Þjóðviljinn - 27.09.1985, Blaðsíða 2
_____________FRETTIR_________
Réttarríkið
Misbeiting
ákæruvaldsins
Stjórn BSRB ályktar: Alvarlegt áfallfyrir íslenskt réttarfar og árás á
starf stéttarsamtaka
Sjóbirtingur
Eldi reynt
áður
í tilefni af frétt Þjóðviljans í
gær um sjóbirtingseldi hjá Olunn
á Dalvík hafði lesandi samband
við blaðið og benti á, að þetta
væri ekki í fyrsta sinn sem sjóbirt-
ingur væri alinn í sláturstærð hér
á landi. Tungulax hf. hefði gert
það með ágætum að Öxnalæk í
Ölfusi og sömuleiðis hefði Sig-
urður St. Helgason að Húsatóft-
um við Grindavík framleitt um
eitt til eitt og hálft tonn af sjóbirt-
ing, 1-1,5 kíló að þyngd, á sínum
tíma. Það hefði sömuleiðis geng-
ið mæta vel, og sjóbirtingurinn
vaxið mjög hratt. _ ÖS.
Stjórn BSRB ítrekar stuðning
heildarsamtakanna við mál-
stað starfsmanna Ríkisútvarps-
ins, hljóðvarps og sjónvarps,
vegna mótmælaaðgerða þeirra í
byrjun októbermánaðar 1984,
þegar ríkið neitaði að greiða
ríkisstarfsmönnum laun fyrir-
fram, eins og lög mæla fyrir um.
Sú misbeiting ákæruvaldsins
sem átt hefur sér stað í málum
vegna kjarabaráttu samtakanna
haustið 1984 er alvarlegt áfall
fyrir íslenskt réttarfar og árás á
starf stéttarsamtaka í landinu.
Til þess að leggja aukna
áherslu á stuðning heildarsam-
takanna við starfsmenn útvarps
og sjónvarps og stéttarfélög
þeirra ákveður stjórn BSRB að
greiða kostnað vegna varnar
ákærumálsins fyrir dómstólum.
Þessi ályktun var samþykkt
samhljóða.
STÓR-
ÚTSAÚ
H efur þú hugmynarum
H -útsöluna
i
H - húsinu
Auðbrekku 9, Kópavogi
Hvað gerir H —
Rann upp sá dagur að Dagur
stæði undir nafni.
Jafnrétti
Nomæn
ráðstefna
„Á ráðstefnunni var fjallað um
skýrslu Sameinuðu þjóðanna um
jafnréttismál sem var samþykkt á
ráðstefnunni í Nairobi, og það
hvernig Norðurlöndin eigi að
fylgja henni eftir“, sagði formað-
ur Jafnréttisráðs, Elín Flygen-
ring.
Rætt var um spurningar eins og
atvinnumarkað, menntunarmál,
félags- og heilsufræðimál, rann-
sóknir og hvernig opinberar
stofnanir sem fjalla um jafnrétti
. kynjanna eigi að starfa.
Á ráðstefnunni í Nairobi voru
samankomnir fulltrúar frá flest-
um ríkjum heims en í menningar-
legu tilliti eru Norðurlöndin mjög
ólík til dæmis löndum Afríku. Því
var ákveðið að Jafnréttisnefnd
norrænu ráðherranefndarinnar
beitti sér fyrir ráðstefnu um
jafnrétti á Norðurlöndum og
henni valinn staður á íslandi. A
ráðstefnunni ræddu starfshópar
ýmsar tillögur um það hvernig
Norðurlöndin geti unnið saman
að framkvæmdaáætlun Samein-
uðu þjóðanna frá Nairobi-
ráðstefnunni. - aró.
Við seljum umframbirgðir
frá verksmiðjum,
heildsölum og verslunum
á eins hagstæðu verði
og hugsast getur
alít árið um kring.
SANNUR SPARNAÐUR
Hér erum við
Opid alla daga
fra kl. 10 til 20
PLUS
Sími
44440
Handklæði
Sængurverasett
Teygjulök
Skór
Skyrtur •
Peysur
Snyrtivörur
Gallabuxur
Nærfot
Sokkar
Barnafot
Skartgripir
Sælgæti
Blussur
Leikföng
Búsahöld o fl.
PLÚS
Akureyri
NýrDagur
Fyrsta dagblað utan
Reykjavíkur.
„Það er verulegur hressleiki í
mannskapnum, allir ákveðnir í
að láta þetta ganga“, sagði Her-
mann Sveinbjörnsson, ritstjóri
Dags á Akureyri, þegar Þjóðvilj-
inn spjallaði við hann í gærdag.
En Dagur er einmitt að verða að
raunverulegu dagblaði þessa dag-
ana, því fyrsta utan Reykjavíkur,
og mun nú koma út fimm daga í
viku.
„Við höfum bætt við einum
fimm mönnum á ritstjórninni“,
sagði Hermann, „og erum nú 11
talsins. Það er kannski helst nýj-
unga að við erum með fastan
fréttaritara í fullu starfi á Húsa-
vík. Við leggjum alla áherslu á að
vera með fréttir úr byggðarlögun-
um hér fyrir norðan og upplýsa
um gang mannlífsins á þessum
slóðum. Við erum sannarlega
hress, því þetta er voða gaman“,
sagði Hermann.
- Er ekki Dagur Framsóknar-
blað?
„Blaðið fylgir hugsjónum sam-
vinnu en það eru engin formleg
tengsl við Framsóknarflokkinn.
En þú mátt svo sem segja að það
sé ákveðinn framsóknarblær á
skoðunum ritstjórans", sagði
Hermann ritstjóri að lokum og
hló holum framsóknarhlátri í
símann. - ÖS.
2 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN