Þjóðviljinn - 22.11.1985, Page 5

Þjóðviljinn - 22.11.1985, Page 5
VHDHORF Að bjarga eða myrða þjóð Eftir Þórarin Hjartarson, Tjörn. „Íöðru lagi svara ég Gylfa Páli til að minna hann og hans sálufélaga á að til er nokkuð sem heitir sjálfsákvörðunarréttur þjóða... ” Síhanúk fursti og fyrrum kon- ungur í Kampútseu kom hingað á dögunum að hitta og ræða við ís- lensk stjórnvöld. f*á daga var fjallað ögn um Kampútseu í blöð- unum. Dálítið um hernaðará- tökin þar nú en þó öllu meira um stjórnartíð Pols Pots og Rauðra Khmera árin 1975-79. Þjóðar- morð, blóðvellir, land lík- hauganna. Ég er líklega einn þeirra fáu sem rengi þessar hryll- ingsglósur og ekki bara óska Sí- hanúks alls hins besta heldur myndi bjóða Pol Pot margbless- aðan ef hann kæmi í heimsókn. Ég rakst um daginn á Pjóðvilja frá 18. sept. og las þar grein eftir Gylfa Pál Hersi: „Sihanouk og fjöldamorðin í Kampútseu”. Margt af því sem þar kemur fram er góð og gild vara í íslenskum blöðum og flest atriðin eru, held ég, allútbreidd meðal fólks á vinstri væng. Auk þess talar hann skýrt og vafningalaust. Grein hans er því kjörin til þess að taka í skoðun - þótt fullyrðingum hans verði mjög takmörkuð skil gerð í einni blaðagrein. Söguskýring Gylfa Páls Hersis Aðaltilgangur greinar Gylfa Páls er að „lýsa andstyggð á komu þessa „þjóðhöfðingja” (Sí- hanúks), stuðningsmanns fjölda- morðingja, og krefjast þess að ríkisstjórn íslands hætti nú þegar stuðningi sínum við stjórn Pols Pots hjá Sameinuðu þjóðunum”. Hann getur þess að stjórn þessi undir forsæti Síhanúks sé „viður- kennd sem eina lögmæta stjórn landsins á þingi Sameinuðu þjóð- anna. Það gerist einkum fyrir stuðning Bandaríkjastjórnar og leppa þeirra víðs vegar um heim”. Bíðum við, förum gæti- lega með stimplana! Þótt ný Stjórn settist að í Phnom Penh var stjórn Síhanúks studd sem rétt- mæt stjórn landsins af 90 löndum gegn 29 á umræddu þingi. Sam- kvæmt stimpli Gylfa Páls verða leppar Bandaríkjastjórnar með því móti óþægilega margir. Gylfi Páll Hersir gerir síðan stutta sögulega úttekt á bylting- unni í Kampútseu og íhlutun Víetnama. Helstu atriðin eru þessi: Böðlar Pols Pots drápu þrjár af átta milljónum landa sinna og skrúfuðu samfélagið aft- ur á tíma frumstæðs þrælaskipu- lags. Síðan kom Pol Pot upp miklum her við landamæri Víet- nams svo ávinningar byltingar- innaí þar voru í hættu. Bandarík- in og Kínverska skrifræðið stóðu þar aukheldur á bakvið. Ríkis- stjórn Hanoi sá sig tilneydda að gera innrás, „innrásarhernum var fagnað gífurlega og reyndist til- tölulega létt verk að stökkva her Pols Pots á brott. Við tók upp- bygging efnahagsins, menntun alþýðu og almenn endurreisn landsins. Þrátt fyrir mikla erfið- leika hefur þessu miðað vel”. Tökum eitt fyrir í einu. Hversu grimmur var Pol Pot? Sagan um Pol Pot og milljónirnar þrjár er öll með ævintýrablæ. Enda ekki hægt að ræða hana í alvöru. Frá upphafi voru líkhaugasögurnar mikið til sögusagnir sem þjónuðu heimsvaldahagsmunum og heiðri Bandaríkjanna eftir niðurlægj- andi ósigur 1975. Eftir innrás Víetnama var sami söguburður notaður þeim megin til að rétt- læta innrásina. Vestræn blöð sem eitthvað hafa reynt að gera eigin rannsókn á þessu máli, og yfir höfuð eru marktæk, nefndu gjarnan tölur á bilinu 100-500 þúsund um látna, annars vegar í réttaruppgjöri við pólitíska andstæðinga og hins vegar af öðru harðrétti á valdaár- um Rauðra Khmera 1975-78. En einnig þær tölur byggjast að miklu leyti á getgátum. Stríðið, ringulreiðin og hungrið sem við tók á eftir útilokaði alla hugsan- lega talningu. Gylfi Páll lætur sér hins vegar nægja að éta upp eftir hernáms- öflunum, Víetnömum, hvernig það stjórnarfar var sem gerði innrás þeirra nauðsynlega. Sem rannsóknaraðferð í sagnfræði er það mjög ófullnægjandi! Hvað sem því líður mun valda- taka Pol Pot-stjórnarínnar hafa verið býsna blóðug. Ég er viss um að mikill mannfjöldi var myrtur eða beittur ofbeldi að ósekju. Af hverju? Var það aðallega grimmdaræði stjórnvalda? Bylt- ingarforingjarnir í Kampútseu hafa viðurkennt að ofbeldið hafi orðið mun meira en efni stóðu til. Af orsökum nefna þeir m.a. mik- inn fjandskap og beiskju sem ríkt hafi á milli fólks á landsbyggðinni sem háði stríðið gegn Banda- ríkjamönnum og leppum þeirra og svo hinna sem bjuggu í borg- unum, þaðan sem sprengjurnar komu. Þeir nefna vandkvæði við það að fæða þær þrjár milljónir sem fluttar voru úr borgunum við valdatökuna. Þeir nefna einnig undirróðursstarf frá Víetnömum. Og fleira. Á árunum 1970-75 blésu stærri borgir í Kampútseu út vegna flóttamannastraums frá sveitun- um. íbúum Phnom Penh hafði þá fjölgað úr fáum hundraðþúsund- um í 2-3 milljónir. Ástæð.a þessa voru þær loftárásir sem dundu á sveitunum. Til dæmis féll þar 200 nætur í röð á árinu 1970 það djöfullegasta sprengjuregn sem fallið hefur í veraldarsögunni. í stríði Bandaríkjanna og leppa þeirra gegn kampútseönsku þjóðinni urðu fórnarlömbin á bil- inu 700 þúsund til milljón. Það er nálægt því það sama og í stríðinu í Víetnam. Það er þó sá munur að Víetnamar voru fyrir um 50 milljónir en Kampútseumenn að- eins um 8 milljónir. Þess var vart að vænta að eftir- leikur svoleiðis stríðs yrð' eintóm sátt og samlyndi. Uppskeran er gjarnan í nokkru samræmi við sáninguna. Baráttuaðferð bandarísku heimsvaldasinnanna gegn bændabyltingunni var einfald- lega sú að reyna að tæma sveitirn- ar. Það var kostnaðarsöm aðferð. f fyrsta lagi kostaði hún djöful- dóm af sprengjum. í öðru lagi þurfti að fæða borgirnar. Fram- leiðsla var þar næsta lítil. Matur og lífsnauðsynjar komu yfir mikla „loftbrú” sem Bandaríkja- menn héldu uppi. íbúar borg- anna, þeir sem ekki unnu þjón- ustustörf fyrir Lon Nol-stjórnina og bandaríska yfirboðara henn- ar, voru aðallega atvinnulaust flóttafólk. Sérstæð bylting Eftir ósigur Bandaríkjanna og Lon Nol-stjórnarinnar var fyrsta verk byltingarinnar að tæma Phnom Penh og aðra stærri bæi. Hvað.a rök voru færð fyrir því? Ein ástæða var þörfin á að ná tökum á og sundra öflum fjand- samlegum byltingunni sem hlutu annars að gera usla, ekki síst af því byltingaröflin stóðu veikast í borgunum. Þetta var þó auka ástæða. Aðalástæðan var nauð- syn þess að leysa fæðuvandamál- ið. „Loftbrúin” var horfin. Land- búnaðurinn var hastarlega lim- lestur eftir stríðið og engan veg- inn fær um að bæta við sig fram- leiðslu fyrir borgirnar. Með því að flytja út í sveit gætu hins vegar borgarbúar tekið þátt í fæðu- framleiðslunni og hindrað hung- ursneyð. Skiljanlega vöktu þessar að- gerðir óánægju og gremju veru- legs hluta borgarbúanna sem þóttu umskiptin slæm. Svo snögg og umfangsmikil umskipti gátu ómöguiega gengið harmkvæla- laust fyrir sig. Ofurróttækni virð- ist hafa verið útbreidd meðal byltingaraflanna og legið t.d. í því að skilgreina sem fjand- samleg öfl mikinn hluta þess fólks sem vann þjónustustörf fyrir Lon Nol-stjórnina. Tortryggni í garð menntafólks var hluti af því sama. Þetta hefur skerpt þær andstæður sem voru þó nægar fyrir. Byltingin var frá upphafi tví- þætt að eðli. Annars vegar bændabylting gegn landeigenda- aðli og embættismannakerfi kon- ungsstjórnarinnar. Hins vegar gegn heimsvaldasinnum - og sá þáttur fékk algjöran forgang eftir að Síhanúk var steypt 1970 og myndaðist þá mjög breið þjóð- fylking gegn kvislingastjórninni. f þeirri fylkingu stóðu róttækustu öflin sterkast er sigurinn vannst 1975 og því tók byltingin afar rót- tæka stefnu og um margt óvenju- lega. Fyrsta boðorðið var „treystum á eigin krafta”. Losa skyldi landið alveg af klafa heimsvaldastefnunnar og skorið á viðskiptatengslin við heims- markaðinn. Efnahagurinn skyldi byggður upp á eigin fótum frá grunni. Grunnurinn var landbún- aður. Samyrkjuvæðingu til sveita var lokið fyrir töku Phnom Penh. Höfuðverkefni samyrkjubúanna var áveitugerð fyrir hrísgrjóna- rækt. Ekki meira nú um stefnu bylt- ingarinnar. En ég verð að nefna það hér að það er loddaralegt skrök hjá Gylfa P. Hersi að segja að Pol Pot hafi m.a. beitt hungr- inu í starfi sínu við að drepa þjóð- ina. Hinum ýmsu ólíku gestum sem ferðuðust um Kampútseu á árunum 1975-78 bar nefnilega saman um eitt: hungrinu hafði verið útrýmt. Fólkið át sig mett. Það er betra en almennt gerist í 3. heiminum, jafnvel þar sem friðar nýtur. Flagið eftir sprengjurnar hafði verið ræktað á ótrúlega skömmum tíma. Malarían var horfin, ólæsi hraðminnkandi. Framtíðaráætlanirnar lýstu stór- hug. Björgunar- leiðangur Víetnama Víetnam stóð ógn af Kampúts- eu og neyddist til að gera innrás. Þessa staðhæfingu heyrði ég líka í myndinni „Blóðvellir” um dag- inn. Merkilegt! Víetnamar segja þetta. En er það þá ábyggilega satt? Þeir gætu kannski skrökvað því. Kampútsea hafði 60 þúsund manna fremur illa vopnaðan her. Víetnam eina milljón þungvopn- aða af nýmóðins sovéskum vopn- um. Sautján manns á móti ein- um. Kampútsea er frjósöm og hef- ur meira af ræktarlandi en hún getur nýtt sem stendur. f Víet- nam eru hins vegar mikil land- þrengsli. Samskipti landanna undanfarnar aldir hafa byggst á stöðugri útþenslu Víetnama og vörn Khmeranna. Franskir ný- lenduherrar héldu gjarnan fram að þeir hefðu á 19. öld bjargað Khmerunum undan tortímingu frá sínum hræðilegu nágrönnum (Víetnam og Thailandi). Eftir 1960 greindu erlendir heimildarmenn í Víetnam frá að Hó Chí Mính og félagar töluðu um einn flokk, eina byltingu og eitt ríki í öllu Indó-Kína. Eftir sigrana 1975 hefur sýnt sig að þetta var ekkert marklaust hjal. Stofnun „sambandsríkis” í Indó- Kína var á dagskrá og skyldi komið á með góðu eða illu. En Khmeraþjóðin er óskyld þeirri Víetnömsku og tortryggir hana. Tungumálin eru gjörólík. í Kam- pútseu hefur hugmyndin um sam- bandsríki alltaf átt sér formæl- endur fáa. Helstu leiðtogar Víetnama hafa, að því er virðist, alla tíð verið meiri þjóðernissinnar en marxistar. Þjóðernisstefna þeirra var framsækin meðan hún beindist gegn heimsvaldasinnum, og þá veittu þeir þjóð sinni trausta forystu í baráttunni við bandarísku hernaðarófreskjuna. En jafnframt bjuggu þeir (a.m.k. sumir) yfir afturhaldssamri þjóð- rembu sem miðaðist að drottnun yfir hinum þjóðum Indó-Kína. Því hafa þeir nú leitt þjóð sína úr öskunni í eldinn, úr frelsisstríði í drottnunarstríð. Sú þróun er ná- tengd heimsvaldabrölti Sovét- ríkjanna en því máli verð ég að sleppa hér. Gylfi Páll Hersir er sjálfum sér samkvæmur og lýsir innrásinni sem björgunarleiðangri. Björgun undan Pol Pot, Bandaríkjunum og Kína. En það gengur ekki óskapalaust að bjarga heilli þjóð. í lok ársins 1979 (innrásin hófst í árslok 1978) reiknuðu alþjóð- legar hjálparstofnanir með að eftir árs stríð lægi ein milljón í valnum, 500 þúsund í blóði sínu og 500 þúsund hungurmorða. Og flóttamannastraumurinn bar því sem næst aðra heila milljón, mest til Thailands (til samanburðar flúðu um 30 þúsund til Thailands í stjórnartíð Pols Pots). Innrásin er stór í sniðum. Tvö hundruð þúsund manna velvopn- aður her. Noregur var tekinn af sjö þúsund Þjóðverjum 1940, ef ég man rétt, og hefur vörn Norð- manna oft verið rómuð. En Ví- etnamar hafa enn meiri verkefni í Kampútseu en þeir sjá fram úr. Þá er að nefna það eina sem er frumlegt í grein Gylfa Páls. „Kampútseumenn verða einkum að reiða sig á aðstoð Víetnams, Sovétríkjanna ogKúbu”. Maður- inn hlýtur þó að sjá að aðstoðin er í fullum gangi. Víetnamar og So- vétmenn hjálpa eins og mest og best þeir geta. Og Kúbumenn eru víst þarna líka, við ráðgjafar- störf. Hvað vill hann hafa það betra? Jú, meðan nokkur Khmer er uppistandandi má gera betur. Ekki láta neinn sleppa. Skakkur sökudólgur Að lokum. Ég svara Gylfa Páli Hersi m.a. til að andmæla þeirri útbreiddu skoðun að valdatími Rauðra Khmera hafi verið mesti ógæfutíminn í lífi Kampútseu í seinni tíð. Það var gerð bænda- bylting í landinu og þær vilja verða harðneskjulegar. Ógæfa Kampútseu liggur hins vegar í yf- irgangi nágrannans og hroðalegri árás beggja risaveldanna á lítil- magnann. f öðru lagi svara ég Gylfa Páli til að minna hann og hans sálufélaga á að til er nokkuð sem heitir sjálfsákvörðunarréttur þjóða. Sú hugsun virðist víðs- fjarri í hans máli. Heimsvalda- sinnar, vestrænir sem austrænir, troða stöðugt á þeim rétti. Mál- svarar heimsvaldasinna eru auðþekktir á því að þeir hafa lágt um rétt kúgaðrar þjóðar ef það eru þeirra menn sem kúga. Hins vegar eru þeir iðnir við að sverta málstað þess sem kúgaður er. f þriðja lagi skrifa ég til að minna á að stríðið í Kampútseu er alveg óútkljáð og afstaða annarra þjóða mun ráða nokkru um úr- slitin. Það ætti að hræra hjarta smáþjóðar hér nyrðra að heyra um smáþjóð þar syðra sem berst svo bókstaflega fyrir tilvist sinni sem þjóð. Með hverri þjóð sem tapar því stríði versnar staða okk- ar íslendinga. Þórarinn Hjartarson. Þórarinn Hjartarson á Tjörn er búandi kennari á ættaróðalinu. Hann hefur lagt gjörva hönd á plóg í atvinnulífi landsmanna. Greinin taföist illa vegna mis- taka og er beðist velvirðingar á seinkun birtingar. Föstudagur 22. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.