Þjóðviljinn - 19.10.1985, Side 6

Þjóðviljinn - 19.10.1985, Side 6
ÍÞRÓTTiR Valsmenn 1. nóvember Fjarvera Bryan Robson veikir vænt- anlega lið Man.Utd. Grindavík Nýtt hús í notkun Grindvíkingar taka í notkun nýtt íþróttahús nú um helgina. Á morgun, sunnudag, mætast þar lið Grindavík- ur og Reynis Sandgerði í 1. deild karla í körfuknattleik og hefst lcikurinn kl. 14. Þetta er stór áfangi í íþróttamálum Grindvíkinga og ekki síst mikil bylt- ing fyrir körfuknattleiksmenn staðar- ins sem náð hafa góðum árangri síð- ustu misserin þrátt fyrir aðstöðuleysi heima fyrir. Grindavík á m.a. tvo ís- landsmeistara í yngri flokkum og leik- menn í yngri landsliðum íslands. -VS Kreditkort sl. hafa ákveðið að veita Badmintonsambandi Islands fjárhagsstuðning á þessu starfsári og auk þess gefur Kreditkort sf. landsliði fslands í badminton búninga. Á myndinni þakkar Vildís K. Guðmundsson, formaður BSÍ, markaðsstjóra Kreditkorta, Grétari Har- aldssyni, stuðninginn. Á myndinni eru einnig Sigríður M. Jónsdóttir og Sigfús Ægir Árnason úr stjórn BSÍ. s Urvalsdeildin Njarðvík á toppinn Höfðu ÍR í hendi sér og unnu með 18 stigum íslandsmeistarar Njarðvíkur tóku á ný forystuna í úrvalsdeild- inni í gærkvöldi þegar þeir sigr- uðu ÍR nokkuð örugglega á sínum heimavelli. Njarðvíkingar höfðu leikinn alltaf í hendi sér og unnu 102-84. ÍR ógnaði á kafla í byrjun seinni hálfleiks og náði þá eins stigs forystu, mest fyrir kæruleysi hjá Njarðvíkingum og að Helga Rafnssyni, lykilmanninum í vörninni, var skipt útaf. ísak tók mikla rispu og kom UMFN yfir á ný og eftir það var aldrei spurning um úrslit. Man. Uíd-Liverpool Robson ekki með Enski landsliðsfyrirliðinn Bry- an Robson leikur ekki með Man- chester United í toppleik 1. deildar ensku knattspyrnunnar gegn Liverpool í dag. Robson meiddist í landsleik Englendinga og Tyrkja á mið- vikudagskvöldið, tognaði þá illa og haltraði af leikvelli. Svo gæti farið að hann missti líka af leik Manchester Utd við Chelsea á útivelli næsta laugardag. Man- chester Utd er með 34 stig í 1. deild en Liverpool og Chelsea koma næst með 24 stig hvort. - VS/Reuter ísak var allt í öllu hjá Njarðvík og lék mjög vel. Helgi var ó- hemju sterkur í vörninni og hirti mikið af fráköstum. Valur sýndi ekkert sérstakt en hitti ágætlega og skilaði sínum skammti af stig- um. Ragnar Torfason var besti Njarðvík 18. okt. UMFN-ÍR 102-84 (39-33) 9-6, 21-9, 39-33, 44-45, 66-56, 80-65, 102-82, 102-84. Stig UMFN: Valur Ingimundarson 24, Isak Tómasson 23, Helgi Rafnsson 16, Árni Lárusson 15, Ellert Magnús- son 9, Kristinn Einarsson 8, Jóhannes Kristbjörnsson 7. Stig IR: Ragnar Torfason 26, Karl Guolaugsson 13, Björn Steffensen 11, Jóhannes Sveinsson 7, Hjörtur Odds- son 8, Bragi Reynisson 6, Jón Jöru- ndsson 5, Jón Orn Guömundsson 4, Benedikt Ingþórsson 2, Hafþór Ósk- arsson 2. Dómarar: Ómar Scheving, Bergur Steingrímsson - góðir. Maður leiksins: Isak Tómasson. UMFN. Janus Guðlaugsson landsliðs- maður úr FH gerist að öllum lík- indum ieikmaður með svissneska 2. deildarfélaginu Lugano. Liðið er á toppi 2. deildarinnar í Sviss og hefur löngum leikið í 1. deild. Janus lék í nokkur ár með vestur- þýska 2. deildarfélaginu Fortuna Köln en kom heim sl. vor og lék maður ÍR-inga, lék mjög vel í vöm og sókn. Jóhannes Sveins- son stóð sig einnig ágætlega, Annars voru ÍR-ingar ekki sann- færandi og þeir byrjuðu leikinn af mikilli hörku sem síðan kostaði þá villuvandræði þegar á leið. -SÓM/Suðurnesjum Staðan í úrvalsdelldlnnl í körfuknattlelk: UMFN..........3 3 0 247:216 6 (BK...........4 3 1 303:309 6 Haukar........2 1 1 139:131 2 Valur.........3 1 2 214:210 2 ÍR............4 1 3 306:324 2 KR............4 1 3 289:308 2 Stigahæstir: RagnarTorfason, |R...................83 BirgirMikaelsson, KR.................82 Valur Ingimundarson, UMFN............80 Jón Kr. Gíslason, IBK................77 Guðjón Skúlason, IBK................ 74 Valur og Haukar leika í Seljaskóla á sunnudagaskvöld kl. 20. með 'FH í síðari umferð 1. deildarkeppninnar. Janus verður þriðji íslenski landsliðsmaðurinn til að leika í Sviss í vetur og sá fjórði á árinu. Teitur Þórðarson lék þar sl. vetur og þeir Sigurður Grétarsson og Guðmundur Þor- björnsson leika með liðum í 1. deildinni. - VS Knattspyrna Janus til Sviss! Valsmenn „léttir í lund“ halda hið árlega Herrakvöld sitt að Hót- el Loftleiðum, Víkingasal, föstu- daginn 1. nóvember. Salurinn verður opnaður kl. 19 og borð- hald hefst kl. 20. Eins og undanfarin tvö ár munu skemmtiatriði vera í hönd- um valinkunnra Valsmanna. Ákveðið er að ágóða þessa Herrakvöids verði varið til end- urbyggingar á gamla íbúðarhús- inu á Hlíðarenda. Miðar verða til sölu í íþróttahúsi Vais á Hlíðar- enda, sími 11134. Einnig verður tekið á móti borðapöntunum á sama stað. Fimleikar Agætt í Belgíu Hanna Lóa Friðjónsdóttir og Hlín Bjarnadóttir kepptu á al- þjóðlegu fimleikamóti i Antwerpen í Belgíu fyrir skömmu. Hlín varð í 14. sæti og Hanna Lóa í 17. af 25 keppendum í áhaldafimleikum. Ágætur ár- angur hjá báðum tveimur. Fimleikar Ársþingið Ársþing Fimleikasambands Is- lands verður haldið dagana 15.- 16. nóvember í hinum nýju og glæsilegu húsakynnum Iþrótta- sambands íslands í Laugardal. Dagskrá verður samkvæmt lögum. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.