Þjóðviljinn - 24.09.1985, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 24.09.1985, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Þriðjudagur 24. september 1985 219. tölublað 50. árgangur UOÐVIUINN Bensínhœkkunin Spilað á vísitölukerfið Bensíngjaldið hœkkar um 40%. Skattheimta ríkisins af bensíni aldrei meiri. 5000 króna viðbótarreikningur á hvern bifreiðareiganda. Hækkun á bensíngjaldi um rúm 40%, sem mun þýða um 11,5% hækkun á bensínverði um næstu mánaðamót, gefur ríkis- sjóði ríflega 400 miljónir kr. í tekjur umfram þann tekjumissi sem hlýst af lækkun innflutnings- gjalda á bifreiðum og snjósleð- um. Þennan 400 miljón króna skattreikning kallar fjármálaráð- herra slétt skipti því hann hefur engin áhrif á framfærsluvfsitölu vegna þess að kaupverð á bifreið vegur þar mun þyngra en bensín- reikningur. „Ég hugsa að það hafi mörgu meira verið logið“, sagði Hösk- uldur Jónsson ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu er Þjóðvilj- inn bar undir hann í gær hvort ráðherra og ráðuneyti væru ekki að spila á vísitölukerfið með því að taka 400 miljónir í aukaskatt af bifreiðaeigendum og kalla það slétt skipti miðað við vísitölu. Hækkun bensíngjalds úr 6,80 í 9,54 kr. á hvern lítra, sem er rúm- lega 40% hækkun, leiðir jafn- framt til hækkunar á söluskatti á bensíni þannig að opinber gjöld á hverjum bensínlítra hækka í 20,90 kr. sem eru tæp' 60% af bensínverði. Skattheimta ríkisins á bensíni hefur aldrei áður verið hlutfallslega jafn mikil. Þessi nýjasta skattheimta fjár- málaráðherra mun hækka ár- legan bensínreikning á hvern meðalbíl um rúmlega 5000 kr. Það eru hin sléttu skipti ráðherr- ans sem gefa ríkissjóði á árs- grundvelli 400 miljónir í auknar skatttekjur. -lg- Þór Magnússon þjóðminjavörður, Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og dr. Jón Steffensen. Mynd: Sig Nesstofa Lækningasafn opnað 1986? Viðgerð ávesturhlutanum að Ijúka. 750þús. kr. variðtil endurbótaíár. Stefnt er að þvf að opna lækn- ingasögulegt safn í Nesstofu á Seltjarnarncsi á næsta ári, en unnið hefur verið að viðgerð hússins allt frá árinu 1969. í gær skoðuðu fulltrúar á aðalfundi Læknafélags Islands Nesstofu en félagið mun ætla að styrkja við- gerð hússins fjárhagslega. Það er Þjóðminjasafn íslands sem annast endurbyggingu Nes- stofu og hefur Þorsteinn Gunn- arsson arkitekt og leikari umsjón með henni. Síðustu tvö árin hefur verið unnið þar eins og fjár- veitingar leyfa en á sama tíma hefur Viðeyjarstofa verið í al- gerri biðstöðu. Að sögn Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar hefur alþingi veitt 750 þúsund krónum á ári nú og í fyrra sam- eiginlega í þessar byggingar og hefur því öllu verið varið í Nes- stofu. Þá hefur Seltjarnamesbær lagt hönd á plóginn, Rotary- hreyfingin á íslandi hefur lagt fé til að standsetja þar lækninga- stofu Bjama Pálssonar og Jón Steffensen fyrrum landlæknir og mikill áhugamaður um stofnun safnsins hefur einnig lagt fram drjúgan skerf. Þór Magnússon sagði að Nes- stofa hefði í fyrra verið tekin fram fyrir Viðeyjarstofu þar sem hún hefði verið farin að leka illilega á sama tíma og Viðeyjarstofa var orðin vel fokheld. Þá væri Nes- stofa minna hús og því viðráðan- legra með tilliti til fjárveitinga og búið væri að ákveða til hvers hús- ið yrði nýtt. „Nú er að mestu búið að gera við það sem hægt er og það er von mín að vesturhlutinn verði tilbú- inn á næsta ári“, sagði Þór. „Hins vegar er enn búið í austurhlutan- um, þannig að hann bíður síðari tíma“. -ÁI Norðurlönd Kjarnorkuvopnalaust svæði ífyrsta skiptisamvinna norrœnnaþjóðþinga íutanríkismálum. Fulltrúarallra þinganna á ráðstefnu í Kaupmannahöfn í nóvemberlok. r Igær var tilkynnt ' -- á blaða- mannafundi í Kaupmannahöfn að þjóðþing allra Norðurlanda hefðu ákveðið að halda ráðstefnu um Norðurlönd - kjarnorku- vopnalaust svæði, í lok nóvember næstkomandi. Á ráðstefnunni verða einnig fulltrúar Grænlands og Færeyja. Svavar Gestsson alþingismað- ur og Ólafur G. Einarsson alþing- ismaður hafa fyrir hönd alþingis setið í undirbúningsnefnd fyrir þessa ráðstefnu sem tilkynnt var um í Kaupmannahöfn í gær. Á annað hundrað þingfulltrúar munu sitja ráðstefnuna, þeirra á meðal átta fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á alþingi íslendinga. Ákveðið hef- ur verið að framsögumenn á ráð- stefnunni verði frá Noregi og Sví- þjóð. Formaður undirbúnings- nefndarinnar er Anker Jörgensen leiðtogi danskra jafnaðarmanna. Norræn samvinna um utan- ríkismál og öryggismál hefur ekki verið til umfjöllunar á vettvangi Norðurlandaráðs og mun þetta vera í fyrsta skipti sem þjóðirnar hafa samvinnu með viðlíka hætti um þennan viðkvæma málaflokk og þykja því mikil tímamót. -óg Dilkakjöt Hækkun um tæp 146% á kílóverði dilkalœris ’83- ’85. Þann 19. september hækkaði kindakjöt um 15%, slátur og inn- matur hækkuðu um 6,8% og naugripakjöt um 8%. Astæður hækkunarinnar eru m.a. sagður vera hækkun ýmissa kostnaðar- liða í heildsöluverði, s.s. slátur- kostnaður og heiídsölukostnað- ur. Við lauslega athugun kemur í ljós að kílóverð á dilkalæri hefur hækkað um 146,7% á árunum 1983-1985. Á sama tímabili hafa laun hækkað um u.þ.b. 60%. Á árinu ’83-’84 hækkaði kíló- verðið á dilkalærinu um 45% og árið eftir um 70,1%. Það árið var smásöluálagningin gefin frjáls á dilkalærum. Kvikmyndir Hrafninn flýgur víða! Hrafninn flýgur, mynd Hrafns Gunnlaugssonar, gerir það gott vfða um lönd. í frétt frá sænsku kvikmyndastofnuninni segir að þegar sé búið að selja myndina í 14 löndum og að hún hafi verið sýnd á 7 kvikmyndahátíðum. Þar segir einnig að myndin gangi enn á kvikmyndahúsi í Stokkhólmi við góða aðsókn og sé búið að selja miða fyrir meira en eina miljón sænskra króna. Þá hefur EMI upptökufyrir- tækið gert samning um að dreifa Hrafninum á vídeóspólum og hafa viðtökurnar verið frábærar. Þegar er búið að gera 1.500 ein- tök af myndbandinu og að sögn sænskra eru viðtökur svo góðar að jafna verður við sölu á allra eftirsóttustu kvikmyndunum. Útvarp Einar frá Hermundar- felli hættur Jónas Jónasson: Eldra fólk mun ekki gleymast Nokkurrar óánægju hefur gætt meðal eldra fólks með þá ráðstöf- un Ríkisútvarpsins að hætta út- sendingum á þætti Einars Krist- jánssonar frá Hermundarfelli, Mér eru fornu minnin kter. Þátt- urinn var mjög vinsæll og nú ótt- ast menn að ráðamenn útvarps gleymi þeim dygga hlustendahópi sem eldra fólk er. Jónas Jónasson forstöðumaður RÚVAKS sagði að svo væri alls ekki og fólk þyrfti ekkert að ótt- ast gleymsku. Einar Kristjánsson hefði verið með sína ágætu þætti í 5 ár og gert um 140 þætti og þar sem nú stæði yfir endurskipu- lagning og uppstokkun á dagskrá Ríkisútvarpsins þá hefði mönnum þótt ástæða til þess að reyna eitthvað nýtt á þessu sviði. Hjá RÚVAK hefði Haraldur Ingi Haraldsson verið ráðinn til þess að sjá um þátt á svipuðum en þó nýjum nótum. „Hann er ung- ur maður og þetta er viðleitni til þess að byggja brú yfir hið marg- umtalaða kynslóðabil, því ungir og aldnir geta talast við og eiga að gera það“ sagði Jónas Jónasson á Akureyri. -pv

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.