Þjóðviljinn - 31.10.1985, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 31.10.1985, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR Júdó Tveir verðlauna- hafar frá EM Norðurlandamótið hér á laugardag Tveir verðlaunahafar frá síð- asta Evrópumeistaramóti verða meðal keppenda á Norðurlanda- móti kvenna í júdó sem fram fer í íþróttahúsi Kennaraháskólans um næstu helgi. Tipi Kantajárvi frá Svíþjóð hlaut silfurverðlaun í -52 kg flokki á Evrópumeistaramótinu sl. vor og landa hennar. Elisabet Karlsson, hlaut bronsverðlaun í -66 kg flokki. Þetta segir sitt um styrkleika mótsins, en samhliða er haldið Norðurlandamót karla yngri en 21 árs. Keppendur verða alls 65, frá Danmörku koma 8, 15 frá Finnlandi, 12 frá Noregi og 16 frá Svíþjóð, en íslensku keppend- urnir verða 14. Þetta er stærsta júdómót sem haldið hefur verið hérlendis síðan Norðurlandamót karla fór hér fram fyrir þremur árum. -VS •/ HM Sovétmenn sextándu Sigruðu Noreg naumlega ísnjó og kulda. Létt hjá Frökkum Marteinn Geirsson. Fylkir Enska knattspyrnan Tottenham sneri blaðinu við Tottenham tókst að snúa blað- inu við gegn 4. deildarliðinu Ori- ent þegar Lundúnafélögin léku frestaðan leik sinn úr 2. umferð deildabikarsins í gærkvöldi. Ori- ent hafði unnið fyrri leikinn mjög óvænt, 2:0, en Tottenham náði að sigra 4:0 á heimavelli sínum White Hart Lane, og tryggja sér sæti í 3. umferð. Fjórir leikir úr þriðju umferð fóru fram í gærkvöldi og urðu úr- slit þessi: Derby County-Nottm.Forest.....1:2 Leeds-Aston Villa.............0:3 Manch.City-Arsenal............1:2 Oxford-Newcastle..............3:1 Engin óvænt úrslit þarna og Nottingham Forest, Aston Villa, Arsenal og Oxford eru því komin í 4. umferð ásamt Ipswich, Li- verpool, Norwich, Manchester United, Portsmouth, Everton, QPR og Swindon. V. Pýskaland í skosku úrvalsdeildinni tapaði Aberdeen óvænt 1:0 fyrir Hearts í Edinborg og Clydebank tapaði 2:4 fyrir Hibernian. - VS/Reuter Marteinn ráðinn Marteinn Geirsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, hefur verið ráðinn þjáifari 3. deildarliðs Fylkis fyrir næsta keppnistímabil. Marteinn hefur þjálfað Víði úr Garði sl. tvö ár og náð frábærum árangri. Hann kom Garðsliðinu uppí 1. deild og náði síðan að halda uppi sl. sumar þvert ofaní allar spár. - VS Sovétmenn urðu í gær 16. þjóð- in til að tryggja sér sæti í loka- keppni HM í knattspyrnu er þeir sigruðu Norðmenn 1:0 í Moskvu. Þetta var síðasti leikur þeirra í 6. riðli og þeir máttu virkilega hafa fyrir sigrinum. Leikið var á snævi þöktum velli, vindur gnauðaði og frostið beit og Norðmenn voru fljótari að venjast aðstæðunum. Peir fengu nokkur ágæt færi í fyrri hálfleik en Renat Dasayev mark- vörður Sovétmanna bjargaði lið- inu sínu frá áföllum. Sovétmenn náðu svo betri tökum á leiknum eftir hlé og Georgy Kondratyev skoraði markið dýrmæta á 58. mínútu. Lokastaðan í 6. riðli: Sovétríkin.........8 4 2 2 13:8 10 Danmörk............7 4 12 13:5 9 Sviss..............7 2 3 2 4:9 7 Irland.............7 2 2 3 4:6 6 Noregur............7 1 2 4 3:9 4 Sviss-Noregur og írland- Danmörk fara fram 13. nóvem- Úrvalsdeildin Loksins heimasigur Haukar unnu ÍR í jöfnum leik í Hafnarfirði Nýtt nafn ídag Vestur-þýska knattspyrnufé- lagið Kaiserslautern breytir um nafn á leikvangi sínum í dag. Hann hefur til þessa heitið Betz- enberg en upp frá þessu verður hann nefndur Fritz-Walter- Stadion. Ástæðan er sú að í dag er einn frægasti knattspyrnumaður Vestur-Þjóðverja, Fritz Walter, 65 ára. Walter var fyrirliði Kais- erslautern sem varð meistari þrjú ár í röð, 1951-53, og árið 1954 var hann fyrirliði vestur-þýska lands- liðsins sem varð heimsmeistari. - VS-Reuter Bílslys Það hlaut að koma að því að Haukar ynnu heimaleik i úrvals- deildinni í körfuknattleik. Mót- herjarnir í gærkvöldi voru botnlið ÍR sem veitti kröftuga mótspyrnu og játaði ekki ósigur fyrr en Pálmar Sigurðsson kórón- aði frábæra frammistöu sína með 3 stiga körfu og flautað var til leiksloka. Haukar unnu 85:76 og þær tölur segja lítið - það var mesti munur á liðunum í leiknum. Haukar höfðu undirtökin lengst af en ÍR náði samt að kom- ast yfir af og til. Haukar gátu alltaf bætt við sig og náð forystu á ný og í heild var sigur þeirra sann- gjarn. En Haukarnir þurfa að leika mun betur ef þeir ætla sér stóra hluti í vetur. Stjörnuleikur Pálm- ars og besti sóknarleikur ívars Websters til þessa í vetur komu í veg fyrir slæmt tap - flestir aðrir léku langt undir getu. ÍR-ingar eru með skemmtilega bakverði sem bæta upp skortinn á hæð í liðinu. Karl Guðlaugsson átti mjög góðan leik, var geysi- lega hreyfanlegur og hittinn, Jón Örn stóð fyrir sínu og Hjörtur Oddsson gerði góða hluti í fyrri hálfleik. Ragnar var drjúgur undir körfunni. ÍR getur gert öllum liðum skráveifu í vetur en það verður greinilega erfið bar- átta hjá liðinu að halda sér í deildinni samt sem áður. - VS Hafnarfjörður 30. okt. Haukar-ÍR 85-76 (44-42) 12-13,26-18, 36-36,40-42,44-42, 51 - 53,57-53, 57-58,69-63, 73-72, 75-74, 79-76, 85-76. Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 39, fvar Webster 24, Henning Hennlngs- son 9, Ólafur Rafnsson 7, Viðar Vign- isson 2, fvar Ásgrímsson 2, Eyþór Árnason 2. Stig IR: Karl Guðlaugsson 25, Ragnar Torfason 18, Jón Örn Stefánsson 12, Hjörtur Oddsson 8, Björn Steffensen 6, Jóhannes Sveinsson 5, Vignir Hilm- arsson 2. Dómarar: Kristbjörn Albertsson og Kristinn Albertsson - góðir. Maður lelksins: Pálmar Sigurðsson, Haukum. ber. Danir eru öruggir með ann- að sætið. Sex mörk Frakka Frakkar styrktu stöðu sína í 4. riðli með 6:0 sigri á Luxemburg í París. Dominique Rocheteau skoraði 3 markanna og þeir Jose Toure, Alain Giresse og Luis Fernandez gerður eitt hver. Stað- an í halfleik var 4:0 og Frakkar höfðu mikla yfirburði allan tím- ann. Michel Platini náði ekki að skora fyrr en of seint, flautað var til leiksloka á meðan knötturinn var á leið f netið eftir að hann hafði lyft boltanum snyrtilega yfir markvörð Luxemburgar! Staðan í 4. riðli: Búlgaría..........7 5 1 1 12:3 11 Frakkland.........7 4 1 3 13:4 9 A.Þýskaland.......7 4 0 3 14:8 8 Júgóslavía........7 3 2 2 7:6 8 Luxemburg.........8 0 0 8 2:27 0 Lokaleikirnir fara fram 16. nóvember. Þá mætast Frakkland- Júgóslavía og A.Þýskaland- Búlgaría og í ljós kemur hvort Frakkland, A.Þýskaland eða Júgóslavía fylgir Búlgaríu í loka- keppnina í Mexíkó. Albanía og Grikkland gerðu jafntefli, 1:1, í 1. riðli. Úrslitin skiptu ekki máli en þetta var lokaleikur riðilsins. Pólland og Belgía fengu 8 stig hvort en Al- banía og Grikkland 4 hvort. - VS/Reuter Stadan f úrvalsdelldinnl í körfuknattleik: UMFN.............6 6 0 544:455 12 Valur............6 3 3 460:435 6 Haukar...........6 3 3 456:454 6 IBK..............6 3 3 443:483 6 KR...............6 2 4 463:487 4 IR...............6 1 5 461:513 2 Stlgahæstir: Valur Ingimundarson, UMFN....178 Pálmar Sigurðsson, Haukum.....130 Ragnar T orfason, f R........117 Birgir Mikaelsson, KR.......111 Jón Kr. Gíslason, IBK.......107 UMFN og Haukar leika annað kvöld, ÍBK og ÍR á laugardag og Valur-KR á sunnudag. Elkjær heppinn Hinn frægi danski landsliðs- maður í knattspyrnu, Preben El- kjær, slapp ómeiddur á ótrúlegan hátt úr umferðaróhappi á Ítalíu í gærkvöldi. Hann lenti í árekstri við vörubíl - bifreið Elkjærs eyðilagðist gjörsamlega en Dan- inn fékk ekki skrámu og talsmenn Verona sögðu að hann myndi mæta á æflngu í dag eins og ekk- ert hefði í skorist. - VS/Reuter Pálmar Sigur&sson lék frábær- lega með Haukum gegn ÍR í gær- kvöldi og skoraði 39 stig. Fimmtudagur 31. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23 Víkingur-Teka „Víkingar eiga góða möguleika“ segir Sigurður Gunnarsson sem hefur útvegað Víkingum miklar upplýsingar um spœnskafélagið. Leikið í Höllinni á sunnudagskvöld. Sigurður Gunnarsson lands- liðsmaður í handknattleik og fyrrum leikmaður Víkings hefur orðið sínum gömlu félögum að miklu liði í undirbúningi þeirra fyrir leikina gegn Teka Santander frá Spáni í Evrópukeppni bikar- hafa. Sigurður leikur með Tres De Mayo á Spáni og þekkir því vel til liðs Teka. Hann hefur sent Vík- ingum miklar upplýsingar um lið- ið og einnig myndbandsspólu frá leik þess í spænsku 1. deildinni. Víkingar eiga góða möguleika gegn Teka, að mati Sigurðar, en segir liðið samt mjög skeinuhætt. Það keypti tvo júgóslavneska leikmenn fyrir þetta keppnis- tímabil og auk þess Eduard Sala frá Barcelona en hann lék gegn Víkingum í undanúrslitum keppninnar sl. vor. Teka leikur hraðan og skemmtilega hand- knattleik og er með hættulega horna- og línumenn. Sex núver- andi og fyrrverandi landsliðs- menn eru í liði Teka en aðeins hornamaðurinn Julio Ruiz er fastamaður í spænska landsliðinu þessa stundina - er reyndar einn lykilmanna þess. Fyrri leikur Víkinga og Teka fer fram í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið kemur, 3. nóvember, og hefst kl. 20.30. Það er mikilvægt að Víkingar fái þar góðan stuðning áhorfenda því þeir þurfa helst að fara í seinni leikinn á Spáni með nokkur mörk í forskot. -VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.