „Karp einstakra ráðherra er með öllu óþolandi og hefur grafið stórlega undan trausti manna á þessari ríkis- stjórn". Þar er einnig kveðið á um að nýta beri alla „ábatasama stóriðj- ukosti án kröfu um meirihlutaað- ild íslendinga". í kafla um velferðarmál er við- urkennt að skattheimta hérlendis sé minni en í mörgum Evrópu- löndum, en engu að síður er kvartað undan henni, þar sem hún dragi m.a. „úr vinnuvilja og verðmætasköpun". „Sérstaklega ber að reyna að koma í veg fyrir að félagsleg að- stoð verði fjárhagslega hagkvæm þannig að það borgi sig að verða hjálparþurfi“. í kafla um „félags- lega öryggisnetið" segir m.a.: „Atvinnuleysistryggingar gefa allmörgum tækifæri til þess að búa við betri kjör í iðjuleysi en vinnu". Lítið er fjallað um kaupgjalds- mál öðruvísi en undir formerkj- um lægri verðbólgu, en viður- kennt að á stjórnartímabilinu hafi kaupmáttur tímakaups nokkurra starfshópa lækkað um 25%. f landbúnaðarmálum er lagt til að innleiða frjálsan og óheftan markaðbúskap með því m.a. að leggja niður kjarnfóður- gjald, niðurgreiðslur og útflutn- ingsbætur. I kafla um utanríkis- og örygg- ismál er lýst yfir fullum stuðnirigi við hernaðarframkvæmdir á ís- landi og Geir Hallgrímsson. Þá segir: „Huga þarf að örygg- inu inn á við og gera þarf nauðsynlegar ráðstafanir til þess að erlend ríki eða útsendarar þeirra grafi ekki undan öryggi ís- lenska ríkisins og sjálfstæði þjóð- arinnar.“ -óg Sjá bl. 6. Askja Eldfjallið bráðlifandi „Askja gengur upp og niður, ég veit ekki hvernig ég á að botna það,“ sagði Eysteinn Tryggvason í Norrænu eldfjallastöðinni þegar Þjóðviljinn innti hann eftir hreyf- ingum og landsigi á Öskjusvæð- inu nýlega. „Það eru áberandi hreyfingar þarna en það er ekkert nýtt, und- anfarin 10 ár hefur landsigið ver- ið um 10 cm á ári og stöðugt í sömu áttina. En okkar mælingar eru takmarkaðar og þetta er stórt svæði svo það er ómögulegt að segja til um hvað þetta þýðir. Svæðið fyrir norð-vestan vatnið hefur sigið um hálfan meter á síð- astliðnum 13 árum miðað við landið 3 kflómetra fyrir austan vatnið samkvæmt síðustu mæl- ingum, og vestast um 10 cm á 500 metra svæði við Öskjuop. Við sjáum á þessu að eldfjallið er bráðlifandi og það má búast við öllu, það gæti orðið gos á morgun en alveg eins eftir 20 ár. Afkom- endur okkar eiga örugglega eftir að sjá gos í Öskju, en hvenær get- um ekki sagt neitt um“. -vd. BÚR Rólegt í gær Dagsbrúnarmenn í Bæjarút- gerðinni voru hinir slökustu og lausir við alla streitu þegar Þjóð- viljinn leit þar inn i gær. Þeir voru komnir í bónusverkfall og fóru sér hægt. Samúðarvinnustöðvun Dagsbrúnar hófst á hádegi í gær og nær til allra frystihúsa í borg- inni. Auk þess hófst bónusyerk- fall á Stöðvarfirði í gær. I dag bætast Norðfjörður, Hornafjörð- ur, Þorlákshöfn, Þórshöfn, og Verkakvennafélagið Framsókn í Reykjavík í hópinn. Á myndinni eru talið frá vinstri: Jóhann Fil- ippusson, Haraldur Björnsson, Friðrik Rafnsson, Jón Ólafur Guðnason og Ragnar Vernharðs- son. Ljósm. E.ÓI. gg Sættir Tillagan kolfelld Iðnaðarmenn í Áburðarverk- smiðjunni kolfelldu sáttatillögu sáttasemjara ríkisins í gær. Til- lagan hljóðaði upp á 5% hækkun umfram það sem samningarnir frá í júní gáfu af sér, en var felld með öllum atkvæðum í gær. Verkfallið í Áburðarverk- smiðjunni mun því halda áfram og hefur nú staðið í rúman mán- uð, hófst 10. ágúst sl. Sáttasemj- ari á næsta leik í deilunni, en eng- inn fundur hefur verið boðaður af hans hálfu. -gg Fylgjandi refsiaðgerðum Eg er fylgjandi viðskiptabanni á Suður-Afríku, og vona að stjórnvöld muni fara að þessum óskum kirkjunnar. Mín skoðun er sú að við verðum að beita ölium tiltækum ráðum gegn því sem er að gerast þarna úti svo fremi sem aðgerðir eru friðsam- legar, sagði Árni Bergur Sigur- björnsson prestur í Ásprestakalli í samtali við Þjóðviljann í gær. „Þetta er sú leið sem flestar aðrar þjóðir okkur tengdar hafa farið og ég sé ekki í augnablikinu að við getum skipt okkur af ástandinu þarna á annan hátt“. Ef stjórnvöld þverskallast við þessari ósk kirkjunnar, er þá ekki komið að almenningi að forðast vörur frá Suður-Afríku? „Jú, það er vissulega möguleg leið fyrir almenning til að hafa áhrif á gang mála“. Ertu þeirrar skoðunar að kirkjan eigi að skipta sér af stjórnmálum? „Ég tel það sjálfsagt og eðlilegt að kirkjunnar menn rétt eins og aðrir hafi skoðanir á stjórnmál- um og mannréttindamálum“, sagði Arni. gg Fagna ályktuninni Auðvitað verður kirkjan og þjónar hennar að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að óréttlæti og ójöfnuður verði af- numinn. Kirkjan á ekki að láta sér neitt mannlegt óviðkomandi, sagði Ólafur Skúlason vígslubisk- up í samtali við Þjóðviljann í gær. „Utanríkisnefnd kirkjunnar fjallaði einmitt um þetta mál í vor. Þá var haft samband við utanríkisráðuneytið og því bent á að kirkjur Norðurlanda væru að leita eftir samstöðu á Norður- löndum um aðgerðir gegn stjórn Suður-Afríku. Ráðuneytisstjór- inn lofaði því þá að þetta mál yrði athugað gaumgæfilega. Ályktun biskupanna núna kemur því í beinu framhaldi af þessari um- fjöllun og þessu starfi í vor og henni ber að fagna“. gg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.