Þjóðviljinn - 31.10.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.10.1985, Blaðsíða 1
31 251. tölublað 50. örgangur október 1985 fimmtu- dagur DJÚÐVIUINN BILAR BUSYSLAN MANNLIF HEIMURINN íslandssiglingar Einokun aðsigi? Eimskipafélagið á íþreifingum um kaup á Islandsdeild Hafskipa. Kaupverð 5-600 miljónir. Skiptar skoðanir meðal eigenda Hafskipa. Utvegsbanki og Seðlabanki þrýsta á um kaupin. Tíuprósentfragthœkkun ískjóli einokunargœfi Eimskip kaupverðið á tveimur árum Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskipafélagsins hefur af hálfu félagsins stýrt óformlegum viðræðum sem undanfarið hafa átt sér stað við Hafskip, um kaup Eimskips á íslandsdeild Haf- skipa. En þarmeð myndi Eim- skipafélagið nánast ná einokun á íslandssiglingum. Kaupverðið hefur verið nefnt í kringum 5-600 miljónir króna. Með því að hækka fragtgjöld um 5 til 10 prós- ent er talið líklegt að Eimskip gætu í skjóli einokunar náð fjár- útlátum sínum til baka á tveiinur árum. Útvegsbankinn, sem Haf- skip skulda stórfé án nægilegra veða, þrýstir mjög á um að af kaupunum verði. Mjög skiptar skoðanir eru á samningaviðræð- unum meðal eigenda Hafskipa, sem óttast einokunarstöðu Eimskipafélagsins. Ragnar Kjart- ansson, sUórnarformaður Haf- skipa, og Ólafur Ólafsson útgerð- armaður hafa verið í forsvari í þreifingunum við Eimskip. Heimildir Þjóðviljans herma, að Seðlabankinn þrýsti mjög á að Útvegsbankinn komi viðskiptum sínum við Hafskip „á hreint borð“ eins og einn viðmælandi blaðsins orðaði það í gær. En fyrir Seðlabankanum vakir að sameina Útvegsbankann öðrum banka, en það er ekki hægt fyrr en vafasamar skuldir, einsog Hafskip eiga við bankann, eru úr sögunni. Dalatangi Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans eru uppi mjög skiptar skoðanir innan Hafskips á vænt- anlegri sölu til Eimskipa. Margir af stærstu eigendum Hafskipa eru henni algerlega mótfallnir, en áhrifamenn í stjórn Hafskipa á borð við stjórnarformanninn Ragnar Kjartansson leggja kapp á að samningar takist. Hafskip var upphaflega stofnað til að sporna gegn einokunarveldi Eim- skipa, og margir óttast að sú ein- okunarstefna, sem kaupin á ís- landsdeild Hafskipa færðu fé- laginu, myndi leiða til hækkunar á fragtgjöldum. íslandsdeild Hafskipa veltir nú miljarði og Eimskip veltir 2,4 miljörðum. Yrði af kaupunum myndi tíu prósent hækkun gefa Eimskipum aukatekjur uppá 700 miljónir á tveimur árum, eða meir en nemur kaupverðinu. Margir telja hins vegar ólíklegt að Eimskip myndu hækka fragt svo mikið. Af hálfu Eimskipa hefur verið sett sem skilyrði að Hafskip færu aldrei aftur í íslandssiglingar. Slík einokunarstaða ásamt mjög sterkri stöðu Eimskipa í Flug- leiðum myndi gefa Eimskipa- valdinu allt að því einokunarað- stöðu á öllum samgöngum til landsins. _ós Bandaríski herinn á Miðnesheiði minnti á veru sína í gærmorgun. Ögrun segir sovéska sendiráðið. Myndin sýnir F-15 orrustuþotur Kanans en til hægri eru utanríkisráðherrarnir á fundi sínum í Ráðherrabústaðnum skömmu áður en för þess sovéska var teppt. Heimsvaldaátök Gamli vitinn gerður upp Verið er nú að endurbyggja gamla vitann á Dalatanga, sem Óttó Wathne lét byggja og gaf íslendingum fyrir 90 árum. Ljósabúnaðurinn í Dalatangavit- anum mun hafa verið fluttur í vit- ann á Brimnesi og farið þar for- görðum í brimróti. Verður hann varla heimtur úr þeirri helju. Sjá bls. 7. Herþotur í vegi Sjeverdnadze Sovéska sendiráðið: Ögrunfrá hendi bandaríska hersins. Flugmálastjóri: Algjör tilviljun. Enginn kvartað til mín. Ráðuneytið: Þoturnar voru að verða bensínlausar leg afskipd bandaríska hersins Flugmálastjóri á Keflavíkur- flugvelli segir að alger tilviljun hafi ráðið því að flugvél sú, er fiutti Sjeverdnadze utanríkisráð- herra Sovétríkjanna brott af landinu í gærmorgun, varð að bíða eftir flugtaksheimild í 10 mínútur á flugbrautinni, á meðan 6 bandarískar herþotur komu inn til lendingar úr æfingarflugi og óku fram fyrir vél sovéska ráð- herrans. „Okkur sem vinnum hér finnst þetta ekki til að gera veður útaf, en þetta virðist vera orðið tölu- vert mál. Reglan er alveg skýr, vél sem er á flugi á ávallt réttinn gagnvart þeirri sem er á jörðu niðri. Ég spurði sérstaklega eftir því hvort flugstjórinn á vél ráð- herrans hefði kvartað vegna þess- arar seinkunar en svo var ekki og mér hafa ekki borist neinar kvart- anir“, sagði Pétur Guðmundsson flugmálstjóri í samtali við Þjóð- viljann í gær. Fulltrúi sovéska sendiráðsins lýsti því hins vegar yfir í gær að hér hefði verið um að ræða frek- Nauðungaruppboðsskipin Forgangur heimamanna afnuminn? Allt bendir tilþess að ekki verðistaðið viðþau loforð sjávarútvegsráðherra aðþau byggðarlög sem tapafiskiskipum sínum á nauðungaruppboðum vegna dollaralánafái forgangsrétt á að kaupa þau aftur. Kolbeinsey á uppboð ídag. Þjóðviljinn hefur fyrir því heimildir sem hann telur ör- uggar að ekki verði staðið við það loforð sjávarútvegsráðherra frá í fyrra að þau byggðarlög, sem missa fiskiskip sín á nauðungar- uppboðum vegna dollaralána, hafi forgang við að kaupa þau aft- ur. Það er Fiskveiðasjóður, eða réttara sagt stjórn hans, sem hef- ur ákvörðunarvald í þessum mál- um. Húsavíkurtogarinn Kolbeins- ey verður boðinn upp í dag á Húsavík og má búast við að tog- arinn verði sleginn Fiskveiða- sjóði. Er þá alls óvíst hvort Hús- víkingum tekst að fá skipið til sín aftur. Heimildir blaðsins herma að Fiskveiðasjóður ætli að selja skipin þeim aðilum sem fjársterk- astir eru og hafa sterkastar trygg- ingar. Þetta mun aftur á móti þýða það að sum sjávarpláss eins og til að mynda Ólafsvík, Grund- arfjörður og Húsavík og sjálfsagt fleiri leggjast í rúst í atvinnulegu tilliti. Þjóðviljafólk var á ferð á Húsavík og var fiskverkunarfólk þar m.a. spurt álits á hvað tæki við ef Kolbeinseyin yrði seld frá staðnum. -S.dór Sjá bls. 2. garð gests íslenska ríkisins. Það sem flugmálastjóri kallar tilviljun er því orðið hápólitískt mál milli stórveldanna enda telja margir sem Þjóðviljinn ræddi við í gær að með þessari uppákomu á Kefla- víkurflugvelli hafi átt að sýna sov- éska utanríkisráðherranum hverjir það eru sem hafa undir- tökin hérlendis. Utanríkisráðu- neytið gaf í gær út þá yfirlýsingu að bandarísku herþoturnar hefðu skyndilega orðið bensínlausar. Starfsmaður flugumferðarstjórn- ar minntist hins vegar ekki á þá skýringu í samtali við blaðamann Þjóðviljans. Sjeverdnadze átti stuttan fund með Geir Hallgrímssyni og Hall- dóri Ásgrímssyni í gærmorgun í Ráðherrabústaðnum. Mál Tarkovski-fjölskyldunnar bar þar á góma en sovéski ráðher- rann vísaði á sendiráð sovét- manna hérlendis. Á örstuttum blaðamannafundi bar Sjeverdna- dze fram árnaðaróskir til íslend- inga sem hann sagði iðjusama þjóð er ætti sér merka sögu. -*g-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.