Þjóðviljinn - 19.10.1985, Side 4

Þjóðviljinn - 19.10.1985, Side 4
LEIÐARI Borgarstjóm gegn bættri þjónustu Það er fróðlegt að sjá, hvernig meirihluti Sjálf- stæðisflokksins eyðileggur hvert málið á fætur öðru sem snertir aukna og bætta þjónustu við borgarbúa. Á borgarstjórnarfundinum í fyrra- kvöld kom þetta einkar vel í Ijós. Þar voru meðal annars til umræðu tillögur um að komið yrði upp svokölluðum öldum, eða hraðahindrunum, við skóla í borginni. Erlendis er sýnt með ótvíræðum dæmum að slíkar öldur stórlækka umferðarhraða og slysum fækkar að sama skapi. Öldur sem þessar yrðu því veruleg öryggisbót, og auvitað er það hagsmunamál allra foreldra og barna að draga sem allara mest úr slysahættu. Að óreyndu myndu flestir gera ráð fyrir því, að borgarstjórn myndi taka fagn- andi svona tillögum. Allir stjórnarandstöðu- flokkarnir í borgarstjórn stóðu saman að tillög- unum um öldurnar. En þrátt fyrir svipuð tillaga hefði verið samþykkt í umferðarnefnd Reykja- víkur, þá greip meirihluti Sjálfstæðisflokksins til þess óyndisúrræðis að stinga þessa þarfatil- lögu stjórnarandstöðuflokkanna svefnþorni með því að senda hana til borgarráðs. En það jafngildir í rauninni dauðadómi. Þetta er þeim mun furðulegra sem vitað er að víða hafa foreldrar safnað undirskriftum til að hvetja borgaryfirvöld til að setja upp hraða- hindrunaröldur til að draga úr slýshættu. Fyrir þrýsting stjórnarandstöðunnar fyrst og fremst var á sínum tíma skipuð sérstök starfsnefnd til að huga að þörfinni á öldunum. í júlí árið 1984 lagði hún til við borgaryfirvöld að 83 öldur yrðu byggðar. í dag hafa þau eigi að síður ekki sam- þykkt nema tæpan fjórðung þeirra. Staðreyndin er sú, að af óskiljanlegum ástæðum eru borgaryfirvöld á móti hraðahindr- unum af þessu tæi, þrátt fyrir ótvíræða kosti þeirra við að draga úr slýsum. Þau skirrast ekki við að nota leiðitama borgarstarfsmenn til að eyða málinu með skrifræði og pappírsflóði og dæmi væri hægt að taka því til sönnunar. Sá grunur læðist ósjálfrátt að fólki, að andstaða Sjálfstæðisflokksins við þessar ágætu hug- myndir til slysafækkunar stafi af því einu, að það voru stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn sem lögðu þær fram. Annaðdæmi um hvernig meirihluti Sjálfstæð- ismanna neitar að koma til móts við óskir um bætta þjónustu var sú ávkörðun þeirra að fella tillögu Alþýðubandalagsins um að gefa fram- haldsskólanemum kost á að kaupa afsláttarkort hjá SVR. Fyrir fundinn höfðu þá fulltrúar fram- haldsskólanema í Reykjavík afhent forseta borgarstjórnar hátt á annað þúsund áskoranir um að tillagan yrði samþykkt. Það er í annað sinn sem slíkar áskoranir eru afhentar íhaldinu. Rökin fyrir því að skólafólk fái kost á slíkum afsláttarkortum eru fjölmörg. í ályktun frá stjórn Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík er þannig bent á, að: • Námsmenn eru einn fjölmennasti hópurinn sem ferðast með SVR enda eiga þeir sjaldnast möguleika á öðrum farkostum. • Námsmenn hafa yfirleitt ekki tök á að vinna nema lítinn hluta úr ári, og hafa því lítið fé um- leikis. • Jafnframt spara samgöngur á borð við SVR þjóðarbúinu stórfé og því eðlilegt að við- skiptavinir þeirra fái að njóta þess. Við þessu skelltu auðvitað borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eyrum skolla. Þeir eru ekk- ert að hugsa um fólkið í borginni. Þeirra ær og kýr eru að fella niður gatnagerðargjöld fyrir stór- ibísana og annað í þeim dúr. Málefni einsog hraðahindrunaröldur til að draga úr slysahættu við skóla eða gefa framhaldsskólanemum kost á afslætti í strætó eru mál sem íhaldið gefur lítið fyrir. Þess vegna þarf að fella það í kosningun- um í vor. -ÖS DJQÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Rltstjórar: Árni Bergman, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fróttastjórl: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla* son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór- unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndir: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlft: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Simvarsla: Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Ágústa Þórisdóttir, Ólöf Húnfjörð. Bflatjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrif8tofuatjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Utbreiðalustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglysingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Augiýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Utkeyrsla, afgreiðsla, auglysingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prontsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 35 kr. Sunnudagsblað: 40 kr. Áskrift á mánuði: 400 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVtLJlNN' Uugardagur 1«. október 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.