Þjóðviljinn - 31.10.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 31.10.1985, Blaðsíða 16
Citroen Axel ávgeið'86 gieiðast mánaðarlega Isumar kynntum við hjá Globus nýjan bíl á óvenju hagstæðu verði: '86 árgerð af Citroén Axel fyrir aðeins 280.000,- kr. Nú bætum við um betur og bjóðum þér að eignast Axel með því að borga á borðið30% þeirrar upphæðar og eftirstöðvarnar með jöfnum mánaðargreiðslum á skuldabréfi í alit að 24 mánuði. Skuldabréfið er verðtryggt en vaxta- laust. Axel er vel búinn aukahlutum, svo sem hlífðarpönnu undir vélinni, læstu bensínloki og öryggisbelt- um t aftursætum. Einnig er innifalið í tilboðinu ryðvörn, nýskráningargjald og bifreiðaskattur, skoðun eftir 1.000 km akstur og stútfullur bensíntankur. Greiðsludæmi: Staðgreiðsluverð miðað við gengi 14.10............... kr. 280.000,— 30% útborgun ásamt stimpilgjaldi, þinglesningu og umsýslu........................... kr. 89.300,— Eftirstöðvar lánaðar á skuldabréfi með mánaðarl. greiðslum í 24 mánuði, verðtryggt skv. iánskjaravísitölu en vaxtalaust................... kr. 239.512,— Mánaðargreiðsla .......................................... kr. 9.980,— í eftirstöðvunum eru reiknaðar kr. 1.812,- í fjármagnskostnað á mánuði í 2 ár. Citroén Axel er óvenju sterkbyggður smábíll. Hann er framhjóladrifinn, ótrúlega rúmgóður og búinn sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum sem gefur hefðbundinni Citroén vökvafjöðrun lítið eftir. Pað er hátt undir Axel og hann er hreint frábær á mölinni. Einnig hefur Axel diskahemla á öllum hjólum sem er mjög óvenjulegt fyrir bíl í þessum stærðarflokki. Sætin bera hönnuðum Citroén bílanna fagurt vitni - en Frakkarnir eru þekktir fyrir að koma Ijúfustu stofuþægindum fyrir í bílunum sínum. Pú ættirað líta innog reynsluaka, þá veistu hvað við eigum við. G/obusf SÍMI81555 CITROÉN * BÍLAR Á eftir að koma eitthvert sambland af þessum tveimur í framtíðinni? Evrópa Fiat og Ford í eina sæng Fiat og dótturfyrirtæki Ford f E vrópu ræða sameiningu fyrirtækjanna á ýmsum sviðum Forstjóri Fiat verksmiðjanna, Umberto Agnelli, sagði nýlega að viðræður hefðu staðið yfir í nokk- urn tíma við dótturfyrirtæki Ford í Evrópu og hann byggist við að þær viðræður leiddu til einhvers konar samvinnu milli þessara tveggja fyrirtækja. Agnelli sagði þetta á ráðstefnu sem haldin var á sama tíma og Alþjóða bílasýningin í Frankfurt í september. „Viðræður hafa leitt í ljós,” sagði Agnelli, „að þessi tvö fyrir- tæki stefna að sömu hlutum og það er nú undir stjórnum fyrir- tækjanna komið hvort eitthvað verður úr þessum viðræðum.” Viðræðurnar hafa staðið yfir síð- an í vor. Agnelli sagði í ræðu sinni að evrópsk fyrirtæki myndu eiga í erfiðleikum ef ekki tækist að koma á samstarfi í einhverri mynd. Hann hvatti ríkisstjórnir Evrópu til að losa um lög sem hindra hringamyndun. Hann sagðist ennfremur telja að fram- tíð bílaiðnaðarins væri falin í samstarfi stóru fyrirtækjanna varðandi framleiðslu, hönnun, markaðssetningu og varahluti. Þokuljós Halogen m/perum. Verð aðeins kr. 1.290,- parið Póstsendum BILAVÖRUR SF. SUÐURLANOSBRAUT 12, RViK. SIMAR 32210 - 38365.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.