Þjóðviljinn - 16.11.1985, Side 3
FRETTIR
Trésmiðjan Víðir
Gjaldþrot blasir við
Fasteignir fyrirtœkisins eins og annarrafalla í verði og eru
óseljanlegar. Greiðslustöðvunin bjargar engu. Iðnþróunarsjóðurfœr
stœrsta skellinn
Trésmiðjan Víðir fór sem
kunnugt er fram á
greiðslustöðvun í haust og gildir
hún til áramóta. Átti að reyna að
selja eignir fyrirtækisins til að
bjarga því frá gjaldþroti. Það
hefur mistekist, fasteignir Víðis,
eins og aðrar fasteignir á íslandi
Bjöm Þórhallsson, formaður
Landssambands íslenskra versl-
unarmanna. Geysilegt misræmi í
laununum. -Sig.M.
hríðfalla nú í verði og eru
óseljanlegar, menn kaupa ekki
fasteignir á íslandi í dag. Því
blasir gjaldþrot við hjá
fyrirtækinu. Það er Iðnþróunar-
sjóður sem fær stærsta skellinn,
hann lánaði fyrirtækinu 100
milljónir króna, aðrir
skuldunautar eiga minna.
í þessu sambandi er vert að
rifja það upp, þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn bjargaði fyrirtækinu
frá gjaldþroti með því að láta
rikið kaupa gamia Vfðishúsið við
Laugaveg. Það hús var og er
ónýtt. Enda hefur ekki enn, nærri
10 árum eftir kaupin, verið reynt
að gera það upp. Það er dýrara en
að byggja nýtt. Hann er að verða
nokkuð langur slóðinn eftir Sjálf-
stæðisflokkinn í misnotkun
banka og ríkissjóðs við að bjarga
fallandi einkafyrirtækjum. Haf-
skipsmálið er bara það nýjasta en
ekki eina.
-S.dór
Veðurofsinn
Vandræða-
ástand
mjög víða
Þetta er alveg hrikalegt ástand
víða. Plötur eru fjúkandi út um
allt og það er verst að lítið lát er á
veðurofsanum, sagði Páll Liríks-
son aðstoðaryfírlögregluþjónn í
Reykjavík síðdegis í gær.
Allt tiltækt lið lögreglunnar í
Reykjavík var úti við að aðstoða
íbúðareigendur, berja niður
þakplötur og tína upp fjúkandi
plötur. Starfsmenn borgarinnar
voru einnig við björgunarstörf og
hjálpar- og björgunarsveitir voru
f viðbragðsstöðu. Mestur var
veðurofsinn í Breiðholti. Svala-
hurð fauk þar upp í einni íbúð og
urðu stórskemmdir á innbúi.
í Kópavogi og Hafnarfirði var
ástandið ekki síður slæmt. Illstætt
var á götum úti í Kópavogi og við
Hamraborg fauk kona og fót-
brotnaði. Ekki var vitað um
önnur meiðsl á fólki að sögn lög-
reglunnar þar. Hafnarfjarðarlög-
reglan og starfsmenn bæjarins
höfðu einnig í nógu að snúast.
Bílar og jafnvel strætisvagnar
fuku út af og þess voru dæmi að
bflar hreinlega vöfðust utan um
ljósastaura.
Að sögn Svans Geirdal yfirlög-
regluþjóns á Akranesi fuku þar
girðingar og gróðurhús og rúður
brotnuðu. Þakplötur fuku af hús-
um. Hjálpar- og björgunarsveitin
aðstoðuðu lögregluna við björg-
unarsstörf. „Við erum lausir við
meiðsl á fólki, en það er búið að
vera annasamt," sagði Svanur.
Akraborg gekk ekki nema hluta
dagsins.
A Snæfellsnesi var ástandið
mjög slæmt. Þar rigndi mikið og
víða varð nokkurt tjón. „Það hef-
ur verið snarvitlaust veður í nótt
og í dag, en við höfum ekki kom-
ist til að kanna tjón til fulls,“
sagði Gísli Guðmundsson lög-
regluþjónn á Grundarfirði. Á
Hellissandi fauk hluti af húsþaki
á haf út. Víða var mikill sjó-
gangur.
Annars staðar á landinu var
ástandið mun skárra. lg/gg
Verslunarmannaþing
Karlamir yfirborgaðir
Björn Þórhallsson: Nauðsynlegt að stéttafélögin hafi samflot ísamningum.
Verðum að tryggja kaupmáttinn.
Leiðrétta misrétti í launagreiðslum
r
| gær hófst á Hótel Esju 15. þing
verslunarmanna. Á þinginu eiga
123 fulltrúar rétt til setu og var
fundarsalurinn þéttskipaður í
gær. Þjóðviljinn ræddi stuttlega
við Björn Þórhallsson og spurði
hann fyrst hver væru helstu mál
þingsins.
„Það sem helst er rætt á þessu
þingi má segja að sé tvíþætt. í
fyrsta lagi eru það auðvitað
kjaramálin. í þeim efnum leggj-
um við áherslu á að kaupmáttur-
inn verði tryggður, að það sem
samið verði um haldist. Þetta er
stóra vandamálið í kjaramálun-
um í dag. Það er áberandi hjá
okkar félagsmönnum að laun eru
greidd samkvæmt kauptaxta á
meðan margir aðrir fá miklar
yfirborganir á taxta og búa þar af
leiðandi við mun betri kjör.
Þarna er geysilegt misræmi sem
þarf að leiðrétta.
- Svo er það einnig sá mikli
munur sem er á körlum í skrif-
stofustörfum og konum í af-
greiðslustörfum. Og yfirborgan-
irnar eru mun meiri hjá körlun-
um en hjá konum. Þessi mismun-
ur er meiri á höfuðborgarsvæðinu
en úti á landsbyggðinni. Það er
auðvitað engin patentlausn á
þessu máli en við ætlum að leita
leiða hér á þessu þingi til að
leiðréta þetta.
Nú, í öðru lagi er mikið rætt um
fræðslumál á þessu þingi. Mest
áhersla er lögð á að auka starfs-
fræðslu sem þá myndi tengjast
samningum á þá leið að þar væru
ákvæði um hækkun á taxta í sam-
ræmi við námskeiðafjölda. Þetta
kemur auðvitað báðum samn-
ingsaðilum til góða þar sem aukin
fræðsla gerir fólk hæfara til að
sinna þeim störfum sem það
tekur að sér.“
- Er rædd hér kröfugerð fyrir
komandi samninga?
„Það er rætt um að setja hér
upp stefnumarkandi ramma sem
síðan verði þá ræddur vítt og
breitt á þinginu. Fulltrúar á þing-
inu fari síðan með þær hugmyndir
sem komið hafa hér fram og beri
þær upp í félögum."
- Verður farið til samninga sér
eða í samfloti við ASÍ?
„Það verður að ráðast af því
hvernig kröfugerð kemur frá fé-
lögunum. Það er hins vegar mín
skoðun að það sé stéttarfélögun-
um nauðsynlegt að þau fari í sam-
floti til samninga.“ IH
ísbúr
Framsókn fjölmennust
Verkafólk heldur áunnum réttindum hjá hinu nýja
útgerðarfyrirtæki, Granda hf.
r
Eg tel ágætt í sjálfu sér að
Þröstur Ólafsson sé í þessari
stjórn, en ég vil leiðrétta það að
hann sé frá því félagi sem mestra
hagsmuna hefur að gæta, sagði
Ragna Bergmann formaður
Verkakvennafélagsins Fram-
Urriðafoss
upp í fjöru
Eitt skipa Eimskips, Uitriða-
foss, rak upp í fjöru hjá járn-
blendiverksmiðjunni í Grundar-
tanga í fyrrinótt. Leki er kominn
að skipinu og skemmdir eru
nokkrar. Þegar síðast fréttist
hafði skipið ekki náðst á flot
aftur.
Að sögn Gylfa Geirssonar hjá
Landhelgisgæslunni var veður-
hraðinn gífurlegur á þessu svæði í
gær og hamlaði það
björgunarstörfum. Veðurhrað-
inn við Grundartanga náði allt að
110 hnútum. Ekki urðu önnur
útköll hjá Gæslunni vegna
veðursins.
gg
sóknar þegar hún hafði samband
við Þjóðviljann í gær.
Ragna vitnaði til viðtals við
Þröst Ólafsson vegna stjórnar-
kjörs í Granda hf, sem birtist í
blaðinu í gær. „Hjá Bæjarútgerð-
inni hafa unnið um 200 konur í
Verkakvennafélaginu Framsókn
en um 20 Dagsbrúnarmenn,“
sagði hún, „eða 10%. Það er því
ljóst hvort félagið hefur meiri
hagsmuna að gæta.“
Ragna sagði að s.l. mánudag
hefði hún ásamt Guðmundi J.
Guðmundssyni gengið á fund
forsvarsmanna Bæjarútgerðar-
innar vegna fyrirhugaðra
breytinga á rekstrinum. Þar hefði
m.a. komið fram að starfsfólkið
myndi á næstu dögum fá upp-
sagnarbréf en jafnframt ráðningu
hjá hinu nýja fyrirtæki og héldi
það öllum áunnum réttindum sín-
um. „Ég fór fram á það að þegar
endanlegar skipulagsbreytingar
verða gerðar, fái verkafólk að
kjósa sinn fulltrúa í stjórn fyrir-
tækisins eins og verið hefur frá
1978 og á ekki von á öðru,“ sagði
hún að lokum.
-ÁI
Vetrarskoðun
1. Vél gufuþvegin
2. Skipt um kerti
3. Skipt um platínur
4. Skipt um bensínsíu
5. Loftsía athuguð
6. Hreinsuð geymissambönd
7. Rafgeymir mældur
8. Rafhleðsla mæld
9. Startari mældur
10. Viftureim stillt
11. Kúpling stillt
12. Rúðusprautur stilltar
19. ísvari á rúðusprautur
14. Þurrkublöð athuguð
15. Frostlögur mældur
16. Olía á vél mæld
17. Vélarstilling
18. Ljósastilling
19. Hemlar athugaðir
20. Handhemill athugaður
0
Verð (með söluskatti): 2.280.-
2.925.-
Innifalið í verði: vinna
kerti
platínur
bensínsía
ísvari á rúðusprautur
VISA - EUROCARD
Gildir frá 15. okt. - 31. des.
f/^T 4 str. vél kr. 2.280.-
f/^r 6 str. vél kr. 2.925.-
Hordinn hf. Kópavogi S 72540
ember 1985 þjóÐVILJINN - SÍÐA 3