Mosfellsblaðið - 01.12.1998, Page 4
SKOLAMALI
MOSFELLSBÆ
Hvaða áherslur viljum
við Mosfellingar í skóla-
málum? Viljum við ein-
ungis vera þess fullviss
að skólar hér í bæ séu
með sama sniði og ann-
ars staðar? Bömin okkar
fái sömu „þjónustu“ og
börn í öðrum sveitar-
félögum. Eða höfum við
áhuga á því að gera okkar
skólakerfí að því besta
sem völ er á?
Nauðsynlegt er að
skapa jákvæða umræðu
um skólamál og skoða
vel hvort æskilegt væri
að prófa einhverjar nýj-
ungar. Hvers vegna eru engar hugmyndir
um að prófa eitthvað óhefðbundið eða
aukið framboð á þjónustu? Hér á eftir
verður fjallað um þrjú atriði sem eðlilegt er
að fái umijöllun hjá Mosfellingum.
SKÓLASTEFNA
Ein leið til þess að gera gott kerfí betra er
að ná fram sameiginlegri stefnu allra sem
koma að málinu. Því verða bæjaryfirvöld
að ná að sameina viðhorf sín, skólanna og
foreldranna þegar um skóla er að ræða.
Ekki hefur enn farið fram umræða af neinni
alvöru til þess að samræma þessi viðhorf.
SKÓLAGANGA 5 ÁRA BARNA
Löng reynsla er fengin af starfi ísaks-
skóla þar sem bömin hefja skólagöngu 5
ára gömul. Almenn ánægja hefur verið með
þessa starfsemi í ísaksskóla. Því væri ráð
að skoða kosti þess og galla að taka upp
slíka viðbót við skólakerfið hér í bæ.
Nú þegar verið er að huga að byggingu á
nýjum skóla í vesturhluta bæjarins væri rétt
að ijalla um þessa hugmynd þannig að
plássleysi hamli því ekki að taka upp þessa
þjónustu. Þá má og nefna að leikskólar
bæjarins eru gjörsamlega sprungnir. Ef
hugmyndin um skólagöngu 5 ára bama
yrði að veruleika þyrfti ekki eins mikla
uppbyggingu leikskóla.
A rnóti kemur aukin
uppbygging gmnnskóla.
Jafnframt yrði um til-
færslu í mannahaldi frá
leikskólum til
gmnnskóla að ræða.
Þessi hugmynd hefur
væntanlega sína kosti og
galla eins og alltaf. Því
er nauðsynlegt að fá
fram umræðu og vega
hana síðan og meta með
velferð barnanna að
leiðarljósi.
FRAMHALDSSKÓLI
í MOSFELLSBÆ
Mosfellsbær telur í dag tæplega 5500
íbúa og fjölgar væntanlega hratt í bænum á
næstu ámm samkvæmt fréttum um upp-
byggingu í landi Blikastaða. Því er eðlilegt
að fjalla um hvenær framhaldsskóli komi í
bæjarfélagið. Hver er stefna bæjaryfírvalda
í þessu máli? Hvenær er stefnt að því að
framhaldsskóli komi í Mosfellsbæ og hvar
á hann að vera staðsettur? Brýnt er að móta
stefnu í þessu máli og er þá bæði verið að
tala um tímasetningar og skipulagsvinnu.
Ljóst er að ekki hafa allir sömu skoðun á
þessu máli. Sumir telja stofnun framhalds-
skóla leiða til ákveðinnar einangrunar
Mosfellinga á þessu skólastigi. Svo þarf
alls ekki að vera þar sem við höfum fullan
aðgang að öllum framhaldsskólum Reykja-
víkur í dag með þátttöku okkar í byggingu
Borgarholtsskóla. Því er engin ástæða til
þess að ætla að þar þurfí að verða breyting
á. Hugsanlega gæti orðið um samstarf við
Reykjavíkurborg og ef til vill fleiri að ræða.
Eðlilegt er að fram fari umræða um málið
og stefna bæjaryfirvalda í málinu sé ljós.
Mosfellingar stuðlum að jákvæðri
umræðu um skólamál og styðjum þannig
gott skólastarf í Mosfellsbæ.
Með jólakveðju
Hafsteiim Pálsson
áti
Um leið og við óskum börnum, ungmennum
og öðrum bæjarbúum gleðilegra jóla
leitum við eftir stuðningi allra sem leyfi hafa
til að kaupa áfenga drykki til að virða
áfengislög nr. 75/1998, sbr. 18. gr., þar sem
segir að óheimilt sé að selja, veita eða afhenda
áfengi þeim sem er yngri en 20 ára.
Barnaverndarnefnd Mosfellsbæjar
tKefoji&aid í
tJKcóreiiómeólaíiaiii
um joi oy CLtamob 1998
13.12. - 3. sd. í jólíiíösl 11
Barnastarf kl. 11.00
Messa í Mosfellskirkju kl. 14.00
15.12. kl. 14:30
Jólastund á Hlaðhömrum kl. 14:30
í tengslum við lok félagsstarfs
aldraðra fyrir hátíðar.
16. og 17. 12.
Aðventuheimsóknir leikskólabarna í
Lágafellskirkju
20.12. - 4. siinnudagur í jólaföstu
Jólastund barnastarfsins
í Lágafellskirkju kl. 11.00
Athugið að þennan sunnudag
kemur jólastundin í stað
hinnar almennu guðsþjónustu.
24. 12,- aðfangadagur jóla
Aitansöngur á Reykjalundi kl. 16.00
Einsöngur: Bergþór Pálsson
Aftans. í Lágafellskirkju kl. 18.00
Einsöngur,- Bergþór Pálsson
Aftans. í Lágafellskirkju kl. 23:30
Einsöngur: Inga Backman
(Prestur: sr. Sigurður Rúnar
Ragnarsson)
25.12. - jóladagur
llátíðarguðsþjónusta
í Lágafellskirkju kl. 14.00
Flautuleikur: Kristjana Helgadóttir
26.12. - annar í jóluni
Hátíðarguðsþjónusta í Mosfellskirkju
kl. 14.00
Einsöngur: Inga Backman
(Prestur: sr. Sigurður
Rúnar Ragnarsson )
31.12. ■ Gamlársdagur
Aflans. í Lágafellskirkju kl. 18.00
Flautuleikur: Kristjana Helgadóttir.
Kyrrðar - og bænastundir í
Lágafellskirkju
Athugið að á aðventunni hefjast að
nýju kyrrðar - og bænastundir í
Lágafellskirkju.
Þær verða á fimmtudögum kl. 18.00
og veröur sú fyrsla
fimmtudaginn 3. desember. Þar
verður leikið á orgel kirkjunnar,
Lesið úr ritningunni og viðstaddir
sameinast í bæn. Bænarefnum má
koma lil þess sem leiðir stundina
hverju sinni.
Hér má minna á nýtt ljósaaltari
kirkjunnar en þar má kveikja á
kerti sem tákn bænar eða í minningu
látinna ástvina.
Sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson mun
sjá um bænastundirnar.
&ímamejlic); pteölat og ótatjð-
foík Mjnacíatim
óiíia aaptaðaMiptíiiuum öffum
gfeðifóýta-jóía
og jawœföat á i
. ntjju
au.
lm Atvínnuþróunarsjóð
A aðalfundi Atvinnuþróunarsjóðs
þann 11. nóvember síðastliðinn kom
upp ágreiningur um reikninga sjóðsins.
Þannig létu fulltrúar DJistans bóka að
fundurinn væri haldinn fjórum mánuð-
um seinna en reglur kveða á um. Þá hafi
enginn aðalfundur verið haldinn vegna
rekstrarársins 1996.
Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn
var 24. júní síðastliðinn samþykktu full-
trúar meirililutans reikninga Atvinnu-
þróunarsjóðs sem voru rangir að mati
fulltrúa D-listans.
Á fundinum þann 11. nóvember síð-
astliðinn lagði stjörn sjóðsins fram nýja
reikninga . Þessir reikningar sem samd-
ir eru af löggiltum endurskoðanda bæj-
arsjóðs eru verulega frábrugðnir þeim
reikningum sem samþykktir voru í
júní.
Þrátt fyrir endurskoðunina telja full-
tniar D-listans að það séu enn ágallar á
reikningunum þar sem hluti rekstrar-
kostnaðar bókasafnsins er færður sem
eign í Kjarna og að bæjarsjóður er lát-
inn greiða vaxtarkostnað af skuldum
sjóðsins. Reikningarnir voru samjivkkt-
ir með fjómm atkvæðum gegn þremur.
O UosrellNblaðið