Þjóðviljinn - 27.09.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 27.09.1985, Blaðsíða 9
HEIMURINN Punjab Kosningasigur hægfara Sikha Urslitin eru ósigur aðskilnaðarsinna Chandigarh - Flokkur hægfara Sikha, „Akali Dal“, fékk í kring- um tvo þriðju þingsæta í kosn- ingunum i Punjab-fylki á Ind- landi í fyrradag og komst aftur inn á þjóðþingið í Nýju Delhi. Samkvæmt tölvuspám, sem indverska sjónvarpið gerði í gær, var jafnvel talið líklegt að flokk- urinn kynni að vinna upp undir 80 af hundraði sæta í fylkisþinginu (sem alls er 155 sæti), og sex af þrettán sætum fylkisins á þjóð- þinginu. Er þetta í fyrsta skipti síðan 1977, sem flokkurinn kemst inn á þjóðþingið, en hann þurrk- aðist út í þeirri bylgju sem kom Indíru Gandhi aftur til valda 1980. Kína Leiðtogi varar við spillingu Peking - Einn af elstu leið- togum kínverskra kommún- ista varaði í gær við þeirri stefnu að „opna“ landið: sagði hann að sú stefna leyfði „kap- ítalískum hnignunarkenning-, um“ að smeygja sér inn í Kína og hefði ýtt undir spillingu, klám og ósiðlæti. Þessi áminning leiðtogans Chens Yun, sem er áttræður, birtist daginn eftir að skýrt var frá nýrri fimm ára efnahagsáætlun stjórnvalda, þar sem gert var ráð fyrir að landið yrði opnað enn meir en verið hefur hingað til. Kínverska fréttastofna hafði eftir Chen Yun, sem er formaður stjórnmálanefndar kommúnista- flokksins, að menn þyrftu að vera mjög árvökulir til að koma í veg fyrir spillingaráhrif kapítalískrar hugmyndafræði. Hélt hann því fram að félög sem flokksforingj- ar, börn þeirra og embættismenn ríkisins hefðu sett á fót væru flækt í fjárglæfra, mútur, smygl, svik og fjárkúgun og sölu á klám- myndböndum. „Sú hnign- unarhugmynd kapítalsismans að setjast peninga ofar öllu veldur nú alvarlegri spillingu í flokknum og þjóðfélaginu“, sagði hann. Nýlega komst upp að embætt- ismenn á eynni Hainan við suður- strönd Kína höfðu keypt 570 miljónir dollara á svörtum mark- aði til að kaupa meira en 89.000 bfla og ýmsan annan varning, og var þetta allt selt ólöglega víða um Kína. Kínversk blöð telja að ríkið hafi tapað 1,6 miljörðum dollara vegna fjársvika og skatt- svika síðustu tvö ár. Erlendur sendimaður taldi að Chen Yun væri ekki andvígur þeirri stefnu að opna landið, en hefði miklar áhyggjur af því að hún leiddi til allskyns brasks. Vegna þess hve stefnan væri ný hefðu margir ekki enn skilið muninn á framtaki og spillingu. Úrslit þessara kosninga eru mikill ósigur bæði fyrir aðskiln- aðarsinna Sikha - þótt ekkja eins þeirra, sem sakaðir voru um morðið á Indiru Gandhi, hafi náð kjöri, - og einnig fyrir Kongress- flokkinn, sem fer með völd á Ind- landi. Er greinilegt að Akali Dal flokkurinn hefur nú fengið um- boð kjósenda til að koma á friði í Punjab-fylki, þar sem Sikhar eru í meirihluta. Leiðtogi flokksins, Surjit Singh Barnala, sem talið er líklegt að verði forsætisráðherra fylkisins, taldi að kosningarnar væru sigur fyrir samkomulagið um frið, sem Rajiv Gandhi hefur undirritað, og áfall fyrir öfga- menn, sem hvöttu menn til að greiða ekki atkvæði. Rajiv Gandhi: þótt Kongress-flokkurinn hafi tapað eru úrslitin sigur fyrir mála- miðlunarstefnu hans. Kongressflokkurinn, sem hafði áður 63 sæti í fylkisþinginu og meirihluta, fær nú aðeins um 25 þingsæti. Leiðtogi flokksins í Punjab sagði að það sem skipti mestu máli við þessar kosningar væri, að þær hefðu farið friðsam- lega fram, en ekki sigur Akali Dal. Um það bil sextíu af hundr- aði greiddu atkvæði. ,Rainbow WarrioP Heimildarmenn ákærðir París - Fimm franskir her- menn, þar á meðal ofursti í frönsku leyniþjónustunni og fyrrverandi foringi „víkinga- sveitar", sem ætluð var til að berja á hryðjuverkamönnum, voru í gær ákærðir fyrir að hafa gefið fréttamönnum upplýs- ingar um „Rainbow Warrior" málið. Samkvæmt heimildar- mönnum voru þeir ásakaðir um að hafa skýrt frá nöfnum þeirra leynilögreglumanna, sem flæktir voru í málið, Einn hinna ákærðu, Paul Barr- il höfuðsmaður, er allþekkt per- sóna í Frakklandi. Vegna sér- stakrar þjálfunar sinnar var hann gjarnan kvaddur á vettvang, þeg- ar glæpamenn eða hryðjuverka- menn höfðu náð gísium á sitt vald, og síðar var honum falið að stjórna sérstakri deild í forseta- höllinni, sem sá um baráttu gegn hryðjuverkamönnum. Sú deild var að lokum leyst upp eftir ýmis hneykslismál og deilur við innan- ríkisráðherrann, og skýrði Barril þá frá afstöðu sinni í þessum mál- um í bók, sem vakti töluverða at- hygli. Fréttaskýrendum ber saman um að Laurent Fabius, forsætis- ráðherra Frakklands, hafi tekið mikla pólitíska áhættu, þegar hann skýrði frá því í fyrradag að Hernu, fyrrverandi landvarna- málaráðherra, bæri ábyrgð á sprengjutilræðinu við „Rainbow Warrior" ásamt Lacosta, fyrrver- andi yfirmanni leyniþjónustunn- ar. Telja menn að hann hafi gert þetta til að verja sig og Mitter- rand forseta, en svo virðist sem menn leggi ekki trúnað á orð hans, og telji að hann hafi sjálfur vitað um málið miklu fyrr en hann vill viðurkenna. Vikuritið „L’Express" hefur einnig gagnrýnt að þeir, sem skýrðu frá málinu, skuli hafa verið ákærðir, en hinir, sem földu sannleikann eins og þeir gátu fyrir stjórninni og öðrum, skuli alls ekki hafa verið teknir á beinið. Eftir að hafa viðurkennt þátt sinn í sprengjutilræðinu gegn „Rainbow Warrior“ hafa Frakk- ar einnig samþykkt að greiða þeim skaðabætur, sem urðu fyrir tjóni þegar skipið sökk. Portú- galskur ljósmyndari, sem var tveggja barna faðir, lét lífið í „Rainbow Warrior". Frakkar Geta nú framleitt nifteinda- sprengjur París - Franski herinn hefur í fyrsta skipti staðfest opinber- lega að i kjarnorkuvopnakerf- inu, sem verður tilbúið árið 1992, verði nifteindasprengj- ur. Þessar fréttir birtust í opin- beru tímariti hersins, og sögðu heimildarmenn að samkvæmt þeim kynnu Frakkar að verða fyrstir til þess að setja þessi umdeildu vopn upp í Vestur- Evrópu. Þeir sögðu einnig að tilraunir með þessi vopn væru nú á loka- stigi. Nifteindasprengjan á að bana fólki með mikilli geislun án þess að valda tjóni á mann- virkjunr. Ekki hefur enn verið skýrt frá neinni pólitískri ákvörð- un um að framleiða þessi vopn og koma þeim upp. Bandaríkjamenn framleiða nifteindasprengjur, en þeir geyma þetta hafurtask heima hjá sér, vegna útbreidds ótta við að hætta á allsherjarkjarnorkustyrj- öld kunni að aukast verði það sett upp í Evrópu. Að sögn áætlana- gerðarmanna Atlantshafsbanda- lagsins eiga þessar sprengjur að vernda Vestur-Þýskaland gegn hugsanlegri skriðdrekaárás úr austri. Aðalþáttur þessa nýja kjarn- orkuvopnakerfis Frakka verður hinar svonefndu „Hades“-eld- flaugar, sem heita eftir guði dauðra í grískri goðafræði, og munu þær koma í staðinn fyrir Plútó-eldflaugar, sem franski herinn hefur haft til umráða í tut- tugu ár. Að sögn tímaritsins eru hinar nýju eldflaugar þrisvar sinnum langdrægari en hinar fyrri og fara auk þess miklu hraðar. Tékkneskir riUiöfundar gagmýna stjóm landsins Vínarborg - Tékkneskir útlagar í Vínarborg fengu frétta- mönnum í hendur í gær skjal, sem sjö kunnir tékkneskir rit- höfundar höfðu samið, og var stjórn Tékkóslóvakíu þar borin þeim sökum að hún væri að eyðileggja „allt mikilvægt gildi sjálfstæðrar þjóðmenningar". Skjalið var ætlað menningar- málaráðstefnunni, sem halda á f Búdapest næsta ár og er fyrsta ráðstefnan um Helsinkisáttmál- ann sem haldin er austantjalds. Rithöfundarnir, þeirra á meðal nóbelsverðlaunahöfundurinn Jaroslav Seifert, héldu því fram, að stefna stjórnarinnar í menn- ingarmálum, síðan innrásin var gerð 1968, hefði verið jafnvond og stefna stalínska tímabilsins byrjuðu að brjóta miskunnar- upp úr 1950 eða enn verri. „Þeir laust niður öll þau fyrirbæri sem komust þá til valda rufu allt menningarlífsins, sem voru ekki í andlegt samhengi þjóðarinnar og samræmi við stjórnmálakröfur". REUTER Umsjón: EÍNAR MÁR JÓNSSON London Dollarinn á niðurieið Lœgsta staða síðan í mars 1984 London - Dollarinn heldur áfram að síga, og í gær var hann lægri en hann hefur nokkurn tíma verið síðastiiðið eitt og hálft ár. Þessi lækkun dollarans hófst eftir að Bandaríkjamenn, Japan- ir, Vestur-Þjóðverjar, Bretar og Frakkar höfðu gert með sér sam- komulag á sunnudaginn um að samræma aðgerðir sínar í fjár- málum, og hefur dollarinn nú fallið um átta af hundraði gagnvart japanska jeninu á tæpri viku. Talið er að Japansbanki hafi mjög stuðlað að því að fella dollarann á gjald- eyrismörkuðum, og sig hans í gær varð eftir að japanskur banka- maður hafði lýst því yfir að doll- arinn væri enn of hár gagnvart jeninu. Þegar bankar lokuðu í Japan í gær, var dollarinn seldur á 222,80 jen, en í Evrópu lækkaði hann enn, og var að lokum kominn niður í 219,40 jen. Það er lægsta staða hans síðan í marsmánuði 1984. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.