Þjóðviljinn - 24.09.1985, Qupperneq 4
LEIÐARI
Snjósleðar lækka í verði
Þegar Þjóöviljinn spurði Albert Guömunds-
son fjármálaráðherra um bensínhækkunina á
laugardaginn, kvaöst ráöherrann telja hækkun-
ina viðbrögð við neyðarástandi. Og það er
hverju orði sannara, að ríkisstjórnin er ábyrg
fyrir neyðarástandi sem hún hefur komið á í
rekstri heimilanna í landinu. Það er ekki vegna
þess að illa hafi aflast eða erfiðlega gangi á
mörkuðum, þvert á móti, það er vegna þess að
illa hefur verið haldið á stjórn efnahagsmála í
landinu.
Bensínið hækkar nú úr 31,40 kr. hver lítri í 35
krónur. Hlutur ríkisins er nú orðinn nær 60% af
bensínverðinu og hefur aldrei verið hærri. Hvort
sem mönnum líkar nú betur eða verr er bifreið
orðin að miklu leyti nauðsynjahlutur. Forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins hafa löngum haldið
langar ræður um hátt bensínverð. Nú hækka
þeir hlut ríkisins meira en nokkru sinni áður og
það er gert með gerræðislegum bráðabirgða-
lögum.
Þessi táknræna stjórnarathöfn, útgáfa bráða-
birgðalaga til hækkunar á bensínverði, hefur
þær afleiðingar að framfærsluvísitalan fer langt
upp fyrir rauða strikið, sem ríkisstjórnin var búin
að lofa við síðustu samninga að ekki yrði farið
fram yfir. En nú átti ríkisstjórnin undursamlegan
leik í pókerspili sínu við hagstærðir. Hún ákvað
að falsa vísitöluna með því að lækka tolla á
bílum og snjósleðum. Þarmeð sló ríkisstjórnin
tvær flugur í einu höggi, hún falsaði vísitöluna
og vann sér inn velvilja hjá bifreiðainnflytjend-
!um, sem er fámennur og áhrifamikill hópur
innan Sjálfstæðisflokksins. Bifreiðainnflutning-
ur hefur dregist verulega saman vegna neyðar-
ástandsins sem fjármálaráðherrann viðurkenn-
ir að ríki. Bifreiðar lækka því í útsölu um allt að
10% og má gera ráð fyrir að meira verði flutt inn
af bílum. Það hefur hins vegar þær afleiðingar
að viðskiptajöfnuður verður enn óhagstæðari
og er þá útkoman orðin eins og annað á vegum
ríkisstjórnarinnar, - þjóðhagslega óhagkvæmt.
I Hvaða máli skiptir það að mati ríkisstjórnarinnar
sem heldur áfram að dansa trítldans á rauðu
striki? - henni tókst að falsa vísitöluna.
Stjórnvöld hafa ekki látið þar við sitja, að
hækka bensínið. Síðastliðinn fimmtudag er gef-
in út tilskipun um hækkun á kindakjöti til
neytenda um 14%. Það kostar nú 220 krónur
kílóið, og er orðið jafn dýrt og nautakjöt í algeng-
asta verðflokki. Það er svo einnig táknrænt að á
síðustu tveimur árum, frá því að ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar, Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins, seítist að
völdum, meðan launin hafa að meðaltali
hækkað um 60%, hefur kindakjötið hækkað
um 140%. Það er ekki vegna þess að laun til
bænda hafi hækkað svo mikið á tímabilinu, -
það eru aðrir sem maka krókinn á þessum tím-
um.
Þegar tilkynning berst um að leggja eigi 2
miljarða á fólk í gegnum tollabreytingar, vöru-
gjald og svo framvegis eru margir sem halda að
þetta komi ekki til með að bitna á þeim. Þá áttar
fólk sig ekki á því að með skattlagningu einsog
bensínhækkun er verið að taka frá almenningi
fjármagn og færa það í aðrar áttir. Það erum við
sem borgum og fáum ekki bætt í launum.
Þegar ríkisstjórnin hefur nú gengið fram af
fjölda fólks með því að skerða ferðafrelsi þess
með bensínhækkunum, með því að þrengja að
íslenskum landbúnaði og neysluvenjum íslend-
inga með því að hækka kindakjötið, þá á ríkis-
stjórn eina huggun fyrir kjósendur Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokksins. Einhverjir
kjósendur þeirra mega koma á kjörstað í næstu
kosningum og votta þeim hollustu sína - renn-
andi á snjósleðum. Sleðarnir hafa lækkað um
10%. Þannig hefur ríkisstjórnin brugðist við
neyðarástandi í íslensku efnahagslífi sam-
kvæmt lögmáli hins óvænta. Það er samfelldur
vetur, Lurkur, í efnahagslífi þjóðarinnar. Ríkis-
stjórnin bregst við með því að lækka verð á
snjósleðum. -óg
KUPPT OG SKORIÐ
Vonbrigöi
Erlendar fréttir eru ekkert sér-
lega uppörvandi þessa daga.
Hvorki að því er varðar það sem
gerist né heldur það sem menn
búast við að gerist á næstunni.
Margir voru til dæmis að vona,
að líkur væru töluverðar fyrir því,
að risaveldin næðu nokkrum ár-
angri í afvopnunarviðræðum í
Genf eða á þeim fundi Reagans
og Gorbatsjofs sem fyrirhugaður
er áður en langt um líður.
Nú þykir flestum einsætt að af
þessu verður ekki. Og vísa þá til
ummæla Reagans forseta á blað-
amannafundi í fyrri viku. Þar vís-
aði forsetinn á bug með ótví-
ræðum hætti öllum hugmyndum
um að hrófla við SDI áætlun
sinni, einatt kenndri við Stjörn-
ustríð.
Og þar með, segja fréttaskýr-
endur, geta samningamenn
pakkað saman og farið heim til
sín, og fundur Reagans og Gor-
batsjofs verður varla annað en
meiningarlítill fjölmiðlahasar.
Leið var til
Sérfræðingar hafa þóst geta
komið auga á málamiðlunarleið
um Stjörnustríðsáformin, en eins
og menn vita miða þau að því að
koma fyrir í geimnum vígbúnaði,
sem grandað getur eldflaugum
andstæðingsins áður en þær kom-
ast í skotmark. Sá tilgangur
hljómar ekki illa við fyrstu sýn,
en ótrúlega mörgum ber saman
um að hér sé um feikna dýrt skref
í vígbúnaðarkapphlaupi að ræða,
sem geti í raun ekki gefið það
öryggi sem lofað er - heldur þvert
á móti gert sambúðarveður ris-
anna enn vályndari en er.
Stjörnustríðsáætlunum má
skipta í fjóra áfanga. Fyrst er um
að ræða vísindalegar grundvall-
arrannsóknir, þá tilraunir með
stjörnustríðstækni, í þriðja lagi
eru stjömustríðsvopn smíðuð og
betrumbætt og í fjórða áfanga er
þeim komið fyrir úti í geimnum.
Bent er á það, að erfitt sé að
banna rannsóknir á þessu sviði og
fáir munu efast um að Sovétmenn
eru líka á slíku róli. Það er varla
hægt að komast hjá því að risa-
veidin rannsaki hverjar gætu orð-
ið afleiðingarnar af tækniþróun í
næstu framtíð. Þau munu.hvort
um sig vilja reyna að koma í veg
fyrir að andstæðingurinn hafi allt
í einu náð nýjum tæknilegum
áfanga sem veiti honum mikla
einhliða yfirburði. Hér við bæt-
ist, að ekki er hægt með njósna-
hnöttum að fylgjast með því hvað
vísindamenn eru að reikna út
hver hjá sér. Hins vegar, segja
þeir sérfróðir menn sem hér er
vitnað til, er hægt að koma við
banni á næstu þrem áföngunum
með samningagerð milli Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna.
Reagan
neitar
En á þeim fréttamannafundi
sem fyrr var nefndur sagði Reag-
an að tilraunir með geimvopn og
framtíðarþróun þeirra væri „lög-
mætur partur af rannsókna-
starfseminni“. Hann útilokaði
samninga við Sovétríkin um þessi
efni. Hann tók það fram, að þetta
yrði sín afstaða eins þótt Sovét-
menn byðust til að skera niður
eldflaugabirgðar sínar í staðinn
fyrir frystingu á sviði Stjörnu-
stríðs. En Gorbatsjof hafði ný-
lega í viðtali við Time gefið til
kynna að það kæmi vel til greina.
Gorbatsjof hafði sagt þar sem
svo, að Sovétmenn gætu fyrir sitt
leyti fallist á undirstöðurann-
sóknir á sviði geimvopna en
nema yrði staðar við tilraunir og
banna þær. Gorbatsjof vísar um
leið í samning frá 1972 milli risa-
veldanna sem bannar „smíði, tii-
raunir með og uppsetningu"
vopnakerfa sem beint er gegn at-
ómsprengjueldflaugum og stað-
sett úti í geimnum.
Reagan er ekki aldeilis á sama
máli. Hann segir að í fyrr-
greindum samningi frá 1972 sé
smugur að finna sem leyfi Banda-
ríkjamönnum að smíða og prófa
geimvopnakerfi.
Hörð
gagnrýni
Weinberger hermálaráðherra,
Casey forstjóri CIS og ystahægrið
í Bandaríkjunum er sjálfsagt
ánægt með ummæli forsetans. En
þau sæta líka andúð mikilli og
gagnrýni í Bandaríkjunum sjálf-
um að ekki sé talað um Evrópu-
lönd. James Schlesinger, fyrrum
vamarmálaráðherra og nú pró-
fessor við Center for Strategic
and International Studies segir
um þetta mál:
„Forsetinn segir að hann vilji
halda áfram með SDI og fá um
leið eftirlit með vígbúnaði. En ef
við höldum áfram með SDI hafa
Sovétmenn enga hvöt til að skera
niður sóknarvopn sín. Þetta þýðir
að samningar í Genf munu ekki
leiða til samkomulags. Forsetinn
getur ekki náð báðum markmið-
um í senn. Við eigum að semja
um SDJ við Sovétmenn.“
Paul Warnke, sem var aðal-
samningamaður Carter-stjórnar-
innar um SALT-samningana hef-
ur þetta að segja:
„Nú er eftirlit með vígbúnaði
úr sögunni. Leiðtogafundurinn
verður stórslys. Það mun ekkert
miða í samkomulagsátt í við-
ræðum við Sovétmenn meðan
Reagan er forseti... Það á að taka
afstöðu Sovétmanna alvarlega
vegna þess að hún byggir á ein-
földum rökum: Sovétmenn hafa
ekki efni á að skera niður vígbún-
að sinn ef við höldum áfram með
Stjömustríðsáformin. “
John Steinbrunner, yfirmaður
utanríkispólitískra rannsókna við
Brookings Institution, kemst svo
að orði:
„Við stefnum beint til átaka
við Sovétmenn. Ef að ummæli
(forsetans) endurspegla yfirveg-
að mat og eru endanleg yfirlýsing
þá bíður okkar ekki annað en
takmarkalaust vígbúnaðar-
kapphlaup“.
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóóviljans.
Rlt8tjórar: Árni Bergmann, Össur Skarphéóinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Páll Valsson, Sigriður Pótursdóttir, Sævar Guð-
björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Valdís Öskarsdóttir.
Útllt og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir.
Handrlta- og prófarkaleatur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdaatjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrif8tofu8tjór1: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
ÚtbreiÖ8lu8tjóri: Sigriður Pótursdóttir.
Auglý8lnga8tjórl: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir. Guðbergur Þorvaldsson,
Clausen.
Afgrei&slustjóri: Ðaldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttit, Kristín Pótursdóttir.
Sfmavarsla: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Bílstjórl: Ólöf Sigurðardóttir.
Utkeyrsla, afgrelðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
nina Varö * ,ausa8Ö,u: 35 kr.
ug Sunnudagsverð: 40 kr.
Áakriftarverð á mánuði: 400 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN