Þjóðviljinn - 27.09.1985, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 27.09.1985, Qupperneq 8
GLÆTAN Ný plata frá bandarísku hljóm- sveitinni Talking Heads þykir sætatíðindum, jafnvel svo að undir þann viðburð er lögð heil síða í Time, því viður- kenndafréttavikublaði, sem flytur greinar af helstu heimsviðburðum á öllum sviðum mannlífs. Þarsegir m.a., að á þessari nýju plötu, Little Creatures, sé rokk- músik eins og hún gerist áræðnust, í níu smellnum lögum - platan sé hlaðin létt- leikandi gáfumannarokki, enda þótt það sé einfaldara og þar af leiðandi aðgengi- legraenáfyrri plötumTalking Heads. Upphafið að Talking Heads var tríóið The Artistics (Hin list- rænu), sem þau hjónakornin Tina Weymouth bassaleikari og Chris Frantz trommari stofnuðu ásamt David Byrne söngvara og aðallagasmið og textahöfundi Talking Heads, þegar þau voru í listaskóla á Rhode Island. Þaðan fluttu þau til New York og urðu þar Talking Heads í janúar 1975 þegar til liðs við þau gekk Jerry Harrison hljómborðs- og gítar- leikari, sem áður hafði verið trommari í hljómsveit Jonathans Richmond, Modern Lovers. Nafnið Talking Heads er runnið undan rifjum Davids Byrne, eins og flest í músik Talking Heads. Hugmyndina fékk hann, er hann var að lesa umsögn um umræðu- þátt í sjónvarpinu þar sem talað var um þátttakendur sem talandi höfuð. Talking Heads: Jerry Harrison, Chris Frantz, David Byrne, Tina Weymouth. Líklega eru Chris og Tina eina ryþmapar í heimi sem tekist hefur að fjölga mannkyninu. Saman gerðu þau líka plötu undir nafninu Tom Tom Club. Lag af henni, „Genius of Love”, komst í efsta sæti ameríska diskólistans og í 2. sæti ryþma & blús listans, hærra en nokkurt lag með Talking Heads hefur náð. . Rokk með stíl Talking Heads urðu mjög vin- sæl íklúbbum á neðri Manhattan, sérstaklega meðal listamanna og skólafólks, og 1977 kom út fyrsta breiðskífa þeirra sem var skírð í þeirra eigin höfuð. Fékk hún góðar móttökur gagnrýnenda, næstu plötur sömuleiðis og hafa jafnframt skreytt vinsældalista víða um heim. Að vísu hefur hljómsveitin aldrei valdið svipuð- um hræringum og Duran Duran meðal mannfólksins, en njóta hinsvegar stöðugs fylgdarliðs og virðingar meðal lærðra sem leikra músikáhugamanna. Tina Weymouth hefur t.d. sagt: „Við erum öll upptekin af því að spila vel, og Kannski fá þeir sem sjá okkur á sviði þá hugmynd að við séum kuldaleg og stíf; en það sem við erum að gera með músik okk- ar er að koma skoðunum okkar á framfæri, enda þótt sumar séu kannski ekki svo víðfeðmar”. Það er einmitt það, textar og músik Talking Heads virðast miðast að því, að berjast gegn hinum viðtekna og (smá)borg- aralega hugsunarhætti, enda þótt Alþýðulist prýðir „Little Creatures", eftir séra Howard Finster; málað 12.4. 1985, hans 4411. listaverk. og stœl víðs sé fjarri að um predikanir sé að ræða. David Byrne segir skrýtnar sögur, sem í fljótu bragði virðast ekkert með raun- veruleikann hafa að gera, en fá líklega fólk til að hugsa um hvort raunveruleiki þess sé hinn eini og „rétti”. En gætum okkar að verða ekki of hátíðleg eða gáfuleg til að eyði- leggja skemmtunina. Talking Heads segja að þau sæki mikið í svokallaða kúlutyggjómúsik (bubblegum) og fluttu slík lög áður fyrr á hljómleikum (t.d. „1, 2, 3, Red Light”, lag 1910 Fruit- gum Companý, sem „músik- ölsku” fólki þótti gasalega ómerkileg -hljómsveit á 7. ára- tugnum,flutti líka „Simon Says”- spurjiði mömmu og pabba). Þá telja þau sálarmúsikina (soul) eiga part í sjálfum sér og má nefna að árið 1978 komst lagið Take me to the River með þeim inn á vinsældalista, en lagið er eftir „soul”söngvarann og -lista- manninn A1 Greene (samdi t.d. Let’s stay together, sem Tina Turner gerði aftur frægt). Ekki má svo gleyma afríkansk- ættuðum undirtónum Talking Heads. Ég verð nú að segja eins og er, að Little Creatures (Litlar verur) hrifu mig ekki upp úr gúmmí- hönskunum í fyrsta skiptið sem ég heyrði hana sem undirleik við uppvaskið. Ekki þeirra besta, var niðurstaðan. Mörgum upp- vöskum síðar hafa Talking Heads sannfært mig um að einfald- leikinn er ekki síður flókinn en það sem virðist meira um sig, þ.e.a.s. þegar hæft fólk á í hlut. Little Creatures er líklega að- gengilegasta plata Talking Heads. Músikin er taktföst og hljóðfæraleikur mjög markviss og útsetningar vel út hugsaðar, jafnvel sparlegar, og yfir þessu öllu er þessi sérstaki stíll - eða stæll - sem Hin talandi höfuð hafa tamið sér; má eiginlega segja að þau gætu ekki hafa valið sér nafn sem á verr við músikina sem þau flytja. Þau fara sko ekki með neitt innantómt fleipur, eins og talandi höfuð í umræðuþáttum gera oftar en ekki. A Vinsældalistar Þjóðviljans FellaheHir 1. I’malover- Andrea 2. Part time lover - Stevie Wonder 3. Dancing in the street - Bowie/Jagger 4. You can win if you want - Modern Talking 5. Peeping Tom - Rockwell 6. Slave to love - Brian Ferry 7. Body and soul - Mai Tai 8. Endless roads -Time Bandits 9. Pop life - Prince 10. You’re in my heart - Modern Talking Grammiö 1. Little creatures -Talking Heads 2. Kona - Bubbi Morthens 3. The eternal traveller - Niels Henning 0rsted-Pedersen 4. Army arrangements - Fela Kuti 5. Naughty boys - Yellow Magic Orchestra 6. Watto Sitta - Mandingo 7. Reconstruction of the fables - REM 8. Don’t forget that beat - Fats Comet 9. Brothers in arms - Dire Straits 10. Live in Amsterdam - Miles Davis Rás 2 ( 1) 1. Dancing in the street - Bowie & Jagger ( 3) 2. Part time lover - Stevie Wonder ( 2) 3. Rock me Amadeus - Falco ( 7) 4. Unkiss that kiss - Stephen A.J. Duffy (22) 5. Maria Magdalena - Sara ( 5) 6. You can win ifyou want - Modern Talking ( 4) 7. Into the groove - Madonna ( 6) 8. Shake the disease - Depeche Mode (13) 9. Pop life - Prince (21) 10. Cherish - Kool and the Gang 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. september 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.