Þjóðviljinn - 16.11.1985, Page 4
LEIÐARI
Trausta kaupmáttartryggingu!
Það er vissulega ánægjuefni, að þau drög að
kröfugerð sem hafa komið fram til þessa hafa einmitt
lagt mjög þunga áherslu á að í næstu samningum
náist dugandi kaupmáttartrygging. Formaður
BSRB, Kristján Thorlacíus, hefur þannig sagt að
kaupmáttartrygging verði höfuðatriði af hálfu BSRB í
samningagerðinni á komandi mánuðum. Sama hef-
ur Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands-
ins sagt, og í viðtali við Þjóðviljann á forsíðu í dag
tekur Guðmundur J. Guðmundsson, formaður
Verkamannasambandsins í sama streng.
Mikilvægi þessa verður ekki ítrekað nógsamlega.
Það er vissulega munur á skoðunum manna innan
verkalýðshreyfingarinnar um hvernig samninga beri
að gera. Sá munur er þó ekki meiri en svo, að þess er
að vænta að innan skamms verði komin full sam-
staða um sameiginlegar kröfur. Og yfirlýsingar Guð-
mundar J. Guðmundssonar í Þjóðviljanum í dag
sýna að það er þegar full eining um mikilvægasta
atriðið: trausta kaupmáttartryggingu.
Það er því rétt að samtök atvinnurekenda geri sér
fullkomlega Ijóst, að verkalýðshreyfingin stendur al-
gjörlega sameinuð um þetta atriði og að það er
einfaldlega út í bláinn að ætla að freista þess að
knýja í gegn samninga, sem gera ráð fyrir öðru.
-ÖS
Ó-ÁLiT
Um áramótin renna núgildandi kjarasamningar út
og framundan er harðvítug samningalota. Samtök
innan verkalýðshreyfingarinnar eru um þessar
mundir í óða önn að móta kröfugerð sína. Þannig eru
tvö voldug sambönd, Verkamannasambandið og
Landssamband verslunarmanna, með þing sín um
helgina. Á báðum verður stefnan í kjaramálum tekin
til rækilegrar umfjöllunar.
Þegar kröfur eru meitlaðar verða menn að horfa til
þeirrar staðreyndar, að núverandi ríkisstjórn er búin
að gera ísland að láglaunalandi. Hún er búin aö
innleiða meiri fátækt en hér hefur verið til um áratuga
skeið. Forsíðufrétt Þjóðviljans í gær lýsti ástandinu
betur en nokkuð annað. Þar var greint trá því, að
aldrei hefði fólk sótt um aðstoð til Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkur í jafn miklum mæli og nú. Fjöldi
þeirra sem ekki komast af án opinberrar aðstoðar í
borginni hefur undir núverandi ríkisstjórn aukist um
þriðjung. Og það færist í vöxt, að fólk sem er fullfrískt
og í fastri vinnu á sér einskis úrkosta annars en að
leita á náðir borgarinnar. Launin hrökkva einfaldlega
ekki lengur fyrir nauðþurftum. Svipað ástand er vafa-
laust annars staðar á landinu.
í Ijósi þessara staðreynda er óhjákvæmilegt ann-
að en út úr næstu kjarasamningum komi raunveru-
legar kauphækkanir. Nú eru líka allar efnislegar for-
sendur til þess að hækka kaupið verulega. Það blas-
ir við að á árinu verður metafli, og því Ijóst að það
verður meira til skiptanna. Það er einnig alveg Ijóst
að misréttið í þjóðfélaginu hefur stóraukist á síðustu
árum, og tekjuskiptingin breyst verulega launafólki í
óhag. í næstu samningum verður því tvennt að ger-
ast: annars vegar verður að tryggja að launafólk fái
sinn réttmæta skerf af þeim aukna þjóðarauði sem
felst í vaxandi afla, og hins vegar verður í samning-
unum að stíga skref sem miðar að því að draga úr því
mikla misrétti sem hér hefur skapast á síðustu árum.
Hinu skulu menn líka gera sér grein fyrir, að það
þýðir ekki að hrópa á sem hæstar krónutöluhækkan-
ir. Reynslan sýnir ótvírætt, að það sem skiptir mestu
máli er að í samningum sé einhvers konar trygging
fyrir því að kaupmáttur haldist. Og sú trygging verður
að vera algerlega held. Það nægir ekki, að ríkis-
stjórnin taki að sér að ábyrgjast með loforðum á-
kveðinn kaupmátt. Slíkt loforð var gefið af forsætis-
ráðherra við samningana í sumarbyrjun, og svikið
áður en sumar var úti. Launafólk ætlast þvítil þess af
atvinnurekendum og forystu verkalýðshreyfingar-
innar, að nú verði svo búið um hnútana, að um-
samdar hækkanir hverfi ekki í vetfangi eins og dögg
fyrir sólu. Þess vegna verður í næstu samningum að
ná traustri kaupmáttartryggingu.
PJÚÐVUHNN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Frótta8tjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, hór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarfcalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljó8myndir: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útllt: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Símvarsla: Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Ágústa Þórisdóttir, ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlfstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Sfcrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbrelðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útfceyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reyfcjavífc, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiöja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 35 kr.
Sunnudagsblað: 40 kr.
Áskrift á mánuði: 400 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN i Laugardagur 16. nóvember 1985