Þjóðviljinn - 31.10.1985, Blaðsíða 12
BÍLAR
Önnur öld
bílsins
Þrátt fyrirýmsar tækninýjungar er
vegurinn framundan holótturfyrir
aldargamlan bílinn
Bíllinn er um þessar mundir
u.þ.b. hundrað ára gamall og í
Evrópu hefur verið haldið upp á
það afmæli með viðhöfn. En í og
með hefur verið deilt um það hver
það var nákvæmlega sem fann
bílinn upp og hvenær. Frakkar
fullyrða að fyrsti bíllinn hafi farið
út á vegina í Frakklandi, á síðasta
ári hafi verið öld síðan. Vestur-
Þjóðverjar eru hins vegar harðir á
því að aldarafmælið sé á næsta
ári, þá sé öld síðan einkaleyfi var
gefið út fyrir undanfara Benz, bíl
Karl Benz, árið 1886. Þeir sem
hafa ekki getað sýnt fram á að
fyrsti bíllinn sé þeirra hafa bara
farið milliveginn og halda upp á
afmælið í ár.
Bílaframleiðendur um víða
veröld hafa ekki af þessu neinar
verulegar áhyggjur, svo lengi sem
umferðin er stöðug í sýningar-
sölunum.
Gæsa- og rjúpnaskyttur. Hér er hann kominn, veiðibíll ársins,
Flakkarinn, Trabant 601.
SUZUKI
Við kynnum nýjan og stærri
Suzuki Swift, 5 dyra og
fáanlegan með sjálfskiptingu.
Komið og kynnið ykkur
sparneytnasta bíl sem fluttur er til
(slands, og nú á verði sem
keppinautarnir öfunda okkur af.
Eyðsla frá 3,8 Itr. pr. 100 km.
(sparakstur BÍKR).
Verð frá kr. 328.000
(gengi 20/10 85).
(3d. GL)
SUZUKI
SVEINN EGILSSONHF.
Skeifunni 17. Sími 685100
Framþróun
Frá sjónarhóli neytandans er
útlitið bjart: á undanförnum 12
mánuðum hefur komið fram mik-
ill fjöldi nýrra bíla þar sem sjá má
geysilega framþróun á tæknilega
sviðinu. Úrval af fjórhjóladrifbfl-
um eykst stöðugt, eins er með
rafmagnsstýringu á bremsum.
Tölvur eru í auknum mæli notað-
ar í stjórntækjum bifreiðar, gír-
skiptingu og hemlunarbúnaði.
Miklar framfarir hafa orðið í
tengslum við öryggishlið bflanna,
sérstaklega vegna tilkomu tölv-
unnar við hönnun og prófun á
ýmsum nýjungum. Meðal þeirra
nýjunga sem búast má við í
tengslum við tölvubyltinguna er
n.k. „anti-árekstursradar“. Við-
gerðir og bílaþjónusta öll fer
minnkandi vegna aukinnar endi-
ngar bílanna. BMW ætlar t.d. að
kynna nýja bifreið á næsta ári
sem þeir segja að muni þurfa að-
eins Ví þess tíma sem venjulega
fer í viðhald. Og Audi hefur til-
kynnt að bílar sem þeir setja í
framleiðslu á næsta ári muni geta
ekið 32.000 km án allsherjar-
skoðunar. Má kannski segja að
við lok þessa áratugar verði litlu
verkstæðin í útrýmingarhættu?
Tækni-
kapphlaup
Hraðinn á þessum nýjungum
þeirra er slíkur að talið er að eftir
aðeins fimm ár megi hágæðabíl-
aframleiðendur á Vesturlöndum
fara að vara sig ef þeir ætla ekki
að verða á eftir í tæknikapph-
laupinu. Sérfræðingar í bflaiðn-
aðinum halda því fram að árið
1988 verði markaðshlutdeild
bandarískra bflaframleiðenda á
eigin heimamarkaði fallin úr 75%
í 60%, sem er ansi mikið. Á með-
an þessu fer fram fylgjast
„innfæddir“ evrópskir bflafram-
leiðendur með japönskum og
bandarískum kollegum sínum og
hafa áhyggjur af: Það samninga-
makk sem þar fer fram, sjá þeir
sem ögrun við sig.
Og þessi vefur alþjóðlegra
samskipta er orðinn svo flókinn
að Ford í Evrópu, sem ætíð hefur
litið á sig sem ábyrgan evrópskan
framleiðanda (þrátt fyrir sam-
skipti sín við Mazda) er kominn
langt í viðræðum við Fiat um ein-
hvers konar bræðing þeirra á
milli. Ef þessi tvö fyrirtæki sem
eru leiðandi í Evrópu hvað varð-
ar sölu á fjölda seldra bifreiða, ná
saman, má búast við að það hafi
alvarlegar afleiðingar fyrir aðra
framleiðendur.
Það eru margir vegartálmar
framundan, ekki bara fyrir bíla-
framleiðendur heldur einnig fyrir
ríkisstjórnir um allan heim. Það
virðist því sem það sé holóttur
vegur á annarri öld bflsins.
w&semammssm
mmmmmmmmmmommmsíæmmmMMmmmmmsssaaemmm
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN