Þjóðviljinn - 27.09.1985, Blaðsíða 7
leikhópnum
Vetí mamma
hvað ég vil? eru 6
strákar og ein steipa sem
er tæknimaður. Leikhópur-
inn verður opnaður öllum þeim
sem hafa áhuga á því að vera með
í Félagsstofnun stúdenta sunnu-
daginn 29.9 kl. 3. Glætan tók
þessa krakka tali til að forvitnast
um leikhópinn, fortíð hans og
framtíð og um þau sjálf, þ.e.a.s.
um unglingsár þeirra.
„Við eigum það öll sameigin-
legt að hafa verið í Hagaskóla og
hafa áhuga á leiklist. Sigríður
Eyþórsdóttir kenndi okkur leik-
list og hún stakk upp á því að við
stofnuðum okkar eigið leikhús,
unglingaleikhús. Það varð ekkert
úr því strax. Við höfðum nóg að
gera, t.d. sýndum við leikrit á árs-
hátíð Hagaskóla sem síðan var
tekið upp fyrir sjónvarpið. Að
vísu var það ekki allt sýnt því það
þótti svo klúrt fyrir barnatímann.
Einn þáttur leikritsins var sýndur
og sumir hneiksluðust ægilega því
orðið getnaðarvarnir kom fyrir í
honum. Við kláruðum Haga-
skóla en héldum alltaf hópinn
með Sigríði Eyþórs, hún er eins
og mamma okkar allra. Svo var
það einn daginn að Sigrún Val-
bergsdóttir framkvæmdastjóri.
Bandalags íslenskra leikara
nefndi það við okkur að það vant-
aði unglinga leikhóp til þess að
fara til Finnlands. Þetta tækifæri
varð þess valdandi að við stofn-
uðum leikhópinn og skelltum
okkur til Finnlands."
Hvað var að gerast
í Finnlandi?
„Á hverju ári er haldið leiklist-
arnámskeið fyrir unglinga á
Norðurlöndunum. Að þessu
sinni var það í Finnlandi. Næst
verður það á íslandi. En í tilefni
af ári æskunnar var þetta nám-
skeið mun veglegra en áður. T.d.
voru sýndar leiksýningar frá
öllum Norðurlöndunum. Einnig
gestaleikur frá Tékkóslóvakíu.
Við gátum valið um ýmsa hópa til
þess að starfa í. Sum okkar fóru í
götuleikhúshóp en sumir í hóp
þar sem kennd var beiting líkam-
ans. í þessum hópum lærði mað-
ur ýmis bellibrögð og að ganga á
stultum o.fl.
Geðveikrahæli
„Á opnunarhátíðinni sýndum
við leikritið okkar Veit mamma
hvað ég vil. Við þurftum að ýkja
allar hreyfingar og svipbrigði því
þeir sem á horfðu skildu ekki ís-
lensku. Þetta vakti gífurlega
lukku. Sá leikhópur sem okkur
finnst eftirminnilegastur var
finnskur pönkhópur. Þau sýndu
leikrit sem átti að gerast á geð-
veikrahæli. Og þetta var eins og á
hæli, því sýningin var í kjallara-
holu og um leið og þú komst inn
varstu orðinn þáttakandi. Allt
var svart og nöturlegt og manni
var hrint til og frá. í lok verksins
fengum við aldeilis ekki að
klappa heldur var okkur kastað
út. Þetta leikrit átti að sýna brjál-
æði nútímans. Þetta gat vel verið
eftir kjamorkustríð. Þetta hafði
sko ekki verið hægt að sýna á elli-
heimili því þetta var svo áhrifa-
mikið og geðveikt."
Hvað er á döfinni hjá ykkur?
„Við ætlum að búa til spjald-
skrá, þar sem eru myndir af öllum
leikhópnum og upplýsingar um
hæð o.fl. Þá geta auglýsingastof-
ur gluggað í þetta ef þær vantar
fólk í auglýsingar. Síðan ætlum
við væntanlega að fara með
leikritið okkar til Akraness og
sýna það þar. Því það voru krakk-
ar þaðan sem fóru með okkur til
Finnlands. Auðvitað viljum við
einnig sýna í Reykjavík en við
Stöndum á núlli fjárhagslega og
höfum ekkert húsnæði. Við gæt-
um eflaust fengið inni í einhverj-
um af menntaskólunum og það
væri ágætt að fá að æfa þar en
ömurlegt ef við þyrftum að sýna
þar eingöngu. Ástæðan fyrir því
að við viljum það ekki er sú að þá
er áhorfendahópurinn svo þröng-
ur. Við kærum okkur ekki um
einhvern ákeðinn skólastimpil.“
Leikstjóri óskast
„Á þessari formlegu opnun
leikhópsins í Félagasstofnun
verður kosin stjórn sem mun fá
það verkefni m.a. að finna leik-
stjóra, og húsnæði því meiningin
er að koma upp sýningu fyrir jól.
Við viljum nota tækifærið og
auglýsa hér með eftir leikstjóra til
að starfa með þessu leikhúsi unga
fólksins. Við vildum gjarnan fá
t.d. Guðmund Ólafsson leikara,
hann var á leiklistarnámskeiðinu
í Finnlandi og er frábær. Við
hvetjum alla leikara og leikstjóra
til að koma í Félagsstofnun og sjá
hvort þeim líst á okkur.“
Um hvað var leikritið Veit
mamma hvað ég vil?
„Það var um unglinga sem voru
leiðir á því að vera ekki viður-
kenndir heima hjá sér sem sjálf-
stæðir einstaklingar. Allir voru
að banna þeim eitthvað. Þau
máttu ekki spila hátt o.s. frv. Því
tóku þau sig til þ.e.a.s. nokkrir
vinir og fluttu að heiman í mann-
laust hús. Allt lék í lyndi fyrst um
sinn. Við gerðum allt sem við
vildum, vorum frjáls. Eyþór spil-
aði á selló, við slógumst og létum
eins og fífl. En ekki leið á löngu
þar til vandamál komu upp. Einn
strákurinn fór að káfa á vini sín-
um þegar stemmningin var rómó
Ug lUlCg.
hann hommi eða ekki? Hann
vissi það varla sjálfur en pirringur
kom upp í liðinu. Að lokum fóru
allir heim aftur. Þetta frjálsa
samfélag brotnaði. Endirinn var
ekki dapur, allir voru reynslunni
ríkari.“
Er erfitt að vera unglingur?
„Já, það var oft erfitt að vera
heima þegar við vorum svona 14-
15 ára.“
Þórir: „Ég næstum bjó í spila-
sal.“
Eyþór: „Ég var alltaf í æfinga-
salnum sem hljómsveitin hafði
sem ég var í.“
Vilhjálmur: „Ég bjó eiginlega í
skólaiium. Því ég var allur í
leiklistinni."
Öll voru þau sammála um það
að unglingar lifa tvöföldu lífi.
Þ.e. þau eruein persónameð vin-
unum og önnur heima hjá for-
eldrum.
Líbó
foreldrar
„Unglingar eru svo uppteknir
af því að vera töff og kúl. Flestum
finnst foreldrar sínir alveg hræði-
lega hallærislegir. Jafnvel líbó
foreldrar fá fyrirlitningu barna
sinna,“ sagði Éyþór.
Hvenær byrjuðuð þið að
drekka og reykja?
„Það var svona í 1. bekk í
gaggó en við erum öll hætt að
reykja núna. Það er ekki lengur í
tísku, sögðu þau einum rómi.
Þegar við vorum komin í menntó
fór manni að líða betur, sam-
bandið við foreldrana betra og
maður hætti að fara á spilasali,"
sagði Þórir.
Eitthvað að lokum?
„Já, ráð til unglinga: Ef ekki er
gert nóg fyrir ykkur þá farið af
stað og gerið það sjálf.“
Ráð til fullorðna fólksins: Far-
ið að viðurkenna unglingana sem
sjálfstæða einstaklinga, sögðu
krakkamir í unglingaleikhúsinu.
SA
Kópavogur
Agnarögn
K/eggja öra
Ball annað kvöld
Félagsmiðstöðin Agnarögn við
Fögmbrekku í Kópavogi verður
tveggja ára n.k. sunnudag, 29.
september. Af því tilefni verður
haldinn unglingadansleikur
laugardaginn 28. september og
hefst hann kl. 21. Þá mun Valgeir
Guðjónsson Stuðmaður
Föstudagur 27. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
skemmta, hljómsveitin Band Nú-
tímans leika og einnig verður
danssýning og diskótek.
Sunnudaginn 29. september
sjálfan afmælisdaginn verður op-
ið hús í Agnarögn frá kl. 16 til 19.
Þá em Kópavogsbúar yngri sem
eldri hvattir til að koma og skoða
staðinn og þiggja kaffiveitingar.